Upp­gjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls í­gildi

Hjörvar Ólafsson skrifar
Andri Rúnar Bjarnason var hetja Stjörnumanna í kvöld og liðið er með fullt hús eftir tvær umferðir.
Andri Rúnar Bjarnason var hetja Stjörnumanna í kvöld og liðið er með fullt hús eftir tvær umferðir. Vísir/Anton Brink

Stjarnan bar sigurorð af FH, 3-2, þegar liðin áttust við í annarri umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðbænum í kvöld. Andri Rúnar Bjarnason skoraði sigurmark Stjörnunnar í leiknum.

Stjörnumenn voru ívíð sterkari í fyrri hálfleik. Órvar Eggertsson komst nálægt því að brjóta ísinn fyrir heimamenn eftir tæplega stundarfjórðungs leik. Benedikt Warén setti þá Örvar í gegn. Örvar náði að sigra Jökul Andrésson í marki FH en boltinn fór hársbreidd framhjá.

Örvar var svo aftur á ferðinni um miðbik fyrri hálfleiks þegar hann geystist upp hægri kantinn, renndi boltanum fyrir mark FH. Þar kom Birnir Snær Ingason aðvífandi á fjærstöngina og setti boltann í netið.

Emil Atlason komst einnig nálægt því að skora fyrir Stjörnuna í fyrri hálfleik en Emil fór svo meiddur af velli um það 10 mínutum fyrir lok fyrri hálfleiks.

FH-ingar sóttu svo í sig veðrið á lokakafla fyrri hálfleiks og uppskáru jöfnunarmark skömmu fyrir hálfleikinn. Kjartan Kári Halldórsson skoraði þá af feykilegu öryggi úr vítaspyrnu sem dæmd var á Örvar fyrir að fella Adolf Daða Birgisson, fyrrverandi leikmann Stjörnunnar. Staðan var 1-1 þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik.

Örvar Eggertsson er hér nýbúinn að fá dæmda á sig vítaspyrnu fyrir brot á Adolfi Daða Birgissyni. Vísir/Pawel

Tómas Orri Róbertsson náði svo forystunni fyrir FH í upphafi seinni hálfleiks. Tómas Orri gerði þá vel í að koma sjálfum sér í góða stöðu. Tómas Orri fékk að leika óáreittur upp að vítateigslínu upp við mark Stjörnunnar. Þar lét hann skotið ríða af, Árni Snær var með fingur á boltanum sem fór hins vegar í stöngina og inn.

Eftir rúmlega klukkutíma leik var staðan orðin jöfn. Andri Rúnar Bjarnason átti þá skalla sem Jökull Andrésson varði. Guðmundur Baldvin Nökkvason var réttur maður á réttum stað og potaði boltanum í netið af stuttu færi.

Andri Rúnar skoraði svo markið sem tryggði Stjörnunni stigin þrjú nokkrum mínútum fyrir leikslok. Samúel Kári Friðjónsson átti þá sendingu inn á vítateig FH og Andri kláraði færið af stakri prýði. 

Lokatölur 3-2 Stjörnunni í vil en Stjarnan er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. FH er hins vegar með eitt stig eftir tvo leiki.

Jökull I. Elísabetarson og lærisveinar hans hjá Stjörnunni fara vel af stað. Vísir/Pawel

Jökull: Stuðningurinn úr stúkunni gaf okkur orku

„Mér fannst fínt orkustig í þessum leik og við spiluðum bara heilt yfir vel. Að mínu mati hefðum við getað skorað fleiri mörk og farið með meira sannfærandi sigur af hólmi,“ sagði Jökull I. Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, sáttur að leik loknum. 

„Við vorum að koma okkur trekk í trekk í góðar stöður sem við hefðum getað nýtt betur. Það var svo lítið við mörkunum þeirra að gera. Sérstaklega því fyrra og svo kemur það seinna eftir skyndisókn,“ sagði Jökull enn fremur. 

Jökull þurfti að taka Emil Atlason af velli eftir rúmlega hálftíma leik en þar var um varúðarráðstöfun að ræða: „Þetta eru smávægileg meiðsli hjá Emil og við vorum í raun bara að passa upp á að meiðslin yrðu ekki verri. Þá er mjög gott að eiga Andra Rúnar á bekknum. Fyrir utan það að skora sigurmarkið gefur Andri liðinu gríðarlega mikið,“ sagði Jökull um framherjana sína. 

„Það var frábært að finna fyrir miklum stuðningi úr stúkunni og vinna þennan sigur fyrir mikla Stjörnufjölskyldu sem missti mikinn höfðingja og gegnheilan Sjörnumann á dögunum. Nú förum við brattir inn í leikinn við Víking sem verður bara skemmtilegt að spila,“ sagði hann. 

Jóhannes Karl: Svekkjandi að fá ekkert út úr þessum leik

„Uppleggið gekk ekki nægilega vel upp í fyrri hálfleik en við fórum yfir málin í hálfleik og náðum að loka betur á það sem Stjarnan var að reyna að gera lungann úr seinni hálfleiknum,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH. 

„Þegar við vorum búnir að loka á spil Stjörnunnar í gegnum miðsvæðið fóru þeir að herja á okkur hægra megin og koma sér í yfirtölu þar. Þaðan dældu þeir inn krossum á Andra Rúnar sem reyndist okkur mjög erfiður. 

Það er enn meira svekkjandi að Andri hafi náð að skora í ljósi þess að við vorum nýbúnir að bæta við hafsent til þess að freista þess að díla betur við hann. Það var hins vegar ekki nóg,“ sagði Jóhannes Karl þar að auki. 

„Að mínu mati spiluðuð við nógu vel í þessum leik til þess að fá eitt stig út úr honum. Það tókst hins vegar ekki og eitt stig er uppskeran eftir tvo leik. Vissulega hefði ég viljað vera með fleiri stig en spilamennskan í Eyjum verðskuldaði sigur og í kvöld áttum við eitt stig skilið gegn frábæru Stjörnuliði. FH-liðið er á flottum stað en við þurfum að halda áfram að laga það sem upp á vantar til þess að sækja fleiri stig,“ sagði hann um stöðu mála. 

Jóhannes Karl Guðjónsson á hliðarlínunni í leiknum í kvöld. Vísir/Pawel

Atvik leiksins

Þegar allt stefndi í jafntefli skoraði Andri Rúnar dramatískt sigurmark. Það er munaður fyrir Stjörnuna að eiga Andra Rúnar á bekknum þegar það þarf að bæta sóknarþungann eða leysa Emil af hólmi. 

Stjörnur og skúrkar

Ibrahim Turay var flottur inni á miðsvæðinu hjá Stjörnunni. Örvar Eggertsson var skeinuhættur á hægri vængnum og Guðmundur Baldvin var naskur við að finna sér pláss á milli miðju og varnar hjá FH. 

Andri Rúnar kom sterkur inn af varamannabekknum hjá Stjörnunni og skoraði markið sem skildi liðin að. Samúel Kári kom einnig með orku með innkomu sinni af tréverkinu. 

Sú hætta sem skapaðist hjá FH í fyrri hálfleik var í kringum Kjartan Kára Halldórsson. Tómas Orri skoraði snoturt mark og spilaði heilt yfir vel inni á miðjunni líkt og Kári Kristjánsson. 

Guðmundur Baldvin Nökkvason skoraði eitt marka Stjörnunnar. Vísir/Pawel

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Helgi Mikael Jónasson, Egill Guðvarður Guðlaugsson, Eysteinn Hrafnkelsson og Arnar Þór Stefánsson áttu heilt yfir fínt kvöld. Vítaspyrnan var umdeilanleg en aðrar stórar ákvarðanir dómarateymisins virtust vera réttar. Þeir fá þess vegna sjö í einkunn. 

Stemming og umgjörð

Þétt setið í stúkunni á kvöldi þar sem við fengum vorblíðu, monsúnregn og stillt veður í lokin. Góð stemming hjá stuðningsmönnum beggja lið og leikurinn í heild sinni bara hin besta skemmtun. 

Stjörnumenn eru með fullt hús stiga eftir tvo leiki. Vísir/Pawel

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira