Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. júní 2026 15:09 Heiða afhenti Hildi lyklana. Vísir/Lýður Valberg Nýr borgarstjóri Reykjavíkur segir nýja skrifstofu góðan grundvöll til að bretta upp ermar og hefjast handa. Hún muni ábyggilega leita ráða hjá fráfarandi borgarstjóra. Breytingar eru í vændum. „
Það er mjög ánægjuleg tilfinning, auðvitað sérstök og þessu fylgir mikil ábyrgð og ég finn fyrir því. Ég mun gera mitt besta til að standa undir þeirri ábyrgð,“ segir Hildur Björnsdóttir, nýr borgarstjóri Reykjavíkurborgar. Heiða Björg Hilmisdóttir, fyrrverandi borgarstjóri, afhenti Hildi lyklana að skrifstofu borgarstjóra eftir fyrsta borgarstjórnarfundinn þar sem Hildur hlaut kjör. Henni leist vel á nýju skrifstofuna sem væri með hið fegursta útsýni. „Mér skilst að borgarstjóri velji alltaf sína eigin myndlist hérna inn, það er aðallega það en annars sýnist mér vera mjög snyrtilegt hérna inni. Góður grundvöllur til að bretta upp ermar og byrja að vinna,“ segir Hildur. Henni þótti vænt um þau fallegu orð sem Heiða lét falla um hana við lyklaskiptin. „Við Heiða höfum starfað saman í borgarstjórn í átta ár og þvert á það sem fólk telur þá verðum við oft vinir þvert á meirihluta og minnihluta og eigum gott samstarf og gott spjall við kaffivélina. Ég hugsa að við munum eiga áfram gott samtal og ég mun örugglega leita til hennar um ýmislegt sem kemur upp núna í starfinu fram undan. Hún er auðvitað reynslunni ríkari eftir sitt starf sem borgarstjóri.“ Hildur hyggst verða afar vandvirkur borgarstjóri sem starfar í þágu allra Reykvíkinga. Þá stefnir hún að því að sýna öllum virðingu, þvert á meiri- og minnihluta. Breytingar í vændum Á fyrsta fundi kjörtímabilsins var meðal annars ákveðið að skoða að lengja opnunartíma sundlauga, stofna þrjú ný ráð og sömuleiðis leggja niður stafrænt ráð auk þess sem deiliskipulag við Suðurlandsbraut verður endurskoðað. „Mér fannst fundurinn ganga vel. Það er auðvitað gríðarleg nýliðun í borgarstjórn, sextán af 23, þannig að við erum svolítið að finna taktinn,“ segir Hildur. „Það er góður andi í hópnum og vilji til að bæta starfsumhverfið og menninguna. Það eru tækifæri fólgin í því að hafa svona nýja fulltrúa, þá getum við búið til okkar eigin vinnumenningu í kringum borgarstjórn og við viljum auka traust á okkar störf. Við þurfum að byrja á okkur og hugsa sjálf hvernig við getum bætt okkur.“ Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, furðaði sig á því að flokkarnir sem lofuðu að minnka báknið vilji fjölga ráðum. Hildur segir að frekari breytingar séu í vændum sem verða kynntar á næstu vikum. „Þær breytingar sem við gerum í dag er að leggja niður stafrænt ráð, við tökum leikskólamálin út úr skólaráðinu. Það er þungt ráð með langa fundi,“ segir hún. Með þessu sé ætlunin að leggja sérstaka áherslu á leikskóla- og daggæslumálin. Menningar- og íþróttaráði var breytt í íþrótta- og tómstundaráð en samhliða því var stofnað sérstakt menningarráð. Að lokum var stofnað öldungaráð. „Við munum kynna frekari breytingar á næstunni, við ætlum að yfirfara samþykkt um kjör og starfsaðstöðu borgarfulltrúa og það er margt sem má laga.“
Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Reykjavík Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira