Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir, Marta Karen Vilbergsdóttir, Særún Birta Valsdóttir og Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifa 6. maí 2026 13:00 „Jón kemur heim af spítala með þau skilaboð að heimahjúkrun muni taka við honum. Það á að vera samfella og örugg lending og hans sveitarfélag á að taka við eftir dvölina á sjúkrahúsi í Reykjavík. Daginn eftir kemur hjúkrunarfræðingur til hans, sinnir sárum hans og fer svo. Eftir situr Jón einn í fjarlægð frá næstu þjónustu. Hann er ennþá slappur. Hann getur ekki eldað, getur varla farið í sturtu og gleymir að taka lyfin sín. Hann reynir að ná utan um kerfið. Hann hringir í leit að aðstoð á heilsugæsluna. Þetta fellur ekki undir heimahjúkrun fær hann að heyra, þú þarft að leita til félagsþjónustunnar. Hann leitar þangað og þar fær hann svörin að þetta sé ekki á þeirra borði. Dagarnir líða. Enginn tekur ábyrgð. Jón bíður, einn heima, og ástandið versnar. Þetta er dæmi um raunverulega stöðu sem mörg lenda í og er oft kallað gráa svæðið, þar sem ábyrgð liggur ekki skýrt hjá einum aðila. Afleiðingin getur verið sú að einstaklingur fái ekki þá þjónustu sem hann þarf á að halda eða að hún tefjist vegna þess að mál eru send á milli stofnana. Þetta getur haft sérstaklega mikil áhrif á eldra fólk, sem oft hefur takmarkaða getu til að sækja rétt sinn innan flókins kerfis. Lykilmarkmið stjórnvalda að eldra fólk geti búið heima Óskýr samhæfing á milli heilbrigðis- og félagsþjónustu hefur bein áhrif á lífsgæði eldra fólks, sérstaklega þeirra sem búa á landsbyggðinni. Þetta getur leitt til versnandi heilsu, aukinnar einangrunar og minna sjálfstæðis. Eldra fólk á landsbyggðinni stendur einnig frammi fyrir áskorunum sem gera þessa stöðu enn erfiðari: færri þjónustuaðilar, langar vegalengdir og takmarkað framboð sérfræðiþjónustu. Í stað þess að fá samfellda þjónustu í heimabyggð þarf fólk oft að leita langt að eða flytja til að tryggja öryggi sitt og velferð. Lýðfræðileg þróun eykur enn frekar á þetta misræmi. Með fjölgun eldra fólks, sérstaklega utan höfuðborgarsvæðisins, eykst þrýstingur á þjónustukerfið á sama tíma og mannafli og fjármagn eru takmörkuð. Eitt af lykilmarkmiðum í stefnumótun stjórnvalda er að eldra fólk geti búið sem lengst heima hjá sér. Hins vegar verður það markmið erfitt í framkvæmd ef stuðningskerfið er veikt. Skortur á samhæfingu milli þjónustukerfa getur leitt til þess að einstaklingur fái ekki næga heimaþjónustu, sem eykur líkur á því að einstaklingur þurfi fyrr á stofnanaþjónustu að halda. Þetta er ekki bara persónulegt áfall fyrir viðkomandi heldur einnig kostnaðarsamt fyrir samfélagið í heild. Til að mæta þessum áskorunum er ljóst að ráðast þarf í markvissar aðgerðir. Í fyrsta lagi þarf skýra verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga svo ljóst sé hver beri ábyrgð á hvaða þjónustuþáttum. Í öðru lagi þarf að efla samþættingu þjónustu með því að auka samstarf milli heilbrigðis- og félagsþjónustu. Í þriðja lagi er mikilvægt að styrkja nærþjónustu á landsbyggðinni. Með því að efla heimaþjónustu, nýta tæknilausnir og tryggja aðgengi að fagfólki með því má draga úr þörf fyrir flutning á milli svæða og bæta lífsgæði eldra fólks. Iðjuþjálfar lykilaðilar í að brúa bil Markmið iðjuþjálfa er að efla færni, iðju og þátttöku einstaklinga, hópa og samfélaga. Í aðstæðum eins og hjá Jóni gæti iðjuþjálfi metið þörf hans fyrir stuðning við athafnir daglegs lífs, svo sem að elda, sinna persónulegu hreinlæti og taka lyf og komið að skipulagningu varðandi viðeigandi úrræði í samstarfi við bæði heilbrigðis- og félagsþjónustu. Iðjuþjálfar geta spilað lykilhlutverk þegar kemur að því að brúa bilið milli heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu og tryggja samfellu í þjónustu við eldra fólk. Í stað þess að þjónustan skiptist á milli kerfa án skýrrar ábyrgðar geta iðjuþjálfar unnið heildrænt með einstaklingum og metið hvernig þeir takast á við daglegt líf í eigin umhverfi. Með slíkri heildrænni nálgun geta iðjuþjálfar ekki aðeins stutt einstaklinga í að ná bata og viðhalda sjálfstæði, heldur einnig komið í veg fyrir að einstaklingar falli á milli kerfa. Þannig gegna þeir mikilvægu hlutverki í að styrkja þjónustu við eldra fólk og bæta lífsgæði, sérstaklega þeirra sem búa á landsbyggðinni þar sem aðgengi að þjónustu er takmarkað. Þrátt fyrir skýra stefnumótun og lagaramma eru enn til staðar verulegir veikleikar í framkvæmd, sérstaklega hvað varðar samhæfingu og ábyrgð. Ef markmið um jafnræði og virðingu eiga að nást þarf að brúa bilið milli á stefnu og veruleika. Á endanum snýst málið ekki aðeins um skipulag kerfa, heldur um rétt eldra fólks til að lifa með reisn, öryggi og stuðningi – óháð því hvar það býr. Höfundar eru iðjuþjálfunarnemar Heimildir Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og Heilbrigðisráðuneytið. (2023). Gott að eldast: Aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027. https://www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/Gottadeldast_Adgerdaaetlun.pdf Guðrún Pálmadóttir, Kristjana Fenger, Þóra Leósdóttir og Snæfríður Egilson. (2024). Saga fags og fræða II: Iðjuþjálfun á Íslandi 1997-2024. Iðjuþjálfinn, 45(1), 45-53. https://www.ii.is/media/idjuthjalfinn/Idjuthalfinn_2024_loka_2.pdf Hagstofa Íslands. (2026). Mannfjöldi eftir byggðakjörnum, kyni og aldri 1. janúar 1998-2026 [gagnasafn]. https://px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Ibuar/Ibuar__mannfjoldi__2_byggdir__Byggdakjarnar/MAN030101.px Halldór S. Guðmundsson (2021). Virðing og reisn. Samþætt heilbrigðis- og félagsþjónusta fyrir eldra fólk. Heilbrigðisráðuneytið. https://www.stjornarradid.is/gogn/rit-og-skyrslur/stakt-rit/2021/06/30/Virding-og-reisn.-Samthaett-heilbrigdis-og-felagsthjonusta-fyrir-eldra-folk/ Heilbrigðisráðuneytið. (2019). Heilbrigðisstefna: Stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030. https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Heilbrigdisstefna_4.juli.pdf Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Eldri borgarar Mest lesið Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Sjá meira
„
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun