Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. maí 2026 12:02 Einar E. Einarsson oddviti Framsóknar í Skagafirði segir það sæta tíðindum að ekki hafi verið leitað til Framsóknar um myndun meirihluta. Meirihlutaviðræður eru hafnar á þó nokkrum stöðum, meðal annars á Akureyri og í Skagafirði, þar sem útlit er fyrir að Framsóknarflokkurinn verði ekki í meirihluta í fyrsta sinn um árabil. Oddviti Framsóknar segir tíðindin koma sér í opna skjöldu.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk langflesta sveitarstjórnarfulltrúa kjörna á landsvísu af þeim flokkum sem buðu fram undir eigin merkjum. Flokkurinn er með 125 fulltrúa og fjölgaði þeim um fimmtán. Framsókn er með 55 fulltrúa og fækkaði þeim um fimm á meðan Samfylkingin og Miðflokkur bættu bæði við sig fulltrúum á landsvísu, Samfylkingin með 38 og Miðflokkur með 23. Sjálfstæðisflokkurinn fékk hreinan meirihluta víða líkt og í Garðabæ, Kópavogi, Ölfusi, Vestmannaeyjum og Rangárþingi eystra. Kennir ýmissa grasa víða Víða um land héldu meirihlutar líkt og meirihlutar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í Múlaþingi og í Fjarðabyggð og meirihluti Sjálfstæðismanna í Árborg. Annars staðar féllu meirihlutar líkt og í Norðurþingi, Borgarbyggð og í Reykjanesbæ þar sem hafnar eru meirihlutaviðræður Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Sömu sögu er að segja af Akureyri þar sem meirihlutaviðræður Sjálfstæðisflokks, L-lista og Framsóknar standa nú yfir og kæmi Framsókn þar inn í meirihluta í stað Miðflokks. Framsóknarmenn úti í kuldanum í Skagafirði Í Skagafirði eru hafnar óformlegar viðræður Sjálfstæðisflokks og Byggðalista sem bætti við sig fylgi um helgina. Framsóknarmenn hafa undanfarin ár verið í meirihluta með Sjálfstæðismönnum, og og er því útlit fyrir að þeim verði skipt út fyrir Byggðalista jafnvel þó meirihlutinn haldi velli. Einar E. Einarsson oddviti Framsóknar segir að ef af verði, séu það mikil tíðindi enda flokkurinn verið í meirihluta í tuttugu ár. „Þetta er allavega ekki niðurstaðan sem maður vonaðist eftir, það er alveg hægt að segja það. En það verður bara að koma í ljós hvað kemur út úr þeirra viðræðum en það var óvænt að heyra það að þeir vildu ekki einu sinni setjast niður og ræða hvort það sé grundvöllur fyrir áframhaldandi samstarfi eða ekki.“ Einar segir ekki eitthvað eitt sem valdi því að ekki hafi verið leitað til Framsóknar. „Við erum búin að vera náttúrulega lengi í meirihluta og það hefur verið margt í gangi í sveitarfélaginu, við höfum framkvæmt mjög mikið og kannski einhverjir þreyttir á því að Framsókn sé svona mikið um völd.“ Framsókn muni leggja sitt af mörkum til bæjarstjórnar, utan eða innan meirihluta. „Til þess erum við kosin, við erum jú með ágætis kosningu og sama hlutfall atkvæða og Sjálfstæðisflokkurinn var með þegar við mynduðum meirihluta með honum síðast. Og við erum með flottan lista af fólki sem bara brennur fyrir málefnum fjarðarins og við förum náttúrulega bara full af krafti inn í sveitarstjórn og nefndir og höldum áfram að vinna að hag Skagafjarðar.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skagafjörður Framsóknarflokkurinn Akureyri Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Samfylkingin Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira