Niðurlæging Íslensku Hamingjuþjóðarinnar Sigurður Sigurðsson skrifar 22. mars 2026 07:00 Það er ekki lengur hægt að líta á stöðuna í íslensku samfélagi sem röð óheppilegra mistaka. Þegar sama niðurstaðan birtist aftur og aftur – að almenningur situr uppi með kostnaðinn á meðan fáir hagnast – þá er valdamynstrið sjálft vandamálið. Auðlindirnar – afhentar og arðurinn tekinn Fiskveiðiauðlindin var í reynd afhent án endurgjalds og síðar gerð að framseljanlegri eign. Sameiginleg auðlind varð að svakalegri tekjulind fyrir fáa. Almenningur sat eftir - tekjur auðlinda renna takmarkað í sameiginlegan sjóð til að standa undir rekstri samfélagsins - samt vilja auðmenn til dæmis fá fría velferðarþjónustu á kostnað almennings - í viðbót við auðlindirnar? Fákeppni og samþjöppun valds Í litlu samfélagi með takmarkaða samkeppni hefur verslun og þjónusta safnast á fáar hendur. Fjársterkir aðilar – oft þeir sömu og hafa hagnast á auðlindum og tengslamarkaði – hafa náð sterkri stöðu, með pólitíkina annars vegar og fjármálakerfið hins vegar sér við hlið. Þetta skapar kerfi þar sem samkeppni veikist, verð hækkar og valdið safnast saman. Verðbólga og stýrivextir hækka. Og aftur: almenningur borgar. Skortur og gjaldtaka Bílastæðum hefur verið fækkað og gjaldtaka aukist. Þegar framboð er skert án lausna, myndast skortur – og skortur er tekjulind fyrir fáa. Almenningur borgar. Húsnæði – höft í stað uppbyggingar Íbúðaskorti er svarað með því að þrengja að útleigureglum í stað uppbyggingar. Frelsi er skert, en framboð eykst ekki. Vandinn festist – og verður dýrari - almenningur tekur afleiðingunum. Umferðin – tafir sem daglegt ástand Í stað þess að bæta umferðarflæði er þrengt að götum. Á meðan eru sett af stað verkefni sem taka áratugi. Fólk tapar tíma og lífsgæðum – daglega - í stað raunverulegra lausna strax. Heilbrigðiskerfið – bið í stað þjónustu Nýi Landspítalinn hefur dregist árum saman. Á meðan bíður veikt fólk klukkustundum og jafnvel sólarhringum á bráðadeild. Þetta er kerfisvandi sem bitnar á þeim veikustu og almenningur borgar allt sukkið. Byggingaleka- og myglumartröð – reikningurinn sendur til fólksins Opinberar byggingar hafa ítrekað farið úr böndunum: mygla, leki og milljarða-aukakostnaður við viðgerðir. Þetta er ekki undantekning. Þetta er viðvarandi leka- og myglumynstur sem leggst með þunga á skattgreiðendur. Þjóðin samþykkti – kerfið hunsaði Þjóðin samþykkti nýja stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu. Viljinn var skýr: styrkja réttindi almennings og auka aðhald. En ekkert gerðist. Fólkið má ekki fá aukin réttindi - bara þegja og borga allan skandala elítunnar - aftur og aftur. Mynstrið hvernig valda-elítan níðist á almenningi Myndin er einföld: Sameiginleg gæði færð til fárra svo sem fiskveiðiauðlindin Markaðir safnast á fáar hendur svo sem matvöruverslunin og skipaútgerð Skortur látinn viðgangast svo hægt sé að deila verkefnum með fáum Áhætta færð yfir á almenning - gróðinn á elítuna - svo sem í Nýja Landspítalanum Vilji þjóðarinnar hundsaður í Stjórnarskrármálinu Á sama tíma virðist eitt lögmál gilda: Gróðinn er einkavæddur – tapið er félagsvætt. Þjóðin borgar og elítan græðir. Að lokum Þetta er ekki lengur spurning um einstök mál. Þetta er spurning um kerfi sem virðist yfirleitt vinna með fáum en gegn mörgum. Afleiðingarnar eru viðvarandi verðbólga og háir stýrivextir - sem virka illa þegar eyðslan er óstjórnleg hjá þeim sem eiga nær alla peningana. Og þeir fátæku verða fátækari og þeir ríku verða ríkari - þegar upp er staðið. Ef ekkert breytist mun þetta ástand halda áfram að grafa undan lífskjörum og trausti. Og þá er spurningin sem stendur eftir: Hversu lengi ætlar almenningur að borga reikninginn - þegjandi og hljóðalaust? Það er ekki víst að þetta ástand gangi endalaust og skellur elítunnar gæti orðið svakalegur - eins og gerst hefur í samfélögum þar sem elítan kann sér ekkert hóf. Höfundur er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um bætt samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun