„Elsku pabbi, guð varðveiti þig og blessi“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. maí 2026 14:51 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur misst föður sinn, Ástvald Einar Steinsson. Vísir/Arnar Ástvaldur Einar Steinsson, sjómaður og netagerðarmaður, er látinn, 95 ára að aldri. Inga Sæland, dóttir hans og mennta- og barnamálaráðherra, greindi frá andláti Ástvaldar í hjartnæmu myndbandi á Facebook fyrr í dag. „
Elsku hjartans vinir. Pabbi minn, hann ákvað að yfirgefa þessa jarðvist núna á miðvikudaginn var. Hann var ekkert að velta fyrir sér hvort það væri einhver kosningabarátta eða eitthvað, hann var sæll að fá að fara,“ segir Inga Sæland í myndbandinu. Ástvaldur Einar Steinsson fæddist 21. ágúst 1930, var lengst af sjómaður og síðar netagerðarmaður á Ólafsfirði. Ástvaldur lætur eftir sig fyrrverandi eiginkonuna, Sigríði Sæland Jónsdóttur og þrjú börn: Jón Núma Ástvaldsson, Júlíönu Ástvaldsdóttur og Ingu Sæland. Sigurjón Helgi Ástvaldsson, næstelsti sonur Ástvaldar og Sigríðar, drukknaði í óveðri við Siglunes árið 1988, einungis 31 árs gamall. Inga segist hafa verið hjá föður sínum undanfarið og hyggst hún ekki koma aftur til Reykjavíkur fyrr enn hún hefur lokið þessum áfanga „Hér vildi hann vera og hvergi annars staðar,“ segir Inga í myndbandinu og fer síðan með nokkrar ljóðlínur: „Í kyrrð og fegurð fjalla á ég heima, þar finnst mér sál mín öðlast djúpan frið, og hvergi er betra amstri öllu að gleyma, né efla tengsl við æðri máttarsvið.“ „Elsku pabbi, guð varðveiti þig og blessi. Takk fyrir allt og allt, ég veit að það eru margir í sumarlandinu sem hafa tekið þér opnum örmum,“ segir Inga svo í lok myndbandsins.
Andlát Flokkur fólksins Fjallabyggð Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Loksins slíðrað sverðin Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Loksins slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Sjá meira