Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar 30. október 2026 12:32 Viðey hefur um langt árabil verið hálfgert olnbogabarn Reykjavíkur og sífellt færri venja komur sínar þangað. Eðlilega. Þangað er lítið að sækja fyrir þann sem hefur komið út í eyjuna einu sinni áður. Þegar synir okkar voru á barnsaldri fórum við hjónin nokkrum sinnum með þá út í Viðey. Siglingin yfir sundið var ævintýri fyrir strákana og í góðu veðri var dásamlegt að ganga um eyjuna, skoða gömlu húsin og minjarnar, koma inn í Viðeyjarstofu og njóta útsýnisins yfir sundin og borgina. Þetta voru skemmtilegar fjölskylduferðir. En til hvers að fara aftur? Ég man eftir tónleikum, veislum og vöfflukaffi í Viðeyjarstofu. Það var talsvert líf í eynni. Föst búseta hefur hins vegar ekki verið í Viðey frá því á sjötta áratug síðustu aldar og Sundbakkaþorpið fór í eyði árið 1943. Gestum fækkað um nær tvo þriðju Fyrir skömmu fékk ég upplýsingar frá Reykjavíkurborg um gestafjölda Viðeyjar síðastliðinn áratug. Tölurnar komu mér á óvart. Árið 2016 voru skráðir 27.562 farþegar í ferðum til Viðeyjar. Árið 2025 voru þeir aðeins 10.049. Fækkunin nemur nær 64 prósentum á níu árum. Það jafngildir tæplega 28 gestum á dag að meðaltali, þótt vitaskuld séu heimsóknirnar flestar yfir sumarmánuðina. Fækkunin hófst meira að segja fyrir COVID. Árið 2019 voru gestirnir komnir niður í rúmlega 21 þúsund. Eftir faraldurinn hefur aðsóknin ekki náð sér á strik. Ég hef leitað skýringa á þessari fækkun en ekki fengið fullnægjandi svör. Líkast til hefur samdráttur í viðburðahaldi haft sitt að segja. Sérstaða Viðeyjar Í Viðey var um aldir búskapur og atvinnulíf. Þar var klaustur, síðar umfangsmikil útgerð og þorp með íbúðarhúsum og skóla. Á fyrri hluta síðustu aldar bjó þar fólk sem átti sitt daglega líf, atvinnu og samfélag í eyjunni. Er það ekki dálítið dapurlegt að eyja, stundum kölluð perlan í Kollafirði, sem eitt sinn var lifandi byggð, skuli nú vera án fastra íbúa, svo nærri borg sem hefur vaxið og þanist út í allar áttir? Það vantar ekki að Viðey sé mærð og kostum hennar haldið á lofti í borgarkerfinu. En lítið hefur orðið úr hugmyndum um að skapa þar nýtt líf. Í nýlegri skýrslu sviðsstjóra Reykjavíkurborgar er sérstaklega tekið fram að tillögur um framtíð Viðeyjar hafi verið „nokkuð hófstilltar“. Þær hafi ekki gert ráð fyrir umfangsmikilli uppbyggingu eða nýrri byggð. Áherslan hafi verið á að varðveita sérstöðu eyjarinnar sem friðsæla náttúru-, sögu- og menningarperlu. Það gleymdist að bæta við að sú varðveisla minnir um sumt á nálgunina við Surtsey: að þangað komi helst enginn. Fullar skúffur af hugmyndum Fulltrúa Reykjavíkurborgar hefur ekki skort hugmyndir um Viðey. Árið 2001 var mótuð stefna um framtíð eyjarinnar. Árið 2024 var skipaður nýr stýrihópur sem skilaði tillögum í desember 2025. Þar var meðal annars lagt til að bæta aðgengi, efla fræðslu og menningarstarfsemi, nýta húsin betur og gera Viðey að eftirsóknarverðari áfangastað. Borgarráð samþykkti að láta greina lagalegar og fjárhagslegar forsendur tillagnanna. En í skýrslu sviðsstjóra frá september síðastliðnum kemur fram að ýmsar hugmyndir hafi ekki verið útfærðar frekar og fjármögnun sé óleyst. Viðhald sögufrægra húsa sé orðið aðkallandi, meðal annars vegna lagna og öryggiskerfa. Kostnaður við tilteknar úrbætur í aðgengismálum er metinn á hundruð milljóna króna. Þá hefur enn ekki verið gert deiliskipulag fyrir Viðey. Þessi saga er raunar orðin býsna gömul. Árið 2005 var bent á það í borgarráði að farþegum Viðeyjarferjunnar hefði fækkað verulega og að lítið hefði orðið úr tillögum um framtíð eyjarinnar. Rúmlega tuttugu árum síðar erum við enn að ræða sama vandann. Þegar ríkið færði Reykjavíkurborg eignarhluta sinn í Viðey að gjöf árið 1986 fylgdu skýr skilyrði. Borgin skyldi annast og kosta verndun minjanna. Lögin gerðu jafnframt ráð fyrir að ríkið gæti fengið eignarhlutann endurgjaldslaust til baka ef borgin hætti að sinna þeim skyldum. Nú, fjörutíu árum síðar, kemur fram í skýrslu borgarinnar að viðhald sögufrægra bygginga í Viðey sé orðið aðkallandi. Það vekur óhjákvæmilega spurningar um hvernig staðið hefur verið að viðhaldinu og hvort skuldbindingarnar hafi verið uppfylltar með fullnægjandi hætti. Þáverandi menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, talaði á sínum tíma um að gera Viðey að fólkvangi og útivistarsvæði borgarbúa. Hefur sú framtíðarsýn ræst? Golfvöllur eða Manhattan? Það er gömul hugmynd og ný að koma fyrir átján holu golfvelli í Viðey. Helgi heitinn Pétursson lagði til dæmis fram tillögu árið 2000 um að kanna þann möguleika og fékk hana samþykkta í borgarráði. Hugmyndin mætti andstöðu í menningarmálanefnd, meðal annars vegna þess að fornleifar höfðu þá ekki verið skráðar með fullnægjandi hætti! Árið 2006 tóku nemendur við Háskólann á Bifröst hugmyndina til skoðunar og könnuðu rekstrargrundvöll golfvallar í Viðey. Niðurstaða þeirra var sú að völlurinn gæti verið fjárhagslega hagkvæmur. Ég hef hins vegar ekki fundið gögn sem sýna að borgaryfirvöld hafi síðan látið fara fram heildstæða rannsókn á rekstri og skipulagslegum forsendum golfvallar. Þessi hugmynd er alls ekki fráleit. Golfíþróttin hefur vaxið gríðarlega á Íslandi á undanförnum árum og víða eru biðlistar eftir aðild að golfklúbbum á höfuðborgarsvæðinu. Nýr golfvöllur í Viðey gæti orðið spennandi kostur og glæsilegra klúbbhús en Viðeyjarstofu væri vandfundið! Golfvöllur gæti skapað alveg nýtt tilefni til að sækja eyjuna. Hann gæti aukið eftirspurn eftir ferjusiglingum og þjónustu og skapað starfsemi sem væri ekki bundin við einstaka viðburði. Golf er auk þess fremur hljóðlát íþrótt. Vel skipulagður golfvöllur gæti hugsanlega farið saman við gönguleiðir, náttúruskoðun og friðsæld eyjarinnar. Það þyrfti þó að rannsaka vandlega, ekki síst með tilliti til fuglalífs, fornminja og landslags. Og ef menn vilja hugsa stórt mætti auðvitað ganga miklu lengra. Hvers vegna ekki að gera Viðey að Manhattan Reykjavíkur, reisa þar íbúðarbyggð og tengja eyjuna við borgina með brú eða jarðgöngum? Slík hugmynd er mér vissulega fjarlægari en golfvöllurinn. Hún myndi kalla á grundvallarbreytingar á ásýnd og hlutverki eyjarinnar, auk gríðarlegra fjárfestinga. En hún minnir á að framtíð Viðeyjar þarf að ræða og að grípa þarf til markvissra aðgerða áður en hún verður einungis augnayndi í fjarska. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Viðey Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar