„Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Freyja Þórisdóttir skrifar 27. apríl 2026 23:10 Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, var gestur í kvöldfréttum Sýnar nú í kvöld og svaraði fyrir tíu milljarða neikvæðan viðsnúning í rekstri borgarinnar. Sýn Fyrrverandi borgarstjóri segir meirihlutann hafa klúðrað fjármálum borgarinnar. Rekstur A-hluta var neikvæður um rúmlega fimm milljarða. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir þurfa að grípa í taumana strax.
Rekstur A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæður um rúmlega fimm milljarða króna á síðasta ári. Í nóvember var gert ráð fyrir fjögur hundruð milljóna afgangi. Matsbreyting á eignum Félagsbústaða varð til þess að B-hlutinn var rekinn með ríflegum afgangi. Árið 2024 skilaði A-hlutinn 4,7 milljarða afgangi svo um er að ræða um tíu milljarða neikvæðan viðsnúning. Í tilkynningu frá borginni segir meðal annars að há verðbólga, óvissa á atvinnumarkaði og hækkun lífeyrisskuldbindinga skýri helst neikvæða niðurstöðu. Fyrrverandi borgarstjóri svekktur Einar Þorsteinsson segir niðurstöðuna gríðarleg vonbrigði og að núverandi meirihluti eyði um efni fram. „Þegar ég skilaði af mér borginni eftir mína borgarstjóratíð voru fimm milljarðar í afgang, það er heimamundurinn sem þessi meirihluti fékk,“ segir Einar og bætir því við að meirihlutinn sýni ekki aðhald og virðist ekki hafa neinn áhuga á rekstri. „Ég held að enginn hefði geta gert sér það í hugarlund að þau myndu gjörsamlega klúðra fjármálunum á einu ári,“ segir hann jafnframt. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir líkt og Einar að fjárhagur borgarinnar sé áhyggjuefni. Hún segir það sjaldgæft að það gerist eins og nú að útsvarstekjur hafi verið ofmetnar. „En svo voru auðvitað bara útgjöld umfram heimildir,“ segir Hildur og tekur sem dæmi að laun hafi hækkað um rúmlega átján prósent milli ára sem séu verulegar hækkanir og langt umfram kjarasamningsbundnar hækkanir. Þá segir hún að ráðast þurfi að vandanum og leysa þetta enda sé að hennar mati ljóst að eitthvað sé að í rekstrinum. Ekki sé hægt að selja af sér spjarirnar til eilífðarnóns. Betra ár á undan Þetta er fyrsta rekstrarár Heiðu Bjargar Hilmisdóttur sem borgarstjóra en hún sagði í kvöldfréttum Sýnar að það hefði verið skemmtilegra ef hennar meirihluti hefði hitt á árið á undan. „Þetta væri auðvitað skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu, árinu á undan þar sem lífeyrisskuldbindingin var jákvæð þannig að það kom tekjufærsla en ekki gjaldfærsla eins og núna og hún er auðvitað ríflega tíu milljarðar,“ segir Heiða. Hún segir þetta vera reiknistærð sem tryggingastærðfræðingar reikni út frá launahækkunum, verðbólgu og ávöxtun á markaði svo eitthvað sé nefnt. Hún vilji einnig vekja athygli á því að áætlanir séu að standast hvað varðar rekstur grunnþjónustu. „Við höfum bætt í hvað varðar börn og barnafjölskyldur og erum bara mjög stollt af því. Það sést að það hafi verið vel áætlað fyrir því og sparað á móti,“ segir Heiða einnig. Það sé alls ekki þannig að laun hafi hækkað um átján prósent heldur séu lífeyrisskuldbindingareikningarnir komnir inn. Lykiltölur í rétta átt Er eitthvað sem má segja að hefði mátt fara betur þegar horft er til baka ef lífeyrisskuldbindingar eru teknar út fyrir sviga? Heiða segir að í fyrsta lagi þurfi að skoða það hvort hægt sé að spá betur fyrir um þessar upphæðir og að sú vinna sé farin af stað. Svo sé líka spurning hvers vegna þetta sé inni í rekstrarreikningum sveitarfélaga, þetta sé ekki í rekstrarreikningum hjá neinum öðrum. „Þetta kannski gefur ekki góða mynd og ég sé strax að það eru komnar svona villandi tölur í umferð sem er auðvitað ekki gott af því að þetta er skuldbinding. Þetta er ekki fjármagn sem hefur farið út og handbært fé og allar lykiltölur í rekstrinum eru að þróast í rétta átt,“ segir Heiða. Enn að jafna sig eftir Covid Það er kannski hægt að slá því föstu að þú verðir ekki borgarstjóri eftir næstu kosningar en hefðir þú viljað skila af þér betra búi? „Við erum auðvitað að koma út úr mjög erfiðum tíma og erum ennþá að ná okkur á strik eftir Covid,“ segir Heiða og bætir við að þau hafi ætlað að hafa „allt á grænu“ núna en það hafi ekki tekist að ná rekstrarniðurstöðunni. Þau séu að ná eiginlega öllum mælikvörðum í jákvæða átt, séu komin með veltufé frá rekstri í 6,9 prósent og að markmiðið sé 7,5 prósent. „Við erum búin að vera að fjárfesta gríðarlega og ég er mjög stolt af rekstri borgarinnar,“ segir Heiða og hún sé sérstaklega stolt af því að fyrsta verk þeirra hafi verið að hækka laun kennara. En getur maður gengið stoltur frá tíu milljarða viðsnúningi? „Þetta er auðvitað reiknuð stærð sem kemur þá inn sem skuldbinding og svo sjáum við bara hvort að ávöxtunin verður betri á næsta ári og þá mögulega verður það jákvætt aftur,“ segir Heiða.
Reykjavík Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Tengdar fréttir „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gagnrýnir rekstur meirihlutans en í nýjum ársreikningi Reykjavíkurborgar kom fram að rekstur A-hluta var neikvæður um ríflega fimm milljarða. 27. apríl 2026 16:42 Mest lesið „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Innlent Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Innlent Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Innlent Fleiri fréttir Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Aðalmeðferð að ljúka í Edition málinu og sextán ára fangelsis krafist Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Með kylfur og mikið magn vímuefna Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri Sjá meira
„Það þarf að taka í handbremsuna strax“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gagnrýnir rekstur meirihlutans en í nýjum ársreikningi Reykjavíkurborgar kom fram að rekstur A-hluta var neikvæður um ríflega fimm milljarða. 27. apríl 2026 16:42