Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar 18. apríl 2026 11:30 Í dag birtist ítarleg úttekt á íslenskum sjávarútvegi í Berlingske sem útlistar þá spillingu og ógnarvald sem einkennir heimsmynd stórútgerðarinnar. Greinin dregur alþjóðlega ímynd okkar í efa: undir yfirborði lýðræðis og jafnræðis er dregin upp svört mynd af eyju þar sem ein atvinnugrein hefur sankað að sér óhóflegum völdum og ítökum í pólitík, fjölmiðlum og atvinnulífinu. Lesturinn ætti að vekja okkur til umhugsunar um hverjir stjórna Íslandi, og hvernig. Fáræði, spilling og ógnarvald Umfjöllun Berlingske er yfirgripsmikil og kemur víða við. Rauði þráðurinn er þó uppruni og þróun aflamarkskerfis á grundvelli framseljanlegra aflaheimilda. Það sem hófst á níunda áratug seinustu aldar sem neyðarúrræði til að bregðast við svartri skýrslu Hafró er nú orðin að varanlegri tilfærslu á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar í hendur einkaaðila. Smám saman urðu veiðiréttindi – sem ríkið úthlutaði án endurgjalds – að einkaeignum uppá hundruð milljarða króna. Þannig skapaðist fámenn, auðug elíta um leið og nýir aðilar voru útilokaðir frá atvinnugreininni. Eins og Berlingske bendir á, þá er ekki um stjórnsýsluleg mistök í stefnumótun að ræða heldur var þetta meðvituð pólitísk ákvörðun sem hefur haft víðtækar afleiðingar fyrir lýðræði á Íslandi. Umfjöllunin lýsir hagsmunagæslu sægreifanna ekki sem afmörkuðum atburði, heldur sem mótandi afli í íslenskum stjórnmálum. Ráðherrar, embættismenn og þingmenn segja frá reglubundnum þrýstingi, óbeinum hótunum og óformlegum reglum sem ákveða hvað má eða má ekki í pólitík. Þessi áhrif mætti kalla löggjafarmeðvirkni, sérstaklega þegar kemur að tilraunum til að endurskoða kvótakerfið. Greinin heldur því fram að eignarhald stórútgerðar á helstu fjölmiðlum, ásamt lögfræðilegu einelti og áreitni gegn blaðamönnum, hafi kæft alla gagnrýna umfjöllun. Hrun Íslands niður alþjóðlega mælikvarða um fjölmiðlafrelsi er sett í samhengi við raunveruleikann sem blaðamenn búa við: málsóknir, eftirlit og rógburðarherferðir eru fylgifiskar rannsókna á valdamiklum aðilum. Sárast var að lesa frásagnir frá nafnlausum sjómönnum og uppljóstrurum sem lýsa óttaþrungnu andrúmslofti: þeir sem voga sér að tjá sig um framgang stórútgerðarinnar sjá fram á atvinnumissi, útskúfun eða þaðan af verri afleiðingar. Þessar hótanir, hvíslaðar í eyru sjómanna þegar enginn sér til, eru áhrifaríkari en formlegt vald til þess að viðhalda óbreyttu ástand en þeim mun erfiðari að mæla eða hafa eftirlit með. Trillukarlar eru síðasta vígið Það má alveg spyrja hversu sanngjörn þessi umfjöllun er. Nú eru fjölmargar litlar og meðalstórar útgerðir út um allt land sem taka engan þátt í fáræðinu en vilja bara skapa störf í sinni heimabyggð. Það er vissulega ósanngjarnt að þær fái á sig spillingarstimpil stærstu útgerðanna. En við trillukarlar vitum það manna best hversu fáræði kvótakónganna eitrar allt í kringum sig. Um leið og þeir fækka störfum í brothættum byggðum – í nafni hagkvæmni – standa þeir í vegi fyrir því að smábátasjómenn geti lifað af starfi sínu og veitt fyrrum starfsmönnum þeirra áframhaldandi störf við sjómennsku. Þjóðin stendur með okkur en fáir landsmenn átta sig á því hversu djúpt angar kolkrabbans teygja sig inn í alla króka og kima daglegs lífs. Allir aðrir eru hættir að spyrna á móti. Blaðamenn vilja varla fjalla um spillingu í sjávarútvegi. Lögfræðingar veigra sér við að taka að sér mál gegn sægreifum. Stjórnmálamenn þora ekki að hrófla við einum bókstaf í lögum um stjórn fiskveiða. Opinberum starfsmönnum og eftirlitsaðilum er meira í mun að halda vinnunni en að sinna lögbundnum skyldum sínum. Allir eru logandi hræddir við kvótakóngana – allir nema smábátasjómenn. Spillingin í sjávarútvegi er ekki einkavandamál okkar trillukarla. Hún flæðir um allt og eitrar lýðræði, efnahag og samfélag. Nú eru þessir útgerðarrisar nefnilega í óða önn að kaupa upp restina af Íslandi fyrir þann pening sem þeir hafa hrifsað til sín úr sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Fyrr eða síðar gætu Íslendingar vaknað upp við vondan draum þar sem tíu ríkustu fjölskyldur landsins eiga ekki bara sjávarauðlindina, heldur líka matvöruverslanir, banka, endurskoðendur, tryggingafélög, leigufélög, orkufyrirtæki, ferðaþjónustuaðila og fjármálafyrirtæki. Trillukarlar munu áfram standa vaktina. Höfundur er trillukarl og formaður Landssambands smábátaeigenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Kjartan Páll Sveinsson Mest lesið Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervigreind er ekki sjálfkrafa góð eða slæm. Hún er alin upp Helgi S. Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Þegar orðaslagurinn stríðir við þjóðarsálina Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Gervigreind er ekki sjálfkrafa góð eða slæm. Hún er alin upp Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson skrifar Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson skrifar Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar