Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kolbeinn Tumi Daðason og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa 13. maí 2026 17:14 Oddvitarnir í Reykjavík í sjónvarpssal. Vísir/Vilhelm Oddvitar níu framboða í Reykjavík mættu í kappræður á Sýn og Vísi með gestum í sjónvarpssal í kvöld. Fréttastofa fylgdist með í vaktinni á Vísi. Elísabet Inga Sigurðardóttir og Sunna Sæmundsdóttir stýrðu kappræðunum þar sem oddvitarnir voru krafðir um afstöðu í stóru málunum í borginni en líka umtöluðum samfélagsmálum. Þá tók Bjarki Sigurðsson atvinnuviðtal hvern og einn oddvita. Við rifjuðum upp hápunkta síðasta árs í snaggaralegum annál og birtum ylvolgar tölur úr nýrri könnun Maskínu. Oddvitar brugðust við tölunum í beinni. Í fyrri hluta atvinnuviðtalanna komu hraðaspurningar við sögu þar sem Bjarki spurði frambjóðendur spurninga sem tengdust borginni og almennri þekkingu. Frammistaða oddvitanna í hraðaspurningunum var alla vega. Þá fór fram löng umræða um samgöngumál þar sem borgarlínan, samgöngusáttmáli, fjölgun og fækkun akreina, Sundabraut og ýmislegt annað kom við sögu. Umræðurnar spönnuðu rúman hálftíma. Þá tókust oddvitarnir á um leikskólamálin þar sem karpað var um fjárveitingar til leikskólanna, bágar starfsaðstæður leikskólastarfsmanna, heimgreiðslur, vinnustaðaleikskóla og fleira. Rekstur borgarinnar var sömuleiðis til umræðu en þar voru oddvitar ósammála um ágæti borgarstjórnar þegar kæmi að fjármálum borgarinnar á núliðnu kjörtímabili. Stakar klippur má nálgast á sjónvarpsvef Vísis þangað til. Ef vaktin uppfærist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.
Elísabet Inga Sigurðardóttir og Sunna Sæmundsdóttir stýrðu kappræðunum þar sem oddvitarnir voru krafðir um afstöðu í stóru málunum í borginni en líka umtöluðum samfélagsmálum. Þá tók Bjarki Sigurðsson atvinnuviðtal hvern og einn oddvita. Við rifjuðum upp hápunkta síðasta árs í snaggaralegum annál og birtum ylvolgar tölur úr nýrri könnun Maskínu. Oddvitar brugðust við tölunum í beinni. Í fyrri hluta atvinnuviðtalanna komu hraðaspurningar við sögu þar sem Bjarki spurði frambjóðendur spurninga sem tengdust borginni og almennri þekkingu. Frammistaða oddvitanna í hraðaspurningunum var alla vega. Þá fór fram löng umræða um samgöngumál þar sem borgarlínan, samgöngusáttmáli, fjölgun og fækkun akreina, Sundabraut og ýmislegt annað kom við sögu. Umræðurnar spönnuðu rúman hálftíma. Þá tókust oddvitarnir á um leikskólamálin þar sem karpað var um fjárveitingar til leikskólanna, bágar starfsaðstæður leikskólastarfsmanna, heimgreiðslur, vinnustaðaleikskóla og fleira. Rekstur borgarinnar var sömuleiðis til umræðu en þar voru oddvitar ósammála um ágæti borgarstjórnar þegar kæmi að fjármálum borgarinnar á núliðnu kjörtímabili. Stakar klippur má nálgast á sjónvarpsvef Vísis þangað til. Ef vaktin uppfærist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sýn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Flokkur fólksins Píratar Sósíalistaflokkurinn Vinstri græn Vinstrið Samfylkingin Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira