Blóð úr hinum grunaða á hnífi á vettvangi Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 28. mars 2026 19:23 Portúgalskur maður fannst látinn á Skjólbraut í Kópavogi í nóvember í fyrra. Grískur maður er grunaður um að hafa drepið hann. Vísir/Vilhelm Lögregla telur framburð mannsins, sem grunaður er um að hafa stungið annan mann til bana í íbúð við Skjólbraut í Kópavogi í nóvember, ótrúverðugan en rökstuddur grunur er um að hann hafi veitt hinum látna áverka sem leiddu til dauða hans. Blóðug skóför og DNA hins grunaða á hnífum sem fundust á vettvangi auk lokaniðurstöðu krufningar eru meðal gagna sem benda til sektar hins grunaða.
Grískur karlmaður hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan 10. desember í tengslum við rannsókn lögreglu á mannsláti við Skjólbraut í Kópavogi þann 30. nóvember. Maðurinn var handtekinn nokkrum dögum eftir andlátið en sleppt úr haldi eftir nokkurra daga gæsluvarðhald. Degi eftir að honum var sleppt var hann handtekinn á ný og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari staðfesti í samtali við fréttastofu í vikunni að maðurinn yrði ákærður fyrir manndráp. Sagði þá hafa spilað fjárhættuspil og tekið kókaín Í gæsluvarðhaldsúrskurði Landsréttar sem kveðinn var upp 2. mars er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum staðfestur. Í honum kemur fram að bróðir hins látna hefði tilkynnt lögreglu að hann sæi bróður sinn meðvitundarlausan inni í íbúð sinni að Skjólbraut. Lögregla greindi stunguáverka á hálsi, kvið og neðarlega á maga. Í skýrslutöku kvaðst fyrrverandi kærasta hins látna hafa slitið sambandi við hann skömmu fyrir atvikið. Daginn áður en hann fannst látinn hafi hún sent honum skilaboð sem hann svaraði ekki. Í skýrslutöku hafði hinn grunaði sagst hafa farið heim til hins látna föstudagskvöldið 28. nóvember í tvær klukkustundir. Þeir hafi spilað fjárhættuspil og tekið kókaín. Hann sagði ástand vinar síns ekki hafa verið gott, hann hafi reykt kókaín og sofið illa. Þá neitaði hinn grunaði að hafa veitt honum áverka. Þreif eitt skópar og henti öðru Í annarri skýrslutöku var hinn grunaði spurður út í hvaða skóm hann var umrætt föstudagskvöld. Hann kvaðst ekki vita hvar þeir væru og mögulega hefði konan hans hent þeim í ruslið. Fram kemur í úrskurðinum að lögregla rannsaki tvenn mismunandi blóðug skóför sem fundust á vettvangi. Í húsleit á heimili hins grunaða hafi fundist skór með skósóla sem samsvaraði öðru farinu sem fannst á vettvangi en skórnir höfðu þá verið þrifnir. Skór sem hinn grunaði sást í á myndbandsupptöku í aðdraganda atviksins fundust ekki við húsleit og hinn grunaði kvaðst hafa farið með þá í Sorpu, þar sem hann hygðist flytja úr landi brott um áramótin. Samkvæmt úrskurðinum telur lögregla skýringar hins grunaða á því hvað hafi orðið af skófatnaði hans ótrúverðugar. Sagði kött hafa klórað sig Jafnframt sagðist hinn grunaði hafa farið í sund daginn eftir atvikið í einni skýrslutöku. Þegar lögregla bar síðar undir hann að hann hafi ekki sést mæta í sundlaugina á myndbandsupptökum sagðist hann ekki hafa farið inn heldur setið úti í bíl og spilað póker. Í enn einni skýrslutökunni var borin undir hann niðurstaða erfðarannsóknar sem sýndi að blóð úr honum hefði fundist á hníf á heimili hins látna. Hann sagðist þá hafa skorið sig við að skera epli og umbúðir utan af kókaíni. Þó hafði hann í réttarlæknisskoðun nokkrum dögum fyrr sagt áverka á höndum hans til komna vegna þess að sonur hans hafi verið að leika sér með hníf og að auki hefði hann verið klóraður af ketti. Í gæsluvarðhaldsúrskurði héraðsdóms, sem síðar var staðfestur í Landsrétti, segir að rökstuddur grunur sé fyrir hendi um að hinn grunaði hafi veitt hinum látna áverka sem leiddu til dauða hans. Gögn málsins, einkum lokaniðurstaða krufningar, ummerki á vettvangi, skýrslur tæknideildar, svo sem DNA-rannsókn á haldlögðum hnífum og rannsókn á áðurnefndu skófari, veiti lögreglu rökstuddan grun gegn manninum. Þá bendi lokaniðurstaða krufningar til þess að annar maður hafi veitt hinum látna áverka sem leiddu til dauða hans og dánaratvik hafi því verið manndráp. Framlengt á grundvelli rannsóknarhagsmuna Samkvæmt úrskurðinum telst ljóst að brýnir rannsóknarhagsmunir séu í húfi og því teldist rétt að úrskurða manninn í áframhaldandi gæsluvarðhald. Karl Ingi staðfesti við fréttastofu í síðustu viku að samhliða ákæru yrði farið fram á að gæsluvarðhald yfir manninum verði framlengt. Með úrskurðinum fór lengd gæsluvarðhalds yfir manninum umfram tólf vikur en samkvæmt sakamálalögum má úrskurða sakborning í gæsluvarðhald lengur en tólf vikur án þess að ákæra sé gefin út eða brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist þess. Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms þar sem fallist var á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum en líkt og áður segir hefur hann setið í gæsluvarðhaldi frá 10. desember.
Dularfullt mannslát við Skjólbraut í Kópavogi Kópavogur Lögreglumál Dómsmál Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Innlent Fleiri fréttir „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Sjá meira