Neytendur

Green Parking segir rang­færslur í um­fjöllun um dýru pizzuna

Eiður Þór Árnason skrifar
Bílastæðið er meðal annars notað af viðskiptavinum Domino's og Veiðifélagsins auk starfsmanna fleiri fyrirtækja.
Bílastæðið er meðal annars notað af viðskiptavinum Domino's og Veiðifélagsins auk starfsmanna fleiri fyrirtækja. Vísir/vilhelm

Fyrirtækið Green Parking segir rangfærslur hafa komið fram í umfjöllun um ökumann sem rukkaður var um vangreiðslugjald þegar hann lagði bíl við Domino‘s í Nóatúni í Reykjavík. Ekki sé rétt að fólk þurfi að vera með app í síma til að geta lagt þar frítt í 45 mínútur.

Þá leiki enginn vafi á því að heimild sé fyrir sjálfvirkri gjaldtöku á bílastæðum sem þessum og fyrirtækið hafi fellt niður kröfur viðskiptavina til að sýna þeim sem eigi í vandræðum þjónustulipurð. Ökumaðurinn telur sig hafa verið innan tímamarka og raunar sé tíminn aukaatriði.

Skilti á bílastæðinu við Nóatún en Sveinn tekur fram að hann hafi ekki tekið eftir merkingum á svæðinu.Vísir/Lýður Valberg

Vísir fjallaði á sunnudag um mál Sveins Ásgeirs Jónssonar sem furðaði sig á reikningi frá Green Parking sem birtist í heimabanka eftir að hann lagði bifreið á umræddu bílastæði. Eftir að hann gerði athugasemd við rukkun vangreiðslugjaldsins var krafan fljótlega felld niður. 

Green Parking segir myndavél á bílastæðinu skrá bílnúmer við innakstur og aftur við brottför. Kerfi reikni svo tímann sem líður og ökumenn þurfi ekki að hafa app í símanum ef þeir eru ekki lengur en 45 mínútur.

„Ef hins vegar bíll hefur dvalið lengur en 45 mínútur og ekki verið greitt fyrir notkunina þá þarf að greiða vangreiðslugjald,“ segir í yfirlýsingu fyrirtækisins til fréttastofu.

Nærri viss um að hann var styttra en fjörutíu mínútur

„Ég er nærri alveg viss um að ég var ekki lengur en fjörutíu mínútur þarna,“ segir Sveinn í samtali við fréttastofu í dag. Hann greindi frá því um helgina að hann hefði stokkið inn á Domino's í Nóatúni til að sækja sér pítsu en tók þá fram að það hafi ekki tekið nema nokkrar mínútur.

Í samtali við Vísi í dag segir Sveinn að enginn hafi haft samband við hann frá Green Parking eftir að krafan sem hann fékk í heimabanka var felld niður. Green Parking segir gögnum safnað um umferð bíla um stæðið.

„Myndavélar skrá tímasetningar og mynd af ökutækjum til staðfestingar og hægt að óska eftir þeim upplýsingum til staðfestingar séu viðskiptavinir í vafa um tilurð vangreiðslugjalda,“ segir í yfirlýsingu Green Parking.

Tíminn á bílastæðinu aukaatriði

Sveinn segir að hann hafi ekki tekið eftir upplýsingaskiltum á bílastæðinu í Nóatúni umræddan dag og hann því ekki áttað sig á því að þar væri gjaldskylda.

„Ég hef oft lagt þarna, margoft, en aldrei fengið neitt svona. Þannig að ég veit ekki hvað var öðruvísi.“

Fleiri hafi fengið rukkanir sínar felldar niður eftir að þeir hafi sett sig í samband við fyrirtækið og gert athugasemd.

Vísir/Lýður Valberg

„Þeir eru bara að sigta inn á það að fólk borgi og nenni ekki að standa í þessu og sé hrætt. Þetta eru bara hótanir. Eins og það lítur út fyrir mér,“ segir Sveinn.

„Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna. Og það er alveg hægt að rökstyðja það alveg í bak og fyrir. Eins og ég sagði þá er mjög ólíklegt að ég hafi verið meira en 40 mínútur og ef að ég var það, af hverju láta þeir mig þá ekki vita af því? Sönnunarbyrðin er ekki mín,“ bætir hann við.

Fyrirtækið sektað í fyrra

Sveinn bendir á að Green Parking og fleiri bílastæðafyrirtæki hafi verið sektuð af Neytendastofu í fyrra, meðal annars fyrir að hafa ekki upplýst neytendur um þjónustugjald og vangreiðslugjald á öðrum bílastæðum í þeirra umsjá. Síðar gaf Neytendastofa út leiðbeiningar fyrir gjaldskyld stæði. Fulltrúar Green Parking segja að fyrirkomulagið á umræddu bílastæði í Nóatúni sé í samræmi við þær.

Sveinn fullyrðir að vafi leiki á um lögmæti þess að fyrirtæki rukki bifreiðaeigendur með þessum hætti en Green Parking vísar því á bug í yfirlýsingu til fréttastofu.

„Það leikur enginn vafi á heimild til gjaldtöku og niðurfelling vangreiðslugjalds í kjölfar athugasemda er óháð því og snýst um þjónustulipurð við viðskiptavini sem nýta þjónustuna og lenda í vandræðum með að greiða fyrir gjaldskylda notkun.“

Mikil umferð er um bílastæðið í Nóatúni.Vísir/Lýður Valberg

Green Parking segir að fólki standi til boða að greiða ef það hyggst vera lengur en 45 mínútur á bílastæðinu við Nóatún og klukkustundin kosti 350 krónur.

„Það er vægast sagt subbulegt að refsa fólki fyrir að borga ekki 350 kall,“ segir Sveinn. „Þau hefðu getað rukkað mig um þennan 350 kall og ég hefði borgað hann umsvifalaust. En að rukka þig 5.750 krónur, það er subbulegt, vægast sagt.“

Hæstiréttur fjallaði um gjaldskyldu leigjenda bílaleigubíla

Sveinn telur að fyrirtækjum á borð við Green Parking sé óheimilt að rukka eiganda bíls með sjálfvirkum hætti og vísar til dóms Hæstaréttar í máli Rekstrarfélags Hafnartorgs gegn Brimborg. Þar komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að Brimborg þyrfti ekki að greiða Rekstrarfélaginu vegna afnota viðskiptavina bílaleigu Brimborgar á bílastæði Hafnartorgs sem slepptu því að borga.

Hæstiréttur staðfesti úrskurð Landsréttar og Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu. Vísir/Vilhelm Gunnarsson

Taldi dómstóllinn að leigusamningur Brimborgar við leigutaka hafi ekki veitt þeim umboð til að skuldbinda Brimborg til að greiða gjald fyrir afnot af bílastæðinu. Á sama tíma féllst Hæstiréttur á að ökumenn hafi verið skuldbundnir til að greiða fyrir notkun sína þar sem merki á staðnum gæfu skýrt til kynna að þeir þyrftu að greiða fyrir að leggja á bílastæðinu.

Green Parking fullyrðir líkt og áður segir að enginn vafi sé á lögmæti fyrirkomulagsins og vísar meðal annars til þess að Neytendastofa hafi gefið út leiðbeiningar um gjaldskyld bílastæði á borð við þetta. Voru leiðbeiningarnar kynntar sem hluti af fyrirætlunum Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um að skýra regluverk og bæta réttindi neytenda vegna gjaldtöku á bílastæðum.

Yfirlýsing Green Parking í heild sinni

„Í framhaldi af fréttaflutningi óánægðs pizzu kaupanda um greiðsluhætti á bílastæði við Nóatún vill Green Parking koma eftirfarandi leiðréttingu á framfæri vegna þeirra rangfærslna sem þar koma fram og óskum við leiðréttinga á þeim sem fyrst.

Í stöðu uppfærslu á Facebook og fréttaflutningi af „dýrri pizzu“ er því haldið fram að ekki sé hægt að nýta sér 45 mín fría lagningu bifreiðar nema að hlaðið sé niður appi. Það er ekki rétt, það þarf ekki að sækja app til þess að nýta sér þessar fríu mínútur. Myndavél skráir bílnúmer við innakstur og aftur við brottför. Reiknar sjálfvirkt út dvalartíma og ekkert þarf að gera sé hann skemmri en 45 mínútur. Ef hins vegar bíll hefur dvalið lengur en 45 mínútur og ekki verið greitt fyrir notkunina þá þarf að greiða vangreiðslugjald. Sem er auðvelt að komast hjá greiði maður við notkun, í þessu tilviki 350,- kr. fyrir klukkustundina. Myndavélar skrá tímasetningar og mynd af ökutækjum til staðfestingar og hægt að óska eftir þeim upplýsingum til staðfestingar séu viðskiptavinir í vafa um tilurð vangreiðslugjalda.

Þessar 45 mínútur eru hugsaðar til þess að viðskiptavinir á svæðinu geti nýtt sér þjónustuna. Standi hins vegar til að nýta sér bílastæðin og dvelja lengur þá tekur við greiðsluskylda eins og við þekkjum víða. Á þessu tiltekna bílastæði er hægt að greiða fyrir notkun bílastæðis með greiðsluappi eða í netgreiðslu og allar upplýsingar um þjónustuna koma fram á fjölmörgum skiltum á svæðinu, skiltum sem uppfylla allar kröfur Neytendastofu samkvæmt nýlega útgefnum leiðbeiningum þeirra um gjaldskyld bílastæði.

Víða hafa bílastæðaeigendur lent í vandræðum með að tryggja næg bílastæði fyrir viðskiptavini sína þar sem fjöldi fólks hefur lagt bifreiðum sínum til lengri eða skemmri tíma án þess að vera að sækja þjónustu á svæðinu. Með þessu fyrirkomulagi, rúmum gjaldfrjálsum tíma og greiðsluskyldu að honum loknum hefur verið auðveldara að tryggja viðskiptavinum næg bílastæði.

Það eru margir enn að venjast greiðsluskyldu við afnot bílastæða og því sýnum við liðlegheit þegar að fólk lendir í vandræðum með að greiða. Með skjótri og góðri afgreiðslu eins og þetta dæmi sýnir og viðskiptavinir verið bæði glaðir og þakklátir fyrir. Það leikur enginn vafi á heimild til gjaldtöku og niðurfelling vangreiðslugjalds í kjölfar athugasemda er óháð því og snýst um þjónustulipurð við viðskiptavini sem nýta þjónustuna og lenda í vandræðum með að greiða fyrir gjaldskylda notkun. Það er vert að taka það fram að lang stærsti hluti viðskiptavina Green Parking greiða án nokkurra vandræða fyrir notkun eins og lög gera ráð fyrir um selda og keypta þjónustu.“


Tengdar fréttir

Pítsan sem kostaði 7.740 krónur

Sveinn Ásgeir Jónsson tók málin í eigin hendur 12. febrúar þegar hann taldi sig ranglega rukkaðan um vangreiðslugjald. Hann kynnti sér málið, lagðist yfir gögn frá Neytendastofu, samningalög og innheimtulög og skrifaði andmælabréf með vísun til Hæstaréttar og sendi á Green Parking sem felldi kröfuna niður á innan við hálftíma. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×