Ný jafnréttislög kalla á aukið aðhald og skýra framtíðarsýn Kolbrún Halldórsdóttir skrifar 4. júní 2026 08:02 Alþingi hefur samþykkt veigamiklar breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Með þeim er núverandi fyrirkomulag jafnlaunavottunar og jafnlaunastaðfestingar lagt af og í staðinn tekið upp kerfi reglubundinnar skýrslugjafar um kynbundinn launamun til Jafnréttisstofu á þriggja ára fresti. Sem málsvari háskólamenntaðs fólks fagna ég því að við meðferð málsins, frá því að það var fyrst kynnt í samráðsgátt, hafi verið gerðar tilteknar breytingar á frumvarpinu til bóta, m.a. í takt við áherslur BHM. Sérstaklega skiptir máli að fjögur hlutlæg meginviðmið við flokkun starfa hafi verið lögfest: ábyrgð, álag, hæfni og vinnuaðstæður. Þessi viðmið eru lykilforsenda þess að sérfræðiþekking, ábyrgð og langskólamenntun séu metin til launa með sanngjörnum og málefnalegum hætti en byggist ekki á tilviljunarkenndum forsendum. Það er einnig jákvætt að eftirlitshlutverk Jafnréttisstofu var skýrt í ferlinu, þannig að það nái líka til þess að unnið sé samkvæmt úrbótaáætlun. Sömuleiðis er fagnaðarefni að gert sé ráð fyrir heildstæðri greiningu á vinnumarkaðnum í samstarfi við Hagstofu Íslands. Dómsmálaráðherra fylgdi málinu úr hlaði með það að markmiði að einfalda framkvæmdina en tryggja áfram meginmarkmið jafnréttislöggjafar. Við í BHM erum tilbúin í þá vegferð. En einföldun má aldrei verða annað orð yfir veikara aðhald. Skilvirkt eftirlit og skýr ábyrgð atvinnurekenda verða að vera til staðar ef nýja kerfið á að skila raunverulegum árangri. Alvarlegir annmarkar skilja starfsfólk eftir í óvissu Þrátt fyrir jákvæð skref standa eftir veruleg álitaefni í hinum nýsamþykktu lögum sem BHM getur ekki látið óátalin. Sú ákvörðun að miða stærðarmörkin áfram við 50 starfsmenn þýðir að umtalsverður hluti vinnumarkaðarins fellur utan reglubundinnar skýrslugjafar. Það er einmitt á smærri vinnustöðum sem hættan á huglægum og ógegnsæjum launaákvörðunum getur verið mest. Í lögunum er hvorki að finna úrræði né skýra stefnu um hvernig eigi að styðja við eða fylgja eftir jafnlaunareglunni hjá fyrirtækjum undir þeim mörkum. Spyrja verður: Hvernig á að tryggja jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf af fullri alvöru þegar stór hópur starfsfólks á minni vinnustöðum er skilinn eftir án virks opinbers eftirlits? Nýja kerfið felur einnig í sér grundvallarbreytingu á hvernig eftirliti og framkvæmd jafnlaunareglunnar er háttað innan fyrirtækja. Fyrra fyrirkomulagið byggði á því að atvinnurekendur hefðu virkt og stöðugt eftirlit með eigin launakerfum og gætu sýnt fram á að launasetning stæðist þær kröfur sem leiddu af jafnlaunastaðli sem legið hefur því kerfi til grundvallar sem nú hefur verið lagt af. Nú færist áherslan í meira mæli yfir í skýrslugjöf og opinbert eftirlit sem kemur til eftir á. Það á eftir að koma í ljós hversu öflugt þetta eftirlit verður í reynd og hvaða raunverulegu hvatar verða þróaðir til að halda atvinnurekendum við efnið og tryggja að þeir haldi sjó þegar kemur að framkvæmd jafnlaunareglunnar. Evrópa horfir fram á veginn – hvar stendur Ísland? Á sama tíma og við breytum okkar eigin kerfi standa ríki Evrópu frammi fyrir innleiðingu nýrrar tilskipunar um gagnsæi launa. Sú tilskipun mun styrkja rétt starfsfólks til upplýsinga um þau viðmið sem stýra launasetningu og launaþróun innan fyrirtækja og stofnana. Íslensk stjórnvöld mega ekki draga lappirnar í þeim efnum; við eigum að nýta evrópsku verkfærin til að styrkja okkar eigin lagaramma. Aðferðafræðin við mat á störfum þarf að vera skýr, hlutlæg og kynhlutlaus. Þetta skiptir Ísland gríðarlegu máli núna, þar sem yfirstandandi er umfangsmikil og sameiginleg vinna stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins að virðismati starfa hjá hinu opinbera. Sú vinna verður að tryggja að menntun, hæfni og ábyrgð séu metin með faglegum hætti þannig að háskólamenntun skili sér í réttlátri launaþróun og að háskólafólk fái laun í samræmi við virði starfa sinna. Aðhald verður að fylgja breytingum Breytingar á lögum mega aldrei verða til þess að dregið verði úr kröfum til atvinnurekenda eða aðhald gegn launamismunun veikist. Meginreglan um jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf verður ekki virk í reynd nema lagalegar skyldur séu skýrar, eftirlit raunhæft og starfsfólk og stéttarfélög hafi aðgang að upplýsingum til að gæta hagsmuna sinna. Ábyrgð stjórnvalda er mikil. BHM mun fylgjast náið með framkvæmd nýju laganna, beita sér fyrir öflugri innleiðingu reglna um gagnsæi launa og veita stjórnvöldum og atvinnulífi öflugt aðhald. Jafnlaunareglan er ekki formsatriði. Hún er grundvallarréttur sem við munum áfram verja af fullum krafti. Höfundur er formaður BHM Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jafnréttismál Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kolbrún Halldórsdóttir Kjaramál Stéttarfélög Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar