Liðbólgusjúkdómar – fræðsla skiptir máli Katrín Þórarinsdóttir skrifar 31. maí 2026 14:30 Liðbólgur spyrja ekki að aldri Gigtarsjúkdómar eru margvíslegir með mismunandi orsakir og horfur. Hluti þeirra eru svokallaðir liðbólgusjúkdómar en undir þá flokkast meðal annars liðagigt (iktsýki), sóragigt, hryggikt og fylgigigt. Áætla má að um 2-4% af íslensku þjóðinni sé með einhvern af þessum sjúkdómum. Af hverju fólk þróar með sér slíkan sjúkdóm er óþekkt en erfðir skipta máli sem og umhverfisþættir og eru reykingar þekktasti orsakavaldurinn af þeim. Gigtarsjúkdómar eru almennt algengari í konum. Liðagigt leggst frekar á konur en karla en í hryggikt, sóra- og fylgigigt eru jafnari kynjahlutföll. Fólk á öllum aldri getur veikst af liðbólgusjúkdómum en það er rótgróinn misskilningur í samfélaginu að einungis eldra fólk veikist af gigt. Dæmi um liðbólgusjúkdóm í ungu fólki er hryggikt þar sem að einstaklingar byrja að veikjast fyrir fertugt. Meira en liðbólgur Þessir fyrrnefndu liðbólgusjúkdómar eru allir afleiðing sjálfsofnæmis þar sem að ónæmiskerfið ræðst á liði og aðra vefi eins og um væri að ræða aðskotahlut eða sýkil. Þetta veldur bólgum í liðum og oft í öðrum vefjum eða líffærum. Ekki er hægt að lækna liðbólgusjúkdóma en oftast er hægt að halda niðri sjúkdómsvirkni. Á heildina litið þá hefur tilkoma sjúkdómshemjandi gigtarlyfja síðustu áratugi gjörbreytt horfum einstaklinga með liðbólgusjúkdóma til hins betra. Þrátt fyrir bættar horfur er áfall fyrir einstakling að greinast með langvinnan sjúkdóm sem getur haft áhrif á lífsgæði og vinnugetu. Liðbólgusjúkdómar eru ekki bara bólgur í líkamanum. Fólk finnur fyrir einkennum, sem ekki sjást utan á þeim, eins og miklum morgunstirðleika, þreytu, svefntruflunum og verkjum um allan líkamann. Þess vegna getur verið erfitt að útskýra fyrir samferðarfólki af hverju erfitt er að framkvæma verk sem áður voru auðveld. Fræðsla er nauðsynlegur grunnur meðferðar Lífsstíll skiptir miklu máli fyrir heilsu og horfur fólks með liðbólgusjúkdóma. Því er mikilvægt að fræða um heilbrigðar lífsvenjur til dæmis reglubunda hreyfingu, heilsusamlegt mataræði, góðar svefnvenjur og aðra þætti sem geta haft áhrif á horfur fólks. Lítið hefur verið um íslenskt fræðsluefni um liðbólgusjúkdóma en Gigtarfélagið og starfsfólk göngudeildar gigtar á Landspítala hefur nú í sameiningu gefið út bækling og útbúið námskeið fyrir nýgreinda með liðbólgusjúkdóma. Námskeiðið hefst í byrjun júní og samanstendur af þremur fræðslukvöldum m.a. um meðferðamöguleika og lífsstíl. Okkar von er að þetta fræðsluátak stuðli að bættu lífi fólks með sjúkdómana og auki vitund almennings um gigt. Höfundur er varaformaður Gigtarfélagsins og yfirlæknir gigtarlækninga á Landspítala Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar