Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Freyja Þórisdóttir skrifar 14. júní 2026 07:30 Í Facebook-færslunni er Abdallah beðinn afsökunar á mistökunum og honum óskað til hamingju með verðlaunin og stúdentsprófið. Reykjanesbær/Facebook/FS Nýútskrifaður stúdent úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Abdallah Rúnar Awal, var ansi hissa þegar hringt var í hann frá skólanum nokkrum dögum eftir útskrift. Þá var honum greint frá því að vegna prentmistaka hafi viðurkenning fyrir stærðfræði sem hann átti að fá við ekki verið afhent við athöfnina.
Abdallah Rúnar Awal útskrifaðist af viðskipta- og hagfræðibraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS) föstudaginn 29. maí og stefnir á að fara beint í háskóla í haust. En í Facebook-færslu á síðu skólans, sem birt var þann 2. júní, kom í ljós að Abdallah hefði átt að fá verðlaun fyrir góðan námsárangur við útskrift en vegna „galla í útkeyrslu úr skólakerfinu Innu“ hafi hann ekki fengið þau á athöfninni. Ennþá meira undrandi á mánudeginum „Ég vildi bara gera mitt besta, var ekki endilega að stefna á það að fá viðurkenningu en það væri auðvitað bara frábært að fá hana,“ segir Abdallah í samtali við blaðamann Vísis og bætir við að hann hafi verið svekktur þegar nafn hans var ekki kallað upp í upptalningunni yfir þá sem hlutu viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Eftir athöfnina hafi hann, eins og gefur að skilja, ekki búist við því að fá neinar fréttir af viðurkenningum en hafi ekki viljað dvelja við það. Hann hafi svo verið enn meira undrandi á mánudeginum en hann var á athöfninni föstudaginn áður. „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig. Ég var í vinnunni bara og svo sögðu þau mér að ég ætti skilið viðurkenninguna,“ segir Abdallah en hann mætti ásamt fjölskyldu sinni daginn eftir, þriðjudaginn 2. júní, og tók við viðurkenningunni. Alltaf fremstur í röðinni Þá útskýrir hann að nöfn útskriftarnemanna hafi verið prentuð út í stafrófsröð en að hans, sem sé fremst í stafrófinu, hafi ekki prentast út sem skyldi. Það hafi ekki áður gerst að sá fyrsti í stafrófinu eigi að fá viðurkenningu og því séu mistökin fordæmalaus og kannski eðlilegt að þau hafi ekki uppgötvast um leið. „Nafnið mitt byrjar náttúrulega á A, B og D þannig að ég er eiginlega alltaf fremstur í röðinni ef það er stafrófsraðað,“ segir Abdallah en mistökin uppgötvuðust líkt og fyrr segir eftir athöfnina og fékk Abdallah fréttirnar á mánudagsmorgninum, þann 1. júní. Í ár útskrifuðust hundrað sextíu og átta nemendur frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Það er stærsti hópur sem útskrifast hefur frá skólanum, einum fleiri en síðasta vor.Facebook/Fjölbrautaskóli Suðurnesja Hann fór upp í skólann klukkan tíu á þriðjudagsmorgninum ásamt fjölskyldunni sinni og segir hann að þau, frekar en hann, hafi viljað fá svör við því hvernig mistökin urðu. „Það var ekkert uppnám eða stress hjá mér, kannski frekar hjá fjölskyldunni minni. Þau vildu að fólk myndi sjá að ég fengi viðurkenninguna,“ segir Abdallah en hann hefur alla sína skólagöngu verið framúrskarandi námsmaður. Tók menntaskólaáfanga í níunda bekk Hann var byrjaður að læra stærðfræði fyrir eldri árganga strax á yngsta stigi í grunnskóla. Það hafi alltaf verið hans sterkasta fag en áhuginn sé slíkur að honum finnist stærðfræði skemmtileg, þrátt fyrir að hún geti stundum reynst erfið. „Ég byrjaði að taka áfanga í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í níunda bekk, tók ensku fyrst og svo stærðfræði. Ég var búinn að klára ensku og hitt fyrir fram,“ segir Abdallah. Abdallah er á láni hjá knattspyrnufélaginu Víði í Garði. Þar er hann miðjumaður eða vinstri bakvörður. Aðsend Hann er búinn að sækja um skóla í sólskinsfylkinu Flórída á fótboltastyrk en Abdallah er á samningi hjá Njarðvík til ársins 2028 og er sem stendur á láni hjá Víði. „Ég sótti um skóla í Bandaríkjunum á fótboltastyrk en sótti líka um pláss í Háskólanum í Reykjavík til vara,“ segir hann og bætir við að hann stefni á nám í gagnavísindum. Abdallah á fjölskyldu í Flórída og segist mjög spenntur fyrir því að fá svör um pláss að utan. „Nokkrir úr fjölskyldunni búa þar en það eru dorm þar og allt. Mér var sagt að prófa að fara til Bandaríkjanna,“ segir Abdallah og segist „bara verða spenntari og spenntari“. Beit á jaxlinn Hann segir blaðamanni frá því að fótboltatímabilið á Íslandi sé á sumrin og að það væri því alveg hægt að vinna í kringum það að hann sé á samningi færi hann út til Bandaríkjanna. „Það er í lagi að ég sé á samningi. Ég er búinn að tala við stjórnendur og þeim líst vel á þetta, svo er ég líka ekki sá fyrsti,“ segir hann. „Ég hef alltaf verið í fótbolta, hætti reyndar í smá þegar ég var lítill. Varð smá þykkur og svona en beit á jaxlinn og ástríðan tók bara yfir,“ segir hann og útskýrir hvernig fótboltaæfingar séu oftar en ekki nákvæmlega það sem hann þurfi eftir langar lærdómstarnir. Það hjálpi mjög að geta dreift huganum og að álagið sé ekki of mikið þrátt fyrir margar klukkustundir sem fari í fótboltann.
Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Fótbolti Framhaldsskólar Reykjanesbær Tímamót Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira