Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Kjartan Kjartansson skrifar 10. apríl 2026 08:50 Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, með Donald Trump í Hvíta húsinu í fyrra. Fundur þeirra í þessari viku var á bak við luktar dyr og virðist hafa verið nokkuð stormasamur. Vísir/EPA Fundur Marks Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í vikunni er sagður hafa einkennst af fúkyrðaflaumi forsetans. Hann á að hafa hótað NATO-ríkjum hefndaraðgerðum vegna þess að þau hafa ekki viljað taka þátt í aðgerðum Bandaríkjamanna í Íran.
Rutte hitti Trump í Washington-borg á miðvikudag. Fundurinn var skipulagður fyrir nokkru síðan en hann bar upp á tíma þegar Trump deildi hart á NATO-ríki fyrir að neita að hjálpa Bandaríkjunum að þvinga Írani til þess að opna Hormússund fyrir flutningaskipasiglingum. Íranir lokuðu sundinu eftir að Bandaríkjamenn og Ísraelar myrtu leiðtoga klerkastjórnarinnar og gerðu loftárásir á landið. Trump hafði ekki fyrir því að láta bandamenn Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu vita af árásunum fyrir fram en hefur verið ósáttur við að þeir vilji ekki taka þátt í að glíma við afleiðingar þeirra. Fundurinn snerist því fljótt upp í nauðvörn Rutte gegn bandaríska forsetanum sem jós úr skálum reiði sinnar og hótaði að draga Bandaríkin út úr NATO. „Það fór allt í skrúfuna,“ (e. It went shit) segir evrópskur heimildarmaður dagblaðsins Politico um fundinn. „Samtalið var ekkert nema holskefla svívirðinga“ þar sem Trump hótaði öllu illu, þar á meðal að beita NATO-ríki hefndaraðgerðum, ef þau aðstoðuðu ekki við að opna Hormússund strax. Lýsa fundinum sem „opinskáum“ Eftir fundinn gagnrýndi Trump enn bandalagsríkin í NATO. Talsmenn Hvíta hússins halda því fram að hann hafi ekki farið fram á neitt frá NATO á fundinum. Talsmenn Rutte og NATO hafa lýst samræðum þeirra Trump sem „mjög opinskáum“. Þeir gerðu lítið úr lýsingum heimildarmanna Politico á fundinum og sögðu hann þvert á móti hafa verið „uppbyggilegan“. Rutte, sem er fyrrverandi forsetisráðherra Hollands hefur gengið lengra en flestir aðrir Evrópuleiðtogar í að friðþægja Trump og reyna að koma sér í náðina hjá honum með því að ýta undir hégóma hans. Hollendingurinn kallaði Trump meðal annars „pabba“ sem þyrfti stundum að hækka róminn.
Donald Trump Bandaríkin NATO Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Öryggis- og varnarmál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira