Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Aron Guðmundsson skrifar 14. apríl 2026 09:49 Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR bíður nú svara varðandi það hvort hann þurfi í aðgerð eftir að hafa slitið sin í hné í leik með KR um helgina. Vísir/Samsett Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR sleit sin í hné í leik liðsins gegn Keflavík í fyrstu umferð Bestu deildarinnar um nýliðna helgi. Arnar bíður nú svara varðandi það hvort hann þurfi að fara í aðgerð.
Þetta staðfestir Arnar Freyr í samtali við Vísi en það var á áttundu mínútu leiksins sem hann varð fyrir meiðslunum er hann mætti út úr vítateignum til að hreinsa frá langa sendingu Keflvíkinga fram völlinn. Arnar lagðist af sjálfsdáðum niður sem er aldrei gott merki og eftir myndatöku í gær er orðið ljóst að sin er slitin í hægra hné hans. „Læknirinn hjá KR hefur verið í sambandi við bæklunarlækni varðandi það hvort ég þurfi að fara í aðgerð til þess að festa sinina aftur. Ég býst við því að fá svör varðandi það í dag,“ segir Arnar í samtali við Vísi og bætir því við að slíkt sé yfirleitt gert hjá íþróttafólki. Ef að þörf sé á aðgerð hefur Arnar heyrt að hann gæti verið frá í kringum sex mánuði. Það yrði högg fyrir KR-inga því Arnar, sem gekk til liðs við félagið frá HK á síðasta ári, hafði verið að standa sig virkilega vel á undirbúningstímabilinu og gert markvarðarstöðuna að sinni í samkeppni við Halldór Snæ Georgsson. Hefur verið talað um að Arnar henti leikstíl KR-inga virkilega vel þar sem honum líður vel með að koma framar á völlinn og taka þátt í uppspili liðsins. KR hafði betur gegn Keflavík í umræddum leik sem bauð upp á mikla dramatík. Lokatölur urðu 3-2 KR í vil. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan:
Besta deild karla KR Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira