Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. apríl 2026 16:11 Haraldur Freyr Gíslason er formaður Félags leikskólakennara. Vísir/Samsett Félag leikskólakennara gagnrýnir hugmyndir Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, um að stytta nám leikskólakennara. Þau segja Hildi finnast sitt nám, en hún er með gráður í stjórnmála- og lögfræði, mikilvægara heldur en menntunarfræði ungra barna.
Hildur ræddi leikskólamálin með Pétri Marteinssyni, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum, í Sprengisandi í morgun. Hildur benti þar á að til þess að standast kröfu laganna um að einungis tveir þriðju leikskólastarfsmanna þurfi að vera menntaðir leikskólakennarar þyrfti 2600 starfsmenn til viðbótar. „Ég var nú að leita að gögnum um hvað það eru margir en segjum okkur að það séu fjörutíu manns á ári sem hætta sökum aldurs. Ég hugsa að það séu fleiri. Miðað við þessa tölfræði, ef um áttatíu manns útskrifast úr náminu og fjörutíu sem hverfa á brott sökum aldurs værum við 65 ár að ná að mennta nægilega marga til að standa undir þörfinni,“ sagði Hildur. Þá benti hún á að af Norðurlöndunum sé íslenska leikskólakerfið langdýrast. Hér sé lengsti undirbúningstíminn, fleiri starfsmenn per barn og greidd hæstu launin. Hildur telur að á Íslandi hafi verið búið til flókið og dýrt kerfi sem séu mistök. „Það flækti verulega fyrir okkur málin þegar ákveðið var að lengja leikskólakennaranámið úr þremur í fimm. Við erum með lengsta námið á öllum Norðurlöndunum og þegar ákveðið var að fara í eitt leyfisbréf þá misstum við mikið af fagfólki yfir í grunnskólann úr leikskólanum,“ segir hún. „Þarna voru gerð mistök og ég myndi auðvitað vilja sjá ríkisstjórnina, sem tók vissulega þessar ákvarðanir á sínum tíma, vinda ofan af þessum breytingum. Þannig værum við fljótari að útskrifa leikskólakennara.“ Sé með fordóma Félag leikskólakennara gagnrýnir Hildi harðlega í færslu á Facebook og fordæmir þá fordóma gagnvart menntunarfræði leikskóla í orðum hennar. „Fellur hún þar með í flokk þeirra pólitísku knapa sem er nákvæmlega sama um fagleg gæði náms í leikskólum. Einstaklingar sem telja sig þess umkomna að tala niður menntun kennara í leikskólum,“ segir í færslunni. „Vert er að nefna að Hildur sjálf er bæði með BA í stjórnmálafræði og lögfræði en einnig með meistaranám í lögfræði. Hennar sýn er þá væntanlega að hennar fræði séu auðvitað miklu mikilvægari og merkilegri en menntunarfræði ungra barna.“ Þau gefa einnig lítið fyrir rök hennar um að eitt leyfisbréf sé vandamál heldur hafi ójafnt flæði kennara milli skólastiga verið staðreynd löngu áður en eitt leyfisbréf varð að veruleika. „Flæðið varð ójafnara árið sem eitt leyfisbréfið varð að veruleika. Strax árið eftir fór það aftur niður í það sem það var fyrir eitt leyfisbréf.“ Leggur félagið áherslur á ávinning kjarasamningana árið 2020 sem fólu í sér fjölgun undirbúningstíma og betri ramma utan um þá. „Leikskólastigið hefur lengi verið vannýtt skólastig vegna skorts á tíma til að sinna faglegri og vel ígrundaðri kennslu í gegnum leik sem er aðalnámsleið leikskólans. Þar undirstrikar hún einnig í orðum fordóma fyrir menntunarfræði ungra barna. Það er mjög miður.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Leikskólar Reykjavík Skóla- og menntamál Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Fleiri bitnir af hundunum Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Innlent „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Innlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Skaðabótasjóður Trumps í hættu Erlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Fleiri fréttir Rannsóknarnefnd mun skoða aðstæður barna á einkaheimilum Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Fasteignamat lækkar að raunvirði „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Bein útsending: Kynna fasteignamat ársins 2027 Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Breyta hlaupaleiðum í Reykjavíkurmaraþoninu Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Sjá meira