Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Tómas Arnar Þorláksson skrifar 14. apríl 2026 19:02 Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi þingmaður Flokks fólksins. vísir/bjarni Guðmundur Ingi, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Flokks fólksins, hefur enga skýringu gefið á úrsögn sinni úr flokknum. Þingmenn segjast ekki vita hvað olli úrsögninni en innan flokksins er skorað á Guðmund að endurskoða ákvörðun sína og snúa aftur heim, í Flokk fólksins.
Guðmundur Ingi Kristinsson sagði sig óvænt úr Flokki fólksins og þingflokki flokksins eftir að hafa farið með ráðuneyti barna- og menntamála í nafni flokksins en hann var þingflokksformaður flokksins fyrir það. Hann hyggst sitja áfram á þingi utan þingflokka og styðja ríkisstjórnina. Kýs ekki að tjá sig við fjölmiðla Guðmundur hefur ekki gefið kost á viðtali til að skýra ákvörðun sína þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fréttastofu í dag. Í gær vísaði hann til persónulegs trúnaðarbrests sem varðar persónuleg samskipti innan flokksins sem ástæðu afsagnarinnar án þess að skýra hvað það þýðir. Formaður flokksins kannaðist ekki við trúnaðarbrest þegar hún ræddi við fréttastofu í gær. Þetta hlýtur að hafa verið eitthvað stórmál sem hefur komið upp? „Það var ekkert umfram það sem áður hefur komið fram og ég bara mæli með því að þú myndir ræða það við Gumma en það er engu meira við það að bæta.“ Ráðherraskipti og veikindi Þingmenn flokksins sem fréttastofa ræddi við í dag sögðust ekki vita fyrir víst hvað lægi að baki ákvörðun Guðmundar. Viðmælendur á Alþingi grunaði að úrsögnin tengdist ráðherraskiptum flokksins í upphafi árs. Guðmundur tók við af Ásthildi Lóu sem mennta- og barnamálaráðherra eftir að hún sagði af sér í mars í fyrra. Þann níunda desember fór hann í veikindaleyfi vegna opinnar hjartaaðgerðar og nokkrum dögum seinna sagði formaður flokksins það óvíst hvort hann myndi snúa aftur í ráðuneytið. Á síðasta degi ársins tilkynnti Guðmundur að aðgerðin hefði gengið vel og sagðist hlakka til að mæta aftur til starfa. Rúmlega viku síðar tilkynnti hann óvænt afsögn úr embætti. Um miðjan mars sneri hann aftur sem óbreyttur þingmaður og tæplega mánuði síðar sagði hann sig úr flokknum. „Engin skömm af því að endurskoða sinn hug“ Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, sem fréttastofa ræddi við í dag segir mikinn missi að Guðmundi. „Ég var bara mjög undrandi. Ég hélt að Guðmundur Ingi væri að koma galvaskur aftur til starfa. Ég er döpur yfir þessu eins og minn formaður. Ég myndi gjarnan vona að hann myndi endurskoða sinn hug og koma aftur til okkar. Við myndum taka því mjög fagnandi. Það er engin skömm af því að endurskoða sinn hug og melta þetta aðeins betur.“ Lilja Rafney Magnúsdóttir sat á þingi fyrir Vinsti græna á árunum 2009 til 2021 og hefur setið á þingi fyrir Flokk fólksins frá árinu 2024.Vísir/Vilhelm Var einhver aðdragandi að þessu? „Ekki að mér vitandi. Þetta kom bara mjög á óvart. Við vorum ágætis vinir og ég kem til með að sakna hans þó ég sjái hann á þingi áfram. Maður vill bara hafa hann áfram í Flokki fólksins. Það er mikill missir að missa hann úr þingflokknum og ég skora á hann til að endurskoða sinn hug.“ Myndi þér bregða að sjá hann ganga til liðs við annan flokk? „Ég hef bara enga trú á því að hann geri það. Málefnalega held ég að hann sé með sömu hugsjónir og hann var með áður og ég held að það hafi ekkert breyst.“
Flokkur fólksins Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Fleiri fréttir Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Sjá meira