Hafa áhyggjur af húsnæðis- og byggingamarkaði Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 25. mars 2026 12:26 Ritið fjármálastöðugleiki 2026 kom út í dag og nefndin kynnti yfirlýsingu sína í morgun. Vísir/Vilhelm Það er áhyggjuefni að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands hversu mjög hefur hægst á sölu eigna á byggingamarkaði, bæði sölu á eignum í nýbyggingum og nú einnig eldri íbúðum. Seðlabankastjóri segir góðærinu að einhverju leyti lokið en að viðnámsþróttur í hagkerfinu sé með ágætum.
Á fundi nefndarinnar í morgun voru nokkrir áhættuþættir dregnir fram. Stríðið í Íran einn af þeim. Síðustu vikurnar hefur alþjóðapólitísk áhætta tengst stríðsátökum Bandaríkjunum og Ísraels við Íran. Olíu- og gasflutningar frá Persaflóaríkjum hafa að miklu leyti stöðvast vegna stríðsins og heimsmarkaðsverð á olíu og gasi hefur í kjölfarið verið á uppleið. „Það er ekki einu sinni víst að þó Bandaríkjamenn snú við og hætti þessu að Hormússund opnist. Það er það sem markaðurinn hefur áhyggjur af. Það er gríðarlega mikið af olíu þarna. Ef það verður farið í að sprengja upp olíuhreinsistöðvar og olíulindir og svo framvegis þá mun það hafa varanleg áhrif og þetta er eitt af því sem veldur áhyggjum,“ segir Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri. Í yfirlýsingu nefndarinnar var einnig fjallað um stöðuna á húsnæðis- og byggingamarkaði. Verulega hefur dregið úr hækkun íbúðaverðs, allt frá 2022. Vísitala íbúðaverðs á landinu öllu lækkaði að raunvirði í febrúar um þrjú prósent milli ára og lengri tíma tekur að selja eignir en áður. Tómas Brynjólfsson er varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika og varaformaður nefndarinnar.Vísir/Vilhelm „Framboð eigna á sölu hefur vaxið töluvert. Við höfum aðeins áhyggjur af því en á móti kemur þá eru þessir verktakar sem hafa verið að byggja umræddar eignir allir með sterka fjárhagsstöðu og bankarnir sem standa að baki þeim eru líka með sterka fjárhagsstöðu. Þessi staða er til komin vegna þess að heimilin hafa verið að halda að sér höndum vegna kaupa á íbúðum.“ Áður hafa verið fluttar fréttir af því að sala nýbygginga gangi hægt en á fyrstu mánuðum ársins sáust merki þess að sala eldri íbúða tæki nú einnig lengri tíma. „Það gerist að einhverju marki af því að við höfum þurft að grípa til aðgerða. Við hækkuðum vexti í síðustu viku vegna hækkandi olíuverðs og annarra hluta og það hefur áhrif á fasteignamarkaðinn.“ Um miðjan mars voru um þúsund fleiri íbúðir auglýstar til sölu en í ársbyrjun. Ásgeir bendir þó á að byggingafyrirtækin og verktakar séu með mikinn viðnámsþrótt. „Það sem við höfum verið að gera síðustu fimm árin er að tryggja það að það verði ekki of mikil skuldsetning, með lánþegaskilyrðum og líka að leggjast á bankana með eiginfjárkröfu þannig að þeir eigi meira eigið fé og það sem við erum að sjá núna er kannski fjármagnskerfi sem er tiltölulega lítið skuldsett og þolir alveg þessa áraun en við höfum engar svakalegar áhyggjur af þessu í bili en þetta er sá áhættuþáttur sem við drögum helst fram í því sem við erum að gera.“
Seðlabankinn Fjármálamarkaðir Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía Húsnæðismál Byggingariðnaður Tengdar fréttir Lánveitendur þurfa að vera vakandi fyrir „aukinni áhættu“ í byggingageiranum Vaxandi óvissa í alþjóðamálum samhliða versnandi verðbólguhorfum og væntingum um hærri vexti og hægari efnahagsumsvif gæti haft þau áhrif að það mun reyna á fjármálastöðugleika hér á landi, að mati Seðlabankans, en þjóðarbúið og fjármálakerfið stendur sterkt til að mæta þeim áskorunum. Fjármálastöðugleikanefnd brýnir einnig lánveitendur til að vera vakandi fyrir „aukinni áhættu“ í byggingageiranum en skuldir hafa þar farið vaxandi. 25. mars 2026 09:09 Þörf á að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst Í nýrri yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar segir að þörf sé á að koma á kortaviðskiptum á Íslandi án nettengingar sem fyrst. Þar segir einnig að fjármálakerfið standi traustum fótum og sé vel í stakk búið að mæta ófyrirséðum áföllum. Í yfirlýsingunni segir enn fremur að stríðið við Persaflóa hafi leitt til framboðstruflana og verðhækkana og óvissa sé meiri í alþjóðamálum. 25. mars 2026 08:41 Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira
Lánveitendur þurfa að vera vakandi fyrir „aukinni áhættu“ í byggingageiranum Vaxandi óvissa í alþjóðamálum samhliða versnandi verðbólguhorfum og væntingum um hærri vexti og hægari efnahagsumsvif gæti haft þau áhrif að það mun reyna á fjármálastöðugleika hér á landi, að mati Seðlabankans, en þjóðarbúið og fjármálakerfið stendur sterkt til að mæta þeim áskorunum. Fjármálastöðugleikanefnd brýnir einnig lánveitendur til að vera vakandi fyrir „aukinni áhættu“ í byggingageiranum en skuldir hafa þar farið vaxandi. 25. mars 2026 09:09
Þörf á að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst Í nýrri yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar segir að þörf sé á að koma á kortaviðskiptum á Íslandi án nettengingar sem fyrst. Þar segir einnig að fjármálakerfið standi traustum fótum og sé vel í stakk búið að mæta ófyrirséðum áföllum. Í yfirlýsingunni segir enn fremur að stríðið við Persaflóa hafi leitt til framboðstruflana og verðhækkana og óvissa sé meiri í alþjóðamálum. 25. mars 2026 08:41