Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 26. október 2026 20:54 Benjamín Netanjahú hefur lagt allt í sölurnar. Getty Ísraelar ganga að kjörborðinu á morgun, þriðjudaginn 27. október, í fyrstu þingkosningunum frá árás Hamas 7. október 2023 og blóðugum átökunum sem fylgt hafa í kjölfarið.
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á kjörseðlinum sé í raun spurt hvort kjósendur telji hann bera ábyrgð á því að ekki hefði tekist að afstýra 7. október, hvernig þeir meta þriggja ára stríðsrekstur stjórnar hans og hvort hann eigi að halda áfram eftir nær tvo áratugi sem ráðandi afl í ísraelskum stjórnmálum. Helsti áskorandi hans og andstæðingur er Gadi Eisenkot, fyrrverandi yfirmaður ísraelska hersins. Nýr miðjuflokkur hans, Yashar, mælist stærsti flokkurinn í öllum helstu lokakönnunum. Það þýðir þó alls ekki að Eisenkot verði forsætisráðherra. Það virðast allir í raun sammála um að hann sé ekki sérlega spennandi kandídat. Þjóðin virðist skipt í helminga eftir afstöðu sinni til sitjandi forsætisráðherra.Getty Eisenkot þykir ekki mjög mælskur eða sjarmerandi maður en því hefur hann snúið upp í helsta kost sinn. Því þessa fyrrnefndu eiginleika þykir Benjamín Netanjahú hafa sem hefur haft tögl og hagldir á ísraelskum stjórnmálum með stuttu hleí 2021 og 2022 þegar hann leiddi stjórnarandstæðuna. Í kosningabaráttu sinni hefur Eisenkot lagt áherslu á að hann sé hreinn og beinn, laus við allar silfurskeiðar og sérhagsmuni, sem endurspeglast ekki síst í nafni flokks síns Yashar sem þýðir heiðarleiki á hebresku. Hvorug fylkingin virðist eiga augljósa leið að þeim 61 þingmanni sem þarf til að mynda ríkisstjórn, en á ísraelska þinginu Knesset sitja 120 þingmenn. Lokakannanir sýna gyðingaleidda stjórnarandstöðuflokka með um 52 til 56 sæti og núverandi Netanyahu-blokk með um 50. Arabískir flokkar fá saman um 14 til 16 sæti og geta því ráðið úrslitum, þrátt fyrir að ýmsir stærstu gyðingaleiddu stjórnarandstöðuflokkarnir hafi útilokað ríkisstjórnarsamstarf við þá. Það sem á eftir að ráða úrslitum og næstu ríkisstjórn í Ísrael er því ekki hvor þeirra Eisenkot og Netanjahú fái fleiri atkvæði heldur hvaða flokkar ná inn, hvaða loforð halda eftir kosningar og hver getur hnoðað saman 61 þingmanni. Um hvað er kosið? Sjöundi október Það er ekki að undra að grimmileg árás Hamas á ísraelska borgara þann 7. október 2024 marki enn djúp spor í ísraelsku þjóðarsálina og það er án efa það sem litar álit kjósenda á sitjandi forsætisráðherra. Stærsti öryggisbrestur í sögu ísraelska hersins og jafnframt blóðugasta árás á landið í annars ofbeldisfullri sögu þess átti sér stað þegar hann sat í forsætisráðherrastólnum. Sjá einnig: „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Samkvæmt umfjöllun fréttaveitunnar AP líta 68 prósent ísraelskra gyðinga á sjöunda október sem lykilþátt í sinni ákvörðun. Meðal arabískumælandi Ísraela voru þeir aðeins um 32 prósent. Netanjahú hefur kennt stjórnendum í her og leyniþjónustu Ísraels um að Hamas hafi náð að koma þeim að óvörum og sömuleiðis rekið harða stefnu í varnar- og öryggismálum, lagt Gasa í rúst með tugum þúsunda manna, kvenna og barna alls ótengdra Hamas í valnum, auk þess að kynda undir ofbeldi landtökumanna á Vesturbakkanum og rekið þar eins konar þjóðhreinsistefnu með stuðningi samráðherra sína úr öfgafullum og rasískum stjórnarflokkum. Herskylda rétttrúnaðargyðinga Annað mál sem er ísraelskum kjósendum ofarlega í huga er herskylda rétttrúnaðargyðinga eða Haredim eins og þeir heita á hebresku. Í ríkisstjórnum Netanjahú í gegnum árin hafa sérflokkar þeirra iðulega átt sæti og ráðherraembætti og þeir hafa verið lykilhluti baklands hans frá upphafi. Í Ísrael er það þannig í dag að rétttrúnaðargyðingar við nám í trúarlegum fræðum gyðinga eru undanþegnir herskyldunni sem annars gildir um alla Ísraela óháð kyni. Þessi stefna hefur lengi verið umdeild í landinu en sérstaklega eftir síðustu tvö ár af nær stanslausum átökum með tilheyrandi mannfalli. Varaliðssveitir hafa ítrekað verið ræstar á vígvöllinn með mannfalli innan þeirra raða frá sjöunda október. Bezalel Smotrich, landtökumaður og ráðherra, leiðir HaTzionut HaDatit og styður þjóðernishreinsunarstefnu á Vesturbakkanum. Hann er í ríkisstjórn Netanjahú.Getty Gadi Eisenkot helsti andstæðingur Netanjahú og leiðtogi Yashar hefur heitið því að afnema þessar undanþágur. Hann missti son sinn og tvo frændur í innrásinni á Gasa. Flokkarnir Shas og Yahadut HaTorah verja undanþágurnar með kjafti og klóm. Flokkar á borð við Yisrael Beytenu og stórir hlutar stjórnarandstöðunnar vilja jafna herþjónustubyrðina. „Umbætur“ í dómskerfinu Fyrir sjöunda október 2024 varð var stærsta pólitíska bitbeinið umfangsmikil „umbótaáætlun“ ríkisstjórnar Netanjahú í dómskerfinu. Hann hét því að veikla hæstarétt landsins sem margir andstæðingar hans töldu tengjast því að hann hefur ítrekað verið sóttur til saka vegna spillingarmála og hefði því hagsmuna að gæta í að draga úr valdi ókjörinna dómara. Sjá einnig: Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Tillögurnar leiddu til fjölmennra mótmæla árið 2023. Áætlunin var að stórum hluta sett á ís eftir árásina, en flokkar Netanjahú-blokkarinnar vilja halda hluta hennar áfram. Stjórnarandstaðan lítur hins vegar á átökin sem stærri spurningu um sjálfstæði dómstóla og lýðræðislegra stofnana. Gasa og Vesturbakkinn Fyrir Íslendingum kemur það eflaust mest á óvart í sambandi við kosningar morgundagsins hvað málefni Palestínumanna á Vesturbakkanum og ekki síður Gasa hafa verið fyrirferðalítil í aðdraganda kosninganna. Þó segja megi að öll málefni litist af átökunum. Stríðið í Gasa, borgaraleg réttindi Palestínumanna og hugsanlega tveggja ríkja lausn hafa ekki átt upp á borðið í kosningaherferðum stærstu flokkanna. Enda má segja að stærstur hluti þjóðarinnar sé nokkuð samróma í þeim málum. Breið samstaða er á milli gyðinglegra flokka um harða öryggis-, varnar- og utanríkisstefnu eftir sjöunda október. Varðturn ísraelska hersins í útjaðri Jerúsalem. Borginni Hebron á Vesturbakkanum var hér um bil lokað síðustu daga fyrir kosningar eftir að palestínskir menn skutu tvo ísraelska hermenn til bana þar á dögunum.Getty Bæði helstu forsætisráðherraefnin, Eisenkot og Netanjahú, eru andvígir tilvist sjálfstæðs palestínsks ríkis og tortryggnir í garð stjórnarinnar á Vesturbakkanum. Eisenkot hefur gagnrýnt ofbeldi landtökumanna þar og stuðningi stjórnvalda við þá en styður áframhaldandi byggð ísraelskra landtökumanna á ákveðnum svæðum Vesturbakkans. Ljóst er þó að ráði afstaða Arabaflokka úrslitum eftir morgundaginn eiga afstöður þeirra tveggja eftir að skipta máli við stjórnarmyndun. Efnahagsmál Efnahagur Ísraels hefur sýnt meiri seiglu en margir bjuggust við. Hlutabréf hafa almennt hækkað mikið í verði og sikillinn styrkst frá 2023. Sjá einnig: Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Undir yfirborðinu eru þó blikur á lofti. Reuters metur kostnað stríðsrekstursins undanfarin ár á meira en 55 milljarða Bandaríkjadala, ríkisskuldir eru komnar nálægt 70 prósentum af vergri landsframleiðslu og halli ríkissjóðs er áætlaður um 4,5 prósent. Framfærslukostnaður er einnig mikið áhyggjuefni kjósenda, þó hann hafi fengið minni athygli í kosningabaráttunni en öryggismálin. Forsætisráðherraefnin Gadi Eisenkot Eins og fram hefur komið eru Ísraelar frekar að velja eða hafna áframhaldandi setu Benjamíns Netanjahú á valdastól en að kjósa nýjan forsætisráðherra. Helsti andstæðingur hans er Gadi Eisenkot sem er nýgræðingur á sviði stjórnmálanna. Eisenkot er 66 ára og var yfirmaður ísraelska hersins á árunum 2015 til 2019. Hann tók sæti í neyðarstjórn Netanjahú eftir sjöunda október en yfirgaf hana eftir átta mánuði og brigslaði Netanjahú um að hafa enga áætlun til að ná markmiðunum með innrásinni. Gadi Eisenkot ávarpar stuðningsmenn sína á kosningafundi í kvöld.Getty Sjálfur missti hann son sinn og tvo frændur á vígvellinum á Gasa og hefur gert feril sinn í hernum og fórn fjölskyldu sinnar að stórum hluta kosningabaráttu sinnar. Þó að Eisenkot sé vissulega helsti mótherji Netanjahú er ekki þar með sagt að það sé mikil hugmyndafræðileg gjá þeirra á milli. Það væri hæpið að kalla hann friðarsinna, hann hefur enda verið við stjórn ísraelska hersins um árabil. Hann er sömuleiðis andvígur tilvist palestínsks ríkis. Benjamín Netanjahú Benjamín Netanjahú þarf varla að kynna. Hann hefur verið við völd í Ísrael lengst allra í sögu landsins og setið þar nær samfellt frá árinu 2009. Hann er 77 ára gamall, menntaður í Bandaríkjunum og góður vinur Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Vinátta hans og Trump hefur raunar spilað stóra rullu í kosningabaráttu hans. Netanjahú hefur stillt sér upp sem eina frambjóðandanum sem er fær um að tryggja öryggi Ísraels í ljósi sífjandsamlegra umhverfis í Miðausturlöndum og víðar, ekki síst vegna stríðsins á Gasa, þjóðhreinsistefnu á Vesturbakkanum og yfirlýstum stuðningi ráðherra í ríkisstjórn hans á því að hrekja Palestínumenn endanlega frá heimilum sínum. Benjamín Netanjahú hefur verið forsætisráðherra með hléum frá árinu 2019.Getty Átök við Hamas, Hezbollah og Íran frá sjöunda október hafa litað kosningaherferð Netanjahú og varaði hann meðal annars við því fyrr í dag að „önnur helför“ væri í vændum ef hann héldi ekki í völd. Með þessum skilaboðum fylgdi gervigreindarmynd af kjarnorkuárás á Tel Avív. Síðustu skoðanakannanirnar Síðustu kannanir sem birtar verða fyrir kosningar voru mjög samstíga. Þær benda allar til þess að Yashar-flokkur Eisenkot hafi naumlega betur en að leiki á hnífsegg. Erfitt sé að skera úr um hvort flokkar á borð við HaMiluimnikim, eins málefnis flokkur um að afnema undanþágur frá herskyldu, eða öfgarétttrúnaðarflokkurinn Amcha Yisrael nái þeim 3,25 prósentum sem þarf til að ná inn á þing. Nái flokkur yfir þröskuldinn fá þeir fjóra þingmenn en endi þeir undir honum falla atkvæðin niður dauð. Stöð 12 Yashar 23 – Likud 21 – B'Yachad 15 – HaDemokratim – 10Stjórnarandstöðublokkin 56, Netanjahú-blokkin 50, arabískir flokkar 14 Stöð 13 Yashar 22 – Likud 19 – B'Yachad 14 – HaDemokratim 10Stjórnarandstöðublokkin 54, Netanjahú-blokkin 50, arabískir flokkar 16. Kan Yashar 22 – Likud 20 – B'Yachad 14.Stjórnarandstöðublokkin 52, Netanjahú-blokkin 50, arabískir flokkar 14 og HaMiluimnikim 4. Netanjahú er gífurlega umdeildur á heimsvísu og handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur honum af Alþjóðadómstólnum vegna stríðsglæpa á Gasaströndinni.Getty B'Yachad er hægriflokkur Naftali Bennett og Yair Lapid sem eru báðir fyrrverandi forsætisráðherrar og þeir einu sem tekist hefur að velta Benjamín Netanjahú úr þeim stól á undanförnum áratug þegar þeir mynduðu skammlífa ríkisstjórn árið 2021. Ljóst er því að erfitt verður fyrir hvora fylkingu að mynda ríkisstjórn sama hver þeirra ber sigur úr býtum. Samkvæmt reiknuðu meðaltali Reuters á ótal skoðanakönnunum fá stjórnarandstöðuflokkar 62 þingmenn af 120 en þeirra á meðal yrðu þingmenn Arabaflokkanna Ra'am og Sameinaða listans sem margir gyðinglegir stjórnarandstöðuflokkar hafa útilokað. Atriði eins og kjörsókn arabískumælandi Ísraela og það hvort HaMiluimnikim eða Amcha Yisrael nái inn á þing geta því ráðið framtíð Ísraels á næstu árum. Sömuleiðis það hver verður fyrstur að brjóta kosningaloforð sín.
Ísrael Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira