Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Birgir Olgeirsson skrifar 10. júní 2026 20:00 Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar. Vísir/Krónan Verslun Krónunnar í Lindum í Kópavogi verður opnuð aftur á morgun eftir umfangsmiklar framkvæmdir sem staðið hafa yfir frá því í apríl.
Um er að ræða umfangsmestu framkvæmdir sem Krónan hefur ráðist í til þessa, samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Verslunin í Lindum er jafnframt sú stærsta í rekstrinum, um 3.200 fermetrar að stærð, og hefur verið starfrækt frá árinu 2008. Við framkvæmdirnar var verslunin tekin í gegn og skipulagi hennar breytt. Nýr umhverfisvænn CO₂-kælibúnaður hefur verið tekinn í notkun í stað eldra kerfis sem notaði freon. Þá hefur lýsing verið endurnýjuð, grænmetisdeild stækkuð, aukið pláss verið gert fyrir lífrænar vörur og aðgengi að glútenlausum vörum bætt. Nýr CO₂-kælibúnaður hefur verið tekinn í notkun í Krónunni í Lindum í stað eldra kerfis sem notaði freon.Aðsend Starfsaðstaða starfsfólks og lagerrými hafa jafnframt verið endurnýjuð og bætt verulega. Sérstök áhersla hefur verið lögð á aðgengi og notendavænni lausnir. Sjálfsafgreiðslukössum hefur verið fjölgað úr níu í fimmtán og ný tegund kassa tekin í notkun, meðal annars með þarfir sjónskertra og notenda hjálpartækja í huga. Krónan í Lindum var fyrsta verslunin hér á landi til að taka upp sjálfsafgreiðslukassa þegar hún opnaði árið 2008. Sjálfsafgreiðslukössum hefur verið fjölgað úr níu í fimmtán og nýir kassar teknir í notkun með aukið aðgengi í huga.Aðsend Samhliða enduropnuninni opnar nýr kjúklingastaður, Tjikký, í versluninni. Með opnuninni snýr jafnframt aftur kjúklingatilboð sem lengi hefur verið tengt versluninni í Lindum. Tjikký opnar samhliða enduropnun Krónunnar í LindumAðsend Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir að markmiðið hafi ekki aðeins verið að endurnýja verslunina heldur einnig að gera hana umhverfisvænni, aðgengilegri og þægilegri fyrir viðskiptavini og starfsfólk. „Verslunin í Lindum er okkar stærsta verslun og því var mikilvægt að nýta þetta tækifæri til að þróa hana áfram í takt við breyttar þarfir viðskiptavina. Við höfum lagt mikla vinnu í að bæta flæði, styrkja umhverfisvæna þætti rekstrarins og skapa betri aðstöðu fyrir bæði viðskiptavini og starfsfólk. Við hlökkum til að heyra viðbrögð við breytingunum og sjá verslunina lifna við á ný,“ segir Guðrún.
Verslun Kópavogur Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira