Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann Lovísa Arnardóttir skrifar 31. maí 2026 13:19 Björg segir að hinsegin fánanum verði sannarlega flaggað við ráðhúsið af réttu tilefni. Vísir/Vilhelm og Sigurjón Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og tilvonandi forseti borgarstjórnar, segir nýjan meirihluta ekki ætla að banna hinsegin fánann. Honum, og erlendum fánum, verði flaggað þegar tilefni sé til. Hún segir að utanríkismálum eigi að sinna í utanríkisráðuneytinu. Borgarfulltrúar eigi að vera með fókus á Reykjavík.
Rætt var við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Vinstrisins, í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær, sem gagnrýndi harðlega fyrstu mál nýs meirihluta í borginni, sem meðal annars varða niðurfellingu reglna um notkun fána og stofnun öldungaráðs. Flöggun missi marks Björg segir í færslu um á Facebook-síðu sinni um fánabreytingartillöguna að samkvæmt henni sé gert ráð fyrir að alla jafna blakti íslenski fáninn við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar sem eru Ráðhúsið, Höfði og Höfðatorg við Borgartún. „Það er bæði táknrænt og fallegt að sýna samstöðu með því að flagga erlendum þjóðfánum en missir marks þegar borgarstjórn fær heimsmálin í fangið - það er flókið og tímafrekt að draga línuna um það hvaða erlendum fánum eigi að flagga hvenær og hversu lengi. Utanríkismálum er sinnt í utanríkisráðuneytinu þar sem afstaða, samstaða og hjálparstarf Íslands kemur skýrt fram,“ segir Björg og að hennar vilji sé að borgarfulltrúar Viðreisnar séu með fókus á borgina sjálfa og verji sínum tíma í dag. „Með þessari tillögu er ekki verið að banna flöggun á hinsegin fánum. Við ætlum að halda áfram þeirri flottu hefð að flagga hinsegin fánanum á Pride hátíðinni og þegar það á við - sem og að flagga fánum erlendra ríkja þegar fulltrúar þeirra heimsækja borgina eða á þjóðhátíðardögum,“ segir Björg. Lengja opnunartíma sundlauga „Fyrsti borgarstjórnarfundur nýrrar borgarstjórnar er á þriðjudag. Ein af tillögum meirihlutans er stofnun stýrihóps um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu. Stórt mál sem við í Viðreisn töluðum fyrir í kosningabaráttunni. Ná meiri peningum útúr stóru borgarkerfinu til þess að setja í grunnþjónustu og innviði. Minna kerfi - meiri hverfi,“ segir Björg um málið í færslu sem hún birti í gær en samkvæmt tillögunni á innleiðingu verkefna að vera lokið innan tveggja ára, í júní 2028. Á fyrsta fundi borgarstjórnar hefur nýr meirihluti einnig lagt fram tillögu um lengri opnunartíma sundlauga, um rekstur leikskóla og daggæslu, endurskoðun samgöngusáttmálans og um endurskoðun deiliskipulags við Suðurlandsbraut.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Vinstrið Sund Skipulagsmál Borgarlína Hinsegin Mannréttindi Íslenski fáninn Tengdar fréttir Ari Edwald enn undir feldi Ari Edwald oddviti Miðflokksins í borginni hefur ekki enn gert upp hug sinn varðandi tillögu Hildar Björnsdóttur, verðandi borgarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um að hann taki að sér stjórnarformennsku í Orkuveitunni. 29. maí 2026 15:56 Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Fleiri fréttir „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Sjá meira
Ari Edwald enn undir feldi Ari Edwald oddviti Miðflokksins í borginni hefur ekki enn gert upp hug sinn varðandi tillögu Hildar Björnsdóttur, verðandi borgarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um að hann taki að sér stjórnarformennsku í Orkuveitunni. 29. maí 2026 15:56