Fangaði sólarupprás á Mars Kjartan Kjartansson skrifar 7. október 2026 19:34 Sólarupprás á Mars séð með vélrænu auga Curiosity-könnunarjeppans 11. ágúst 2026. NASA/JPL-Caltech/MSSS Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborð Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til að mynda sérstaka kletta fyrir vísindamenn hér á jörðinni.
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til að mynda sérstaka kletta fyrir vísindamenn hér á jörðinni. Myndin var tekin um klukkan 8:30 að staðartíma á Mars, þann 11. ágúst. Það var 4.982. dagurinn sem Curiosity hafði verið á yfirborði plánetunnar. Hún er unnin úr sex myndum sem farið tók en reynt var að halda birtustigi myndarinnar eins og aðstæður hafa verið á Mars. Myndin sem fylgir fréttinni er hluti af stærri samsettri mynd sem áhugasamir geta séð hér á vef NASA. Þá er einnig hægt að sjá allar myndir sem teknar eru með Curiosity hér. 📍Gale Crater, Aug. 11, 2026, 8:30 a.m. local Mars time. The Curiosity rover captures the Sun rising on crags known as yardangs, a scene that scientists have long been waiting to see up close. 1/2 https://t.co/NJQH9yNEYR— NASA Mars (@NASAMars) October 6, 2026 Á vef NASA segir að myndin sé af tindagarði sem mótast hefur með veðrun í gegnum árin. Garðar sem þessir myndast þegar vindur blæs burt mýkra efni svo það eina sem stendur eftir eru klettahryggir. Þessir tilteknu klettar liggja í vesturhluta Sharp-fjalls en það er um fimm kílómetra hátt fjall sem Curiosity hefur verið að klífa frá árinu 2014. Farið er komið í eins kílómetra hæð og er vonast til þess að Curiosity nái til tindagarðsins árið 2027. Fjallið er mótað úr mörgum lögum af jarðvegi en með því að skoða þau lög hafa vísindamenn NASA getað lært meira um þau stöðuvötn og ár sem flæddu eitt sinn um yfirborð Mars, fyrir milljörðum ára.
Mars Geimurinn Vísindi Tækni Tengdar fréttir Fundu stærstu lífrænu sameindirnar hingað til í gömlu sýni Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborð Mars, hefur fundið stærstu lífrænu sameindirnar hingað til. Fundurinn gefur til kynna að líffræðilegir ferlar hafi verið komnir lengra á Mars en áður hefur verið talið. 25. mars 2025 23:20 „Áhugaverður“ fundur kolefnis á Mars mögulega til marks um lífrænt ferli Við greiningu sýna af yfirborði Mars fann könnunarfarið Curiosity tegund kolefnis sem gjarnan er tengt við lífræn ferli. Það á í það minnsta við hér á jörðinni en þessi tegund kolefnis getur einnig myndast við ákveðin jarðfræðileg ferli. 19. janúar 2022 14:01 Curiosity fann lífrænar sameindir á Mars Uppgötvunin gefur til kynna að mögulega hafi Mars eitt sinn hýst líf eða jafnvel að finna megi örverur undir yfirborð plánetunnar. 8. júní 2018 11:15 Curiosity boraði á mars Marsjeppinn boraði í fyrsta sinn í eitt ár og tók jarðsýni af yfirborði mars. 30. apríl 2014 14:44 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Sjá meira
Fundu stærstu lífrænu sameindirnar hingað til í gömlu sýni Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborð Mars, hefur fundið stærstu lífrænu sameindirnar hingað til. Fundurinn gefur til kynna að líffræðilegir ferlar hafi verið komnir lengra á Mars en áður hefur verið talið. 25. mars 2025 23:20
„Áhugaverður“ fundur kolefnis á Mars mögulega til marks um lífrænt ferli Við greiningu sýna af yfirborði Mars fann könnunarfarið Curiosity tegund kolefnis sem gjarnan er tengt við lífræn ferli. Það á í það minnsta við hér á jörðinni en þessi tegund kolefnis getur einnig myndast við ákveðin jarðfræðileg ferli. 19. janúar 2022 14:01
Curiosity fann lífrænar sameindir á Mars Uppgötvunin gefur til kynna að mögulega hafi Mars eitt sinn hýst líf eða jafnvel að finna megi örverur undir yfirborð plánetunnar. 8. júní 2018 11:15
Curiosity boraði á mars Marsjeppinn boraði í fyrsta sinn í eitt ár og tók jarðsýni af yfirborði mars. 30. apríl 2014 14:44