Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar 2. maí 2026 07:32 2. maí er alþjóðlegur dagur hryggbólgusjúkdóma. Þeir sem ekki þekkja til þessa sjúkdóma gæti haldið að um sé að ræða sjaldgæfan vanda sem snertir fáa. Raunin er önnur. Þúsundir Íslendinga lifa með þessum langvinnu bólgusjúkdómum sem leggjast á hrygg og liði. Sjúkdómurinn er ólíkt mörgum öðrum gigtarsjúkdómum mun algengari hjá körlum en konum. Einkennin koma oftast fram hjá ungum mönnum á aldrinum 20-40 ára en því miður er oft löng bið eftir greiningu. Hryggbólgusjúkdómar, eins og hryggikt og skyldir sjúkdómar, eru ekki „bara bakverkir“. Þeir eru sjálfsofnæmissjúkdómar sem geta valdið langvinnum verkjum, stirðleika, þreytu og skertri færni til að taka þátt í daglegu lífi. Einkennin eru oft verst á morgnana, þegar líkaminn er stífur og sársaukinn mestur, en geta fylgt fólki allan daginn. Einnig getur jafnvægisskinið verið lélegt. Það sem gerir stöðuna sérstaklega krefjandi er að sjúkdómarnir eru oft ósýnilegir. Margir líta hraustlega út, en búa við stöðugan sársauka og orkuleysi sem hefur áhrif á vinnu, fjölskyldulíf og félagslega þátttöku. Þessi ósýnileiki getur leitt til misskilnings og vanmats, bæði í samfélaginu og jafnvel innan heilbrigðiskerfisins. orkuleysið getur líst sér þannig að þó svefninn sé 12 tímar getur fólk vaknað þreytt. Greining tekur oft of langan tíma. Það er ekki óalgengt að það líði mörg ár frá fyrstu einkennum þar til rétt greining fæst. Á þeim tíma getur sjúkdómurinn valdið óafturkræfum skaða á liðum og hrygg. Þess vegna skiptir snemmgreining sköpum. Um 30% þeirra sem eru með gigt geta fengið lithimnubólgur í augað sem getur orsakað blindu ef það er ekki meðhöndlað strax. Með réttri meðferð og eftirfylgni er hægt að draga úr einkennum, hægja á framgangi sjúkdómsins og bæta lífsgæði verulega. Meðferð hefur tekið miklum framförum á undanförnum árum. Ný lyf og markvissari nálgun í endurhæfingu hafa gjörbreytt lífi margra. En aðgengi að þjónustu, þekking og skilningur þarf að fylgja þeirri þróun. Það þarf að tryggja að allir sem þurfa fái tímanlega greiningu, viðeigandi meðferð og stuðning. Hryggbólgusjúkdómar hafa ekki aðeins áhrif á einstaklinginn heldur allt umhverfi hans. Fjölskyldur, vinnustaðir og samfélagið allt finna fyrir áhrifunum. Því er mikilvægt að við ræðum þetta opinskátt og byggjum upp meiri skilning. Á þessum alþjóðlega degi er tækifæri til að staldra við og spyrja: Erum við að gera nóg? Er hlustað á þá sem lifa með sjúkdóminn? Er kerfið nægilega sveigjanlegt til að mæta þörfum þeirra? Svar við þessum spurningum skiptir máli. Því á bak við hverja greiningu er manneskja sem vill lifa virku og innihaldsríku lífi – þrátt fyrir áskoranir. Ég er heppin að mín meðferð er að virka vel. Ég get hlaupið, hjólað, farið í fjallgöngur farið út með hundinn og unnið við smíðar. Við getum öll lagt okkar af mörkum. Með aukinni vitund, skilningi og stuðningi getum við breytt lífi þeirra sem lifa með hryggbólgusjúkdóma. Höfundur er formaður hryggiktarhóp Gigtarfélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar