Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Samúel Karl Ólason skrifar 8. júní 2026 09:30 Frönsk flugsveiti á Rafale-þotum hefur séð um loftrýmisgæslu í Lettlandi á undanförnum vikum. EPA/TOMS KALNINS Franskur flugmaður herþotu skaut í morgun niður dróna yfir Lettlandi. Úkraínskir sjálfsprengidrónar hafa nokkrum sinnum ratað inn í lofthelgi Eystrasaltsríkjanna og Finnlands á undanförnum mánuðum vegna rafrænna truflana sem eru hluti af loftvörnum Rússa gegn árásum Úkraínumanna.
Þetta er í fyrsta sinn sem dróni flýgur inn í lofthelgi Lettlands og er skotinn niður þar. Einn dróni var skotinn niður yfir Eistlandi í maí. Þann 25. mars brotlenti sjálfsprengidróni í Lettlandi og síðan þá hefur það gerst að minnsta kosti fjórum sinnum til viðbótar. Þetta eru allt taldir úkraínskir drónar. Árið 2024 brotlenti rússneskur dróni í Lettlandi. Úkraínumenn hafa fjölgað drónaárásum sínum í Rússlandi verulega á undanförnum mánuðum. Sjá einnig: Nálgast stríðið vendipunkt? Skömmu áður en dróninn var skotinn niður hafði verið gefin út viðvörun í austurhluta Lettlands og íbúar á svæðinu beðnir um að leita sér skjóls, samkvæmt frétt Ríkisútvarps Lettlands (LSM). Í kjölfarið hafa verið gefnar út sambærilegar viðvaranir í fleiri héruðum Lettlands en herþotur á vegum Atlantshafsbandalagsins eru sagðar á lofti. Fyrsta viðvörunin var gefin út í Nautrēni og er talið að dróninn hafi verið skotinn niður þar. Seinna voru einnig gefnar út viðvaranir í Rēzekne, Ludza, Alūksne og Balvi í austurhluta Lettlands.
Lettland NATO Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Sjá meira