Félögin á markaði að jafnaði undirverðlögð um meira en fjórðung
Markaðsvirði mikils meirihluta fyrirtækja í Kauphöllinni er vanmetið miðað við nýjustu verðmöt, að sögn hlutabréfagreinanda, og hefur þetta vanmat aukist nokkuð að undanförnu þótt almennt hafi verið gert ráð fyrir þyngri róðri í rekstri félaga á þessu ári en áður.
Tengdar fréttir
Verðmat Síldarvinnslunnar hækkar verulega og væntingar um metár í tekjum
Horfur í sjávarútvegi á þessu ári eru „mjög góðar“, sem litast meðal annars af væntingum um áframhaldandi hátt afurðaverð samhliða sterkri eftirspurn, og hafa greindur því hækkað verðmat sitt á Síldarvinnslunni um nærri fimmtung. Hagfelld ytri skilyrði og ágætis loðnuvertíð gæti orðið til þess að 2026 verði metár í tekjum sjávarútvegsfyrirtækja en rekstrarhagnaðarhlutföll eru samt líkleg til að lækka vegna hærri veiðigjalda.
Afkoman yfir væntingum en horfur „ekki góðar“ vegna hærri eldsneytiskostnaðar
Afkoma Icelandair á fyrsta fjórðungi var nokkuð yfir væntingum greinenda, meðal annars vegna eignasölu og lægri eldsneytiskostnaður en óttast var, og batamerki er að sjá í rekstri félagsins. Áframhaldandi hátt raungengi og vaxandi kostnaður vegna olíuverðshækkana setur hins vegar mark sitt á horfurnar inn í árið og útlit er fyrir lakari afkomu á öðrum fjórðungi en á sama tíma í fyrra þótt einingatekjur muni enn aukast.
Arðsemi Kviku nálgast markmið með væntanlegri stórri arðgreiðslu
Afkoma Kviku batnaði nokkuð á fyrsta fjórðungi, einkum drifin áfram af auknum vaxtatekjum samhliða kröftugum lánavexti í Bretlandi og lægri fjármagnskostnaði, og að teknu tilliti til væntanlegrar stórrar arðgreiðslu til hluthafa er bankinn að nálgast markmið sitt um tuttugu prósenta arðsemi. Bankastjóri Kviku segir mikinn samdrátt í veltu á hlutabréfamarkaði vera „áhyggjuefni“ og þá héldu lífeyrissjóðir áfram að taka eignir sína úr stýringu bankans.