„Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Árni Sæberg skrifar 20. maí 2026 11:25 Sigurður Hannesson er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Vísir/Vilhelm Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir stöðu efnahagskerfisins undirstrika að Seðlabankinn megi ekki standa einn í baráttunni við verðbólguna. Ríki, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins þurfi öll að leggjast á eitt til að ná niður verðbólgu og skapa skilyrði fyrir lægri vexti.
Í pistli á vef Samtaka iðnaðarins segir að samtökin hafi kallað eftir þjóðarsátt, sem sé bæði nauðsynleg og möguleg gegn þrálátri verðbólgu og í því samhengi þurfi stjórnvöld að tryggja fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi fyrirtækja og halda aftur af íþyngjandi ákvörðunum. „Ákvörðun Peningastefnunefndar Seðlabankans um að hækka vexti þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila. Hún var þó viðbúið viðbragð Seðlabankans við þrálátri og versnandi verðbólguhorfum. Það eru mikil vonbrigði að þrátt fyrir háa vexti spái Seðlabankinn nú yfir 5% verðbólgu að meðaltali á árinu á sama tíma og hagkerfið er að kólna, hagvöxtur veikist og atvinnuleysi eykst. Þessi staða undirstrikar að Seðlabankinn má ekki standa einn í baráttunni við verðbólguna. Ríki, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins þurfa öll að leggjast á eitt til að ná niður verðbólgu og skapa skilyrði fyrir lægri vexti,“ er haft eftir Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra SI. Vilja að atvinnustefnunni sé fylgt eftir Þá segir í pistlinum að til þess að skapa skilyrði fyrir aukinn hagvöxt, lægra atvinnuleysi og lægri vexti þurfi að styrkja framboðshlið hagkerfisins, auka framleiðni og efla verðmætasköpun. Atvinnustefna stjórnvalda miði einmitt að því og því skipti miklu að henni verði fylgt fast eftir. Iðnaðurinn gegni lykilhlutverki við þessar aðstæður. Í Peningamálum, sem gefin voru út í morgun, komi fram að betri horfur í útflutningsgreinum, meðal annars vegna hærra álverðs og aukinna umsvifa gagnavera, styðji við þjóðarbúið og viðskiptakjör. Á sama tíma séu háir vextir, þröng fjármálaskilyrði og óvissa farin að draga úr fjárfestingu og húsnæðisuppbyggingu. Því þurfi að tryggja að ákvarðanir stjórnvalda styðji við fjárfestingu, uppbyggingu og aukna framleiðslugetu í stað þess að auka kostnað og óvissu. „Sérstaklega skiptir máli að opinber fjármál styðji við hjöðnun verðbólgu. SI telja að hægt væri að gera betur í fjármálum ríkis og sveitarfélaga með auknu aðhaldi og með því að beina fjármagni úr almennum rekstri ríkisins yfir í stefnumarkandi verkefni sem styrkja framleiðni þjóðarbúsins. Samtökin hafa í þessu sambandi gert athugasemdir við hvernig aðhaldi á að ná fram í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem nú er til meðferðar hjá Alþingi. Þegar rýnt er í áform um bata á afkomu ríkissjóðs í áætluninni má sjá að hann byggist að of miklu leyti á aukinni skattheimtu, fremur en á raunverulegri hagræðingu, aðhaldi eða skýrri forgangsröðun á útgjaldahlið ríkisins.“ Deila áhyggjum fjármálaráðs Hvað það varðar deili SI áhyggjum fjármálaráðs að í ljósi mikillar útgjaldaaukningar ríkisins sé ekki fulljóst að umtalsvert aðhald felist raunverulega í fjármálaáætluninni. Fjármálaráð telji auk þess að fjármálaáætlunin styðji einfaldlega ekki nægilega vel við aðgerðir Seðlabankans til að ná verðbólgu niður og bendi sömuleiðis á að mörg stór útgjaldamál gætu verið talsvert vanmetin í áætluninni. Þegar útgjöld hins opinbera halda áfram að vaxa að raungildi sitji fyrirtækin og heimilin eftir með reikninginn, bæði í formi viðvarandi hárra stýrivaxta og beinna skattahækkana. „Að sækja ríkisfjármálalegt „aðhald“ beint í vasa atvinnulífs og almennings vegur óhjákvæmilega að fjárfestingargetu, nýsköpun og samkeppnishæfni fyrirtækja og er á skjön við hina nýju atvinnustefnu stjórnvalda. Ísland er nú þegar háskattaríki í alþjóðlegum samanburði. Ríkið þarf að beina sjónum sínum inn á við; að aukinni skilvirkni í ríkisrekstrinum, einföldun regluverks og markvissri afhúðun regluverks.“ Lykillinn að raunverulega sjálfbærum hagvexti og bættum lífskjörum felist í því að bæta samkeppnishæfni fyrirtækja, auka verðmætasköpun og framleiðni en ekki í aukinni skattheimtu.
Efnahagsmál Seðlabankinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Verðlag Rekstur hins opinbera Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Lífeyrissjóðirnir alltumlykjandi á markaðnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira