Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. júní 2026 23:43 Fulltrúar flokkanna fjögurra. Norðurþing Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsóknarflokkur og Óskalisti hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í sveitarstjórn Norðurþings. Málefnasamningur var undirritaður í dag.
Í honum kemur fram að sveitarstjóri verði faglega ráðinn. Ákvörðun um ráðningu sveitarstjóra verði tilkynnt síðar. Katrín Sigurjónsdóttir hefur gegnt starfi sveitarstjóra síðustu ár og var hún fagráðin. Fram kemur í tilkynningu að málefnasamningur framboðanna sé grundvallaður á stefnuskrám þeirra fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026. Lögð verði sérstök áhersla á aðhald í rekstri, atvinnuuppbyggingu, farsæld og aðstæður barna og ungmenna í störfum meirihlutans. Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, verður forseti sveitarstjórnar og Kjartan Páll Þórarinsson, oddviti Samfylkingarinnar, verður formaður byggðarráðs. „Ég setti mér það markmið þegar ég gaf kost á mér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins að flokkurinn yrði í þeirri stöðu að loknum kosningum að geta valið með hverjum við mundum vinna í meirihluta og jafnframt að mynda sterkan meirihluta til að koma okkar málum og góðum málum samstarfsflokka í framkvæmd á komandi kjörtímabili. Kjósendur færðu okkur stóra áskorun með niðurstöðum kosninga í Norðurþingi þar sem framboðin hafa frekar jafnt fylgi og ýmist með einn eða tvo fulltrúa í sveitarstjórn,“ er haft eftir Helenu Eydísi Ingólfsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. „Samstarf okkar við Framsóknarflokkinn í meirihluta á nýafstöðnu kjörtímabili var farsælt og mikill samhljómur var með málefnaskrám Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í aðdraganda kosninga. Við höfum átt gott samstarf við fulltrúa Samfylkingarinnar í meiri- og minnihluta á undanförnum kjörtímabilum ásamt því að áherslur þeirra á aðstæður barna og ungmenna samræmast okkar áherslum. Óskalistinn kom nýr inn í sveitarstjórn í kosningunum í maí. Þau háðu heiðarlega og fallega kosningabaráttu, með ákalli um betra samtal á milli byggðalaga sveitarfélagsins, sem okkur þykir mikilvægt að bregðast við.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Norðurþing Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Framsóknarflokkurinn Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira