Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. maí 2026 17:37 Unnur Lilja fær að skipta búi Play. Vísir Landsréttur hefur fellt úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur úr gildi sem taldi Unni Lilju Hermannsdóttur vanhæfa til að gegna starfi skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play.
Málið hófst eftir að Lífeyrissjóðurinn Birta, sem var stór hluthafi og skuldabréfaeigandi hjá flugfélaginu, gerði kröfu um að Unnur Lilja ætti að víkja úr starfi skiptastjóra vegna meints vanhæfis. Unnur Lilja var skipuð skiptastjóri ásamt Arnari Þór Stefánssyni lögmanni. Eftir skipunina kom í ljós að eiginmaður Unnar, Tómas Magnús Þórhallsson, er einn eigenda lögmannsstofunnar BBA/Fjeldco, sem var lögfræðilegur ráðgjafi Play þegar flugfélagið kláraði jafnvirði 2,8 milljarða króna útboð á breytanlegum skuldabréfum fáeinum vikum fyrir fall flugfélagsins. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði 19. febrúar að víkja ætti Unni Lilju úr starfi skiptastjóra, úrskurði sem hún áfrýjaði til Landsréttar. Landsréttur felldi hins vegar úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur úr gildi og telur Unni Lilju hæfa til að vera annar skiptastjóri þrotabúsins. Dómurinn taldi að Unnur Lilja hefði ekki nægileg persónuleg tengsl við stjórnarmenn eða daglega stjórnendur Play sem gætu skapað vanhæfi. Auk þess var ekki ljóst, þrátt fyrir að lögmannsstofa eiginmanns hennar hefði komið að verkefninu, hvort að hann hefði sjálfur komið að þeirri vinnu. Auk þess taldi Birta lífeyrissjóður að lögmannsstofan hefði gert mistök við verðsetningu eða ráðgjöf tengda skuldabréfaútboðinu og því hefði stofan hagsmuna að gæta. Dómurinn taldi þá skoðun lífeyrissjóðsins einungis vangaveltur og mætti vanhæfi ekki byggjast á getgátum. Flugfélagið Play var úrskurðað gjaldþrota þann 29. september 2025.
Play Gjaldþrot Play Dómsmál Lögmennska Flug Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira