Skoðun

Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá

S. Hjörtur Guðjónsson skrifar

Við viljum öll hafa gott farsímasamband, heima, í vinnunni og á ferðinni. Við gerum kröfu um hraðvirkt net og skýr símtöl og hugsum sjaldnast um hvernig þjónustan verður til. Þegar kemur að búnaðinum sem gerir hana mögulega snýst viðhorfið hins vegar oft við, og þá vill enginn hafa hann nálægt sér. Við viljum njóta tækninnar en helst ekki sjá innviðina á bak við hana.

Sambandið þarf sendi í nágrenninu

Farsímanet byggir á sendistöðum sem þurfa að vera tiltölulega nærri notendum. Þetta á ekki síst við um 5G í þéttbýli, þar sem margir notendur, þétt byggð og mikil gagnaflutningsþörf kalla á þétt net. Við tilteknar aðstæður getur æskileg fjarlægð frá sendi verið 500 til 1.000 metrar, stundum minni.

Ástæðan er eðlisfræðileg. Merkið veikist með fjarlægð og tapar miklum styrk þegar það fer í gegnum byggingarefni, einkum steinsteypu. Ef steyptur veggur deyfir merkið um 95% kemst aðeins 5% þess í gegn. Eftir annan sambærilegan vegg eru 0,25% eftir og eftir þann þriðja aðeins 0,0125%. Raunveruleg deyfing er misjöfn, en dæmið sýnir hvers vegna gott samband á götunni tryggir ekki gott samband innandyra.

Við búum á Íslandi, ekki við Miðjarðarhafið

Veðurfarið veldur því að við eyðum miklum tíma innandyra, í íbúðum, á vinnustöðum og í öðrum byggingum. Því skiptir máli að farsímasamband nái þangað inn. Til þess þarf sendibúnaður að fá pláss í þéttbýlinu sjálfu, þar sem fólk býr og starfar, en ekki aðeins í útjaðri byggðarinnar.

Einn sendistaður fyrir marga

Hér skiptir máli hvernig innviðirnir eru byggðir upp. Á þökum fjölbýlishúsa eru oft settar upp grannar stálsúlur fyrir loftnet. Þær geta dugað, en vegna takmarkaðs rýmis og burðarþols þjóna þær stundum aðeins einu eða tveimur fjarskiptafyrirtækjum.

Önnur leið er að reisa sérhannað keilulaga stálmastur, til dæmis um 18 metra hátt, á hentugum stað í byggðinni. Rétt hannað getur það borið loftnet fleiri fyrirtækja í einu, svo að fleiri þjónustuveitendur nýti sama sendistað og bæti þjónustu við viðskiptavini sína í nágrenninu. Einn vel staðsettur og samnýttur sendistaður getur því verið skynsamlegri en margar aðskildar uppsetningar. Mannvirkin verða færri, uppbyggingin hagkvæmari og líkur á góðu sambandi meiri, óháð því hjá hverjum fólk er í viðskiptum.

Skipulagið þarf að gera ráð fyrir fjarskiptum

Tæknilegar lausnir duga skammt ef skipulag byggðar rúmar þær ekki. Sveitarfélög þurfa að móta skýra stefnu um staðsetningu fjarskiptamannvirkja, bæði í grónum hverfum og í þeim sem eru enn á teikniborðinu. Eins og við gerum ráð fyrir götum, rafmagni, vatnsveitu og fráveitu þarf að ætla fjarskiptum pláss frá upphafi. Það er mun skynsamlegra að skipuleggja sameiginlega sendistaði áður en hverfi byggjast upp en að leita að hentugum stað eftir á.

Sum sveitarfélög hafa þegar riðið á vaðið. Hafnarfjörður hefur fært heimildir fyrir sameiginlega sendistaði inn í skipulag sitt og á síðustu árum hafa allavega fjórir slíkir sendistaðir verið settir upp, sem öll farsímafyrirtæki geta nýtt. Í Kópavogi eru þeir að minnsta kosti tveir, í Reykjanesbæ bættust allavega tveir við á síðustu árum og sem nýlegt dæmi þá í Svalbarðsstrandarhreppi eru áform um slíkt. Þetta sýnir að leiðin er fær.

Stefna á pappír nægir þó ekki. Sveitarstjórnir þurfa líka að hafa kjark til að fylgja henni eftir. Íbúar geta með réttu gert kröfur um vandað staðarval, ásýnd, frágang og öryggi, og samráð og málefnaleg umræða eiga að vera sjálfsögð. En það gengur ekki upp að íbúar, stofnanir, fyrirtæki og sveitarfélög krefjist öll framúrskarandi farsímaþjónustu en enginn vilji hafa mannvirkin sem tryggja hana í sínu nærumhverfi. Þar reynir á kjörna fulltrúa, sem þurfa að vega hagsmuni einstakra íbúa á móti hagsmunum samfélagsins til lengri tíma.

Hvað viljum við í raun?

Við samþykkjum að rafmagn, samgöngur og vatnsveitur þurfi sitt rými. Fjarskipti eru orðin jafn mikilvægur hluti daglegs lífs. Við þurfum ekki að velja á milli öflugrar farsímaþjónustu og vandaðs umhverfis, heldur skipuleggja hvort tveggja af skynsemi. Til þess þarf tæknilega þekkingu, en einnig skilning, framsýni og kjark. Ef við viljum öll njóta góðrar þjónustu verðum við að vera tilbúin að veita innviðunum sem gera hana mögulega eðlilegan sess í næsta nágrenni við okkur.

Höfundur er verkfræðiráðgjafi, MBA og véltæknifræðingur.




Skoðun

Skoðun

Brjóstaskimun enn mikil­væg?

Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar

Sjá meira


×