Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar 11. júní 2026 09:30 Stundum leynast stærstu ákvarðanirnar í leiðinlegustu orðunum. Í frumvarpi til laga um lagareldi er að finna ákvæði sem flestir myndu líklega renna hratt yfir. Þar er talað um áhættumat, vöktun, mótvægisaðgerðir og önnur orð sem hljóma tæknilega, fræðilega og nokkuð skynsamlega. En á bak við þessi orð er mjög einföld hugmynd: Ef eldislax sleppur úr sjókvíum og gengur upp í ár, þá eigi að vera hægt að fara í árnar, leita að honum, reyna að veiða hann upp — og nota það síðan sem rök fyrir því að leyfa meira sjókvíaeldi. Þetta er kjarninn í málinu. Í stað þess að vísindalegt áhættumat segi einfaldlega: „Hingað og ekki lengra“, er verið að búa til leið til að segja: „Við getum farið lengra, því við ætlum að reyna að hreinsa upp skaðann eftir á.“ Það er ekki varúð. Það er grænþvottur. Við munum öll eftir norksum rekköfurum í íslenskum ám. Rekköfun í ám getur vissulega haft hlutverk. Ef slys verður og eldislax sleppur, þá getur þurft að bregðast við. Þá getur verið rétt að leita að fiskinum, reyna að ná honum og minnka skaðann eins og hægt er. En það er neyðarráðstöfun eftir slys. Það á ekki að verða forsenda fyrir því að stórauka áhættuna fyrirfram. Þessu má líkja við að leyfa verksmiðju að menga meira vegna þess að einhver lofar að reyna að hreinsa upp mengunina í garði nágrannans á eftir. Íslenskar laxveiðiár eru ekki hluti af rekstrarkerfi sjókvíaeldisfyrirtækja. Þær eru ekki hreinsistöðvar. Þær eru ekki tilraunasvæði fyrir mótvægisaðgerðir. Þær eru lifandi vistkerfi, hluti af náttúru Íslands, hluti af bújörðum, veiðiréttindum, byggðum og menningu sem hefur verið byggð upp í kringum villtan lax í kynslóðir. Íslenksar laxveiðiár eru partur af því hver við erum sem Íslendingar. Það sem gerir þetta sérstaklega alvarlegt er að þessi hugsun hefur þegar birst í drögum að áhættumati. Þar var gert ráð fyrir að með svokölluðum mótvægisaðgerðum væri hægt að hækka leyfilegt framleiðslumagn verulega. Með öðrum orðum: aðgerðir í ám, eins og leit og föngun eldislaxa, geta orðið notaðar sem rök fyrir því að framleiða meira í sjókvíum. Með þessu er áhættumatinu breytt úr vísindum yfir í pólitík. Áhættumat á að vernda villta laxastofna. Það á ekki að vera tæki til að finna leiðir framhjá vísindalegum varnaðarorðum. Ef niðurstaðan er sú að náttúran þoli ekki meira álag, þá á svarið að vera minna álag — ekki meiri framleiðsla og loforð um að reyna að laga skaðann seinna. Það þekkja allir sem hafa staðið í íslenskri á að aðstæður eru ekki alltaf eins og á blaði. Vatn vex. Ár litast. Skyggni hverfur. Veður breytist. Haustið kemur hratt. Að finna og fanga eldislax í íslenskum ám er ekki einföld töfralausn sem hægt er að setja inn í reiknilíkan og treysta á að virki þegar mest liggur við. Grundvallaratriðið er þetta: Norskur eldislax á aldrei að vera í íslenskum ám. Það er líka óeðlilegt að ábyrgðin færist frá þeim sem skapa áhættuna, yfir á árnar, landeigendur, veiðifélög og þá sem þurfa að standa í afleiðingunum. Sjókvíaeldisfyrirtækin fá ávinninginn af aukinni framleiðslu, en villti laxinn, árnar og fólkið við árnar bera áhættuna. Þess vegna þarf Alþingi að loka þessari leið skýrt og afdráttarlaust. Það á að taka fram í lögum að rekköfun, föngun eldislaxa eða aðrar aðgerðir í ám megi ekki nota sem rök fyrir auknu eldismagni í opnum sjókvíum. Slíkar aðgerðir eiga aðeins að koma til sem neyðaraðgerðir eftir strok, með skýru samráði og samþykki þeirra sem eiga veiðiréttinn og bera ábyrgð á ánum. Málið er í raun ekki flókið. Annaðhvort ætlum við að vernda villta íslenska laxinn, eða við ætlum að leyfa áframhaldandi áhættu og kalla hreinsunina vernd. Árnar okkar eiga betra skilið en það. Höfundur er veiðimaður og leiðsögumaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Mest lesið Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? skrifar Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun