Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. apríl 2026 07:12 Það er óhætt að segja að Merz og Trump horfa á stöðu viðræðna við Íran með ólíkum hætti. Getty Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við nemendur í Marsberg í gær að Íranir hefðu leikið á og væru að spila með Bandaríkjamenn. Hann virðist þannig hafa allt aðra sýn á stöðuna en Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem hélt því fram um helgina að Bandaríkin hefðu öll spil á hendi. „
Íranirnir eru augljóslega afar færir þegar kemur að samningaviðræðum, eða öllu heldur hæfir í að semja ekki,“ sagði kanslarinn og vísaði til þess að fulltrúar Bandaríkjanna hefðu snúið aftur heim eftir sneypuför til Islamabad eftir að tilraunir til viðræðna runnu út í sandinn. „Forysta Íran er að niðurlægja heila þjóð, sérstaklega þessi svokallaði Byltingavörður. Þannig að ég vona að þetta taki enda sem fyrst.“ Trump féll frá fyrirhuguðum viðræðum um helgina án þess að gefa sérstakar skýringar og sagði boltann hjá Írönum. Íranir lögðu fram nýjar tillögur að vopnahléssamningum í gær, sem miða að opnun Hormuz-sunds. Samkvæmt tillögunum yrðu atriði á borð við kjarnorku- og eldflaugaáætlanir landsins rædd síðar. Þá var greint frá því að unnið sé að frumvarpi um innheimtu „þjónustugjalds“ á sundinu. Ólíklegt þykir að Bandaríkjstjórn muni ganga að tillögunum, þar sem þær fela ekki í sér viðræður um nein af þeim markmiðum sem sem stjórnvöld hafa sett sér. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, fundaði með Vladimir Pútín Rússlandsforseta í Moskvu í gær. Pútín ku hafa heitið því að gera allt í hans valdi til að styðja við hagsmuni Íran og írönsku þjóðarinnar. Haft var eftir Araghchi að yfirstandandi átök hefðu leitt til þess að umheimurinn hefði áttað sig á raunverulegum styrk Íran.
Þýskaland Íran Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira