Upplausn á Ártúnshöfða og þolinmæði á þrotum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 11. maí 2026 19:30 Aron Wei Quan rekstrarstjóri Fönix og talsmaður eigenda og rekstraraðila á Ártúnshöfða og Borgþór Stefánsson eigandi Vélsmiðjunnar Hörku og talsmaður fyrirtækja á Ártúnshöfða Vísir Framtíð um sextíu fyrirtækja og rekstraraðila á Ártúnshöfða er í lausu lofti vegna óvissu um lóðarleigusamninga. Talsmenn þeirra segja gríðarlega hagsmuni í húfi og fjölda starfa undir. Þeir kölluðu frambjóðendur á sinn fund í dag sem voru á einu máli um að staðan þyrfti að skýrast.
Fyrir um tveimur árum óskaði skrifstofa borgarstjóra og borgarritara eftir því að borgarráð heimilaði útgáfu tímabundinna lóðaleigusamninga á Ártúnshöfða því fjöldi þeirra væri útrunninn eða að renna út. Ekki væri tímabært að endurnýja samningana fyrr en nýtt deiliskipulag hefði tekið gildi sem er staðan enn í dag. Lóðaleigusamningar sem hafa verið endurnýjaðir eru ýmist til 2028, 2033 eða 2040. Um sextíu lóðir á Ártúnshöfða eru leigulóðir samkvæmt samningum við borgina. Borgin mun hins vegar greiða fyrir um hundrað lóðir á svæðinu þurfi fyrirtækin þar að víkja á næstu árum eða áratugum vegna komandi deiliskipulags. Fyrirtæki sem samþykktu á sínum tíma að greiða t.d. gatnagjöld eru meðal þeirra sem borgin mun greiða svokallað uppgreiðslugjald komi til þess að þau þurfi að víkja. Grafalvarleg staða Fyrirtækjaeigendur og rekstraraðilar á leigulóðunum hittu frambjóðendur í dag til að reyna að átta sig á afstöðu þeirra til málsins. „Hér hafa lóðaleigusamningar runnið út og við höfum ekki fengið endurýjun á þeim. Og sú endurnýjun sem hefur verið boðin er til þriggja ára eða ýmist til 2028, 2033 eða 2040 og án uppkaupsákvæða sem þýðir að menn standa frammi fyrir því að vera með verðlausa eign,“ segir Borgþór Stefánsson eigandi Vélsmiðjunnar Hörku og talsmaður fyrirtækja og rekstraraðila á Ártúnshöfða. Aron Wei Quan rekstrarstjóri Fönix er einnig talsmaður fyrirtækja og rekstraraðila á Ártúnshöfða. Hann tekur undir áhyggjur kollega síns. „Það er ekki hægt að selja eignir, það er erfitt að fara í fjárfestingar eða fara í fjármögnun. Hljóðið í fólki er mjög þungt. Við förum fram á að borgin semji við okkur til lengri tíma til að tryggja stöðugleika eða semji við okkur með uppkaupsákvæði svo hægt sé að tryggja verðmæti á svæðinu,“ segir Aron. „Það er búið að reyna ná sambandi við borgina í uppundir tvö ár, nú er þolinmæðin á þrotum,“ segir Borgþór. Allir frambjóðendur vilja leysa málið Frambjóðendur allra framboða í Reykjavík nema Viðreisnar mættu á fund með fyrirtækjum og rekstrareigendum á Ártúnsholti í dag vegna lóðaleigusamninga. Vísir/Lýður Frambjóðendum allra framboða var boðið á fund fyrirtækja og rekstrareigenda á Ártúnsholti í dag og mættu fulltrúar allra þeirra nema Viðreisnar. Fulltrúar frá meirihluta og minnihluta sem fréttastofa ræddi við í dag voru allir á einu máli um að það þyrfti að leysa úr málinu. „Þetta er mjög erfið staða sem mörg fyrirtæki eru hér í. Við þurfum að taka samtalið við þau og komast að því hvaða leið er fær fyrir þau því planið er ekki að keyra fyrirtækin í þrot,“ segir Alexandra Briem formaður borgarráðs og frambjóðandi Pírata. Frá fundinum í dag. „Það er fyrirhugað að gera mönnum að rýma sitt húsnæði og koma sér af lóðinni með eigin húsnæði án þess að fá neinar bætur fyrir. Þetta er algjörlega óboðleg staða og við stöndum með fyrirtækjunum hér með lausnir þeirra mála,“ segir Hildur Björnsdóttir frambjóðandi Sjálfstæðisflokks. „Gagnrýnin er alveg réttmæt og ég held að skipulegsyfirvöld og stjórnvöld megi setjast aðeins niður og skoða hvern samning fyrir sig og leggja þennan kapal til að eyða óvissu. Það er verkefni næsta kjörtímabils,“ segir Líf Magneudóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs og frambjóðandi Vinstrisins. Aðspurð hvort það hefði ekki mátt gera á síðustu kjörtímabilum svarar Líf: „Það er auðvitað búið að vera að vinna að þessu og undirbyggja þetta.“ Fundurinn var þétt setinn. „Þetta er bara lifandi dæmi um það hvernig skipulagsstefna borgarinnar er að ganga af atvinnulífinu dauðu. Hér eru fyrirtækjaeigendur í fullkominni óvissu, þeir geta ekki fengið lán út á eignir eða selt þær því verðlausar ef lóðaleigusamningurinn rennur út. Þeir sinna ekki viðhaldi því óvissan um lóðina er alger,“ segir Einar Þorsteinsson frambjóðandi Framsóknarflokksins. Aðspurður hvort málið hafi ekki komið inn á hans borð þegar hann var borgarstjóri svarar hann: „Nei, þetta kom ekki mikið inn á mitt borð þá.“ „Tónninn sem þetta er að gefa er fráleitur. Er þetta það sem lóðaleigendur í Kringlunni mega eiga von á þegar lóðaleigusamningar renna þar út? Eða jafnvel fólk með sín heimili?“ spyr Ari Edwald oddviti Miðflokksins sem segir nálgun borgarinnar í málinu fráleita.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Byggingariðnaður Skipulagsmál Jarða- og lóðamál Borgarstjórn Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Innlent Fleiri fréttir Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Sjá meira