1,2 milljarðar á milli í bílastæðadeilu við nýjan Landspítala Birgir Olgeirsson skrifar 27. mars 2026 14:25 Nýr Landspítali rýs við Hringbraut en nú deila Reykjavíkurborg og Nýr Landspítali ohf. um kostnað við bílastæði. Vísir/Vilhelm Nýr Landspítali ohf. og Reykjavíkurborg deila um hver eigi að bera kostnað af uppbyggingu bílakjallara og bílastæðahúss við nýja Landspítalann við Hringbraut. Nýr Landspítali telur borgina eiga að greiða 1.695 milljónir króna en borgin telur sig aðeins skuldbundna til að greiða 450 milljónir króna. Þar munar því 1.245 milljónum króna eða rúmum 1,2 milljörðum.
Þetta kemur fram í svarbréfi Reykjavíkurborgar til Nýs Landspítala, dagsettu 4. mars 2026, sem var rætt á fundi borgarráðs í gær. Í bréfinu segir að krafa Nýs Landspítala ohf. lúti að uppbyggingu bílakjallara undir Sóleyjartorgi og bílastæðahúss við gatnamót Burknagötu og Fífilsgötu og byggi á samkomulagi Reykjavíkurborgar og íslenska ríkisins frá 27. apríl 2004. Telja aðeins 450 milljónir standa eftir Reykjavíkurborg hafnar þeirri túlkun. Borgin segir samkomulagið aðeins hafa kveðið á um kostnaðarþátttöku að hámarki 500 milljóna króna á verðlagi í maí 2003, en ekki verðtryggða eða vísitölubundna fjárhæð. Þá bendir borgin á að hún hafi þegar efnt hluta þeirrar skuldbindingar með framkvæmdum að verðmæti 50 milljónir króna árið 2005 og því standi eftir 450 milljónir króna sem hún segist reiðubúin að greiða íslenska ríkinu sem fullnaðaruppgjör. Göturnar falli á ríkið Í bréfinu kemur jafnframt fram að Nýr Landspítali vilji að borgin taki þátt í kostnaði vegna Burknagötu og Hvannargötu. Borgin hafnar því líka og vísar til samkomulags frá 5. ágúst 1976 þar sem kveðið sé á um að gatnakerfi innan lóðar Landspítalans sé á kostnað ríkisins. Rök borgarinnar eru því þau að þessar götur liggi innan fyrirhugaðrar lóðar Landspítalans og Háskóla Íslands og falli því ekki á Reykjavíkurborg. Um Burknagötu bætir borgin við að af gögnum megi ráða að hluti kostnaðarins tengist Borgarlínu og að Betri samgöngur ohf. eigi því að minnsta kosti að taka þann hluta. Undanþága nái ekki til HÍ-húsnæðis Þá er einnig deilt um gatnagerðargjald vegna fasteignarinnar að Vatnsmýrarvegi 16. Þar segir Reykjavíkurborg að undanþága frá gatnagerðargjaldi gildi um húsnæði sem ætlað er undir sjúkrahús, en ekki sjálfkrafa um aðrar byggingar á svæðinu. Þar sem húsið við Vatnsmýrarveg 16 sé samkvæmt bréfinu ætlað heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands, en ekki sjúkrahúsi, telji borgin bæði rétt og skylt að leggja á það gatnagerðargjald. Benda líka á óúthlutað landsvæði Í lok bréfsins bendir borgin einnig á að landsvæðinu sem Nýr Landspítali hefur byggt á hafi ekki verið úthlutað af Reykjavíkurborg til ríkisins eða annarra tengdra aðila. Borgin segist þó reiðubúin til viðræðna um úthlutun lands og endurgjald fyrir byggingarrétt þar sem það á við.
Landspítalinn Reykjavík Bílastæði Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Segir ótímabært að ræða undanþágur Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Sjá meira