Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Kristján Már Unnarsson skrifar 20. apríl 2026 22:12 Flutningaskipið Idunn frá Torcargo lagðist að bryggju í Þorlákshöfn í kvöld með fyrstu vindmyllurnar. Spaðarnir eru 68 metra langir. Torcargo Fyrsta skipið með vindmylluhluta fyrir Vaðölduver, vindorkuver Landsvirkjunar við Sultartanga, kom til Þorlákshafnar í kvöld. Það var flutningaskipið Idunn frá skipafélaginu Torcargo sem sigldi með farminn frá Rotterdam en um borð voru hlutir sem samsvara um einni og hálfri vindmyllu.
Í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun segir að koma skipsins marki tímamót í uppbyggingu fyrsta vindorkuvers landsins. Framundan séu umfangsmiklir flutningar vindmylluhluta frá Þorlákshöfn að Vaðöldu. Undirbúningur þeirra hafi staðið yfir um langt skeið í nánu samstarfi við helstu hagaðila á flutningsleiðinni. Fyrstu spaðarnir verða hífðir frá borði og í land í Þorlákshöfn í fyrramálið. Stærstu stykkin, vindmyllublöðin, eru 68 metra löng. Leiðin sem vindmyllurnar verða fluttar. Svörtu tölurnar tákna þá staði þar sem víkka þarf gatnamót eða styrkja vegi.kort/Landsvirkjun Flutningar með vindmylluhlutana eftir þjóðvegum upp að Vaðölduveri hefjast svo eftir tæpar þrjár vikur og standa yfir í sjö til tíu vikur. Þeir fara eingöngu fram að nóttu til sex nætur vikunnar. Þetta verða einhverjir mestu þungaflutningar sem fram hafa farið á íslenska vegakerfinu. Þar sem flutningarnir fara fram að næturlagi er ekki búist við að þeir trufli umferð að ráði. Svo vandasamir þykja flutningarnir að haldin var sérstök vinnustofa þeirra sem að málinu koma á Selfossi í síðasta mánuði, sem fjallað var um hér í sjónvarpsfrétt Sýnar. Þar má sjá teiknuð myndbönd af því hvernig flutningalestin kemur til með að líta út með uppundir eitthundrað metra löngum trukkum:
Vindorka Landsvirkjun Skipaflutningar Ölfus Orkumál Vindorkuver við Vaðöldu Tengdar fréttir Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. 25. mars 2026 22:10 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira
Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. 25. mars 2026 22:10