Taldi sig mega fara með fimmtán ára stúlku um borð Árni Sæberg skrifar 11. maí 2026 15:13 Guðmundur Elís í haldi lögreglu árið 2020 þegar hann var grunaður um tilraun til manndráps. Guðmundur Elís Sigurvinsson, 27 ára karlmaður með langan ofbeldisbrotaferil á bakinu, hefur verið dæmdur fyrir barnaverndar- og sifskaparbrot, með því að fara með fimmtán ára stúlku um borð í fiskiskip í Keflavík árið 2023. Hann játaði háttsemina en neitaði sök, þar sem hann taldi sér hafa verið heimilt að fara með stúlkuna um borð.
Dómur þess efnis var kveðinn upp þann 7. maí síðastliðinn og birtur í dag. Hafi stofnað lífi stúlkunnar í hættu Í ákæru á hendur honum, sem gefin var út um miðjan febrúar, segir að hann hafi stuðlað að því að stúlkan kæmi sér undan valdi eða umsjá foreldra sinna, en hann hafi mælt sér mót við stúlkuna í Landeyjarhöfn að kvöldi laugardagsins, ekið svo með hana síðar um kvöldið, til Keflavíkur og farið með hana í leyfisleysi um borð í skipið Grímsnes GK-555, sem hafi siglt út á sjó um nóttina og þar sem stúlkan dvaldi allt þar til skipinu var snúið við og lagt við höfn í Njarðvík síðdegis á sunnudeginum. Þannig hafi hann stofnað heilsu og lífi stúlkunnar í alvarlega hættu, allt án vitneskju og heimildar foreldra hennar. Bar fyrir sig gáleysi Í niðurstöðukafla dómsins segir að málsatvik hafi að mestu verið óumdeild og Guðmundur Elís hafi viðurkennt háttsemi þá sem í ákæru greinir, en neitað sök og talið háttsemina ekki refsverða. Ætlun hans hafi ekki verið að koma stúlkunni undan valdi eða umsjá foreldra sinna og hann hafi ekki stuðlað að því með háttsemi sinni. Einungis hafi verið um að ræða gáleysi af hans hálfu sem ráðist hafi af aðstæðum sem sköpuðust þegar stúlkan missti af ferjunni heim til Vestmannaeyja. Þá hafi hann því að hafa stofnað lífi stúlkunnar í alvarlega hættu. Fyrir liggi í málinu að Guðmundur Elís, sem þá var 23 ára, hafi skipulagt það með stúlkunni, sem honum hafi verið kunnugt um að væri einungis 15 ára, að hún myndi sigla frá Vestmannaeyjum með Herjólfi klukkan 19:30 og hitta hann í Landeyjahöfn að kvöldi 1. apríl 2023 og þau eyða kvöldinu saman þar til hún myndi taka síðustu ferju heim klukkan 23:00. Í framburði hans fyrir dómi hafi komið fram að hann hafi ekki vitað hvort foreldrar stúlkunnar vissu af þessu. Fram sé komið að móðir stúlkunnar hefði áður sett sig í samband við Guðmund Elís og gefið honum skýrt til kynna að hún væri mótfallin því að hann hitti stúlkuna eða væri í samskiptum við hana. „Í framburði stúlkunnar fyrir dómi kom jafnframt fram að ákærða hafi verið kunnugt um að foreldrar hennar væru ósátt við kynni þeirra og að hann hafi orðið hræddur þegar þau hringdu í hana er hún var stödd í bílnum með ákærða. Ákærði hafði samkvæmt framansögðu enga ástæðu til að ætla að ferð stúlkunnar til fundar við hann væri með heimild foreldra hennar og er framburður ákærða um að hann hafi talið svo vera metinn ótrúverðugur og verður ekki á honum byggt í málinu.“ Með framangreindri háttsemi hafi Guðmundur Elís stuðlað að því að stúlkan kæmi sér undan valdi eða umsjá foreldra sinna og verði að líta svo á að hann hafi látið sér það í léttu rúmi liggja. Ákvað að blekkja lögreglu Þá hafi Guðmundi Elísi verið fyllilega ljóst þegar foreldrar stúlkunnar reyndu að ná sambandi við hana símleiðis að hennar væri saknað og að hún væri að forðast þau, en í stað þess að upplýsa um hvar hún væri stödd og ræða leiðir til þess að koma henni í umsjá foreldra sinna, þá hafi hann ákveðið að fara með hana um borð í fiskveiðibát þar sem honum var ljóst að hún myndi verða þangað til síðdegis daginn eftir án þess að foreldrum hennar væri kunnugt um hvar hún væri eða hvort hún væri í hættu stödd. Þegar lögregla náði tali af honm þegar hann var á leið með stúlkuna til Keflavíkur um nóttina hafi hann ákveðið að blekkja lögreglu og neita því að stúlkan væri með honum. „Loks laumaði ákærði stúlkunni um borð í skipið án þess að nokkur skipverja yrði hennar var. Gat enginn vafi leikið á því í huga ákærða að með framangreindri háttsemi stuðlaði hann að því að stúlkan kæmi sér undan valdi og umsjá foreldra sinna. Eru viðbárur hans um gáleysi haldlausar. Er hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi gerst sekur um sifskaparbrot eins og í ákæru greinir og er háttsemi hans þar rétt heimfærð til refsiákvæða.“ Ekki fallist á að stúlkan hafi verið í hættu Aftur á móti segir í dóminum að þrátt fyrir að Guðmundur Elís hafi sýnt alvarlegt dómgreindarleysi með því að heimila stúlkunni að fara með sér um borð í bátinn án þess að leita heimildar yfirmanna sinna og án þess að hún hafi hlotið nokkra fræðslu í öryggismálum á sjó, þá verði ekki fallist á að með því hafi hann stofnað heilsu hennar og þroska í svo mikla hættu að háttsemin varði við ákvæði barnaverndarlaga en í því efni sé meðal annars horft til þess að stúlkan hafi aldrei verið stödd á vinnusvæði í bátnum, heldur dvalið í káetu Guðmundar Elíss allan tímann. Því verði hann sýknaður af þeim hluta ákærunnar. Hvað ákvörðun refsingar varðar segir í dóminum að Guðmundur Elís hafi verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi árið 2020 fyrir brot á nálgunarbanni, átján mánaða fangelsi árið 2021 fyrir líkamsárás og þriggja ára fangelsi í Landsrétti fyrir nauðgun árið 2025. Hann hafi farið með stúlkuna um borð í bátinn fyrir uppsögu síðastnefnda dómsins og því skyldi honum dæmdur hegningarauki við þann dóm. Með vísan til játningar hans og dráttar á meðferð málsins en einnig þess að hann hafi sýnt einbeittan brotavilja og í stað þess að iðrast strax eftir brotið hafi hann haldið áfram að vera í samskiptum við stúlkuna eftir að hann hafði undirritað yfirlýsingu um nálgunarbann, sé refsing hans hæfilega metin fjögurra mánaða fangelsisvist. Þá var hann dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar, tæplega 2,1 milljón króna.
Dómsmál Ofbeldi gegn börnum Vestmannaeyjar Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira