Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Árni Sæberg skrifar 10. febrúar 2026 15:39 Hér má sjá aðskotahlutinn. Sláturfélag Suðurlands svf, í samráði við Matvælastofnun, hefur í öryggisskyni innkallað soðna lifrarpylsu með lotunúmeri 03-033, vegna aðskotahlutar sem fannst í vöru. Sá sem tilkynnti aðskotahlutinn telur að um járnflís hafi verið að ræða en forstjórinn segir að enn sé verið að greina hlutinn.
Í fréttatilkynningu frá SS segir að síðasti notkunardagur lotunnar sem innköllunin nær til sé 04. mars 2026. Neytendur sem hafa keypt soðna lifrarpylsu úr þessari lotu séu beðnir um að farga vörunni eða skila vörunni til viðkomandi verslunar eða beint til Sláturfélags Suðurlands svf, Fosshálsi 1, 110 Reykjavík. Beðist sé innilegrar velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Járnflís eða álhefti Sá sem tilkynnti aðskotahlutinn gerði Vísi viðvart um málið og sagðist telja að um járnflís væri að ræða. Hann hefði verið að brytja lifrarpylsuna niður fyrir barnunga dóttur sína þegar hann varð flísarinnar var. Í samtali við Vísi segir Steinþór Skúlason, forstjóri SS, að talið sé að aðskotahluturinn sé svokallað álhefti. Enn sé þó verið að greina hann. Ýmis málmleitar- og gegnumlýsingartæki séu í framleiðslulínu fyrirtækisins, sem eigi að girða fyrir að vörur með aðskotahlutum í komist í gegnum línuna. Aðeins ein tilkynning „Þannig að við erum að fara yfir það allt líka. Þetta er mál sem við tökum mjög alvarlega og þess vegna er þessi innköllun.“ Þá segir hann að fyrirtækinu hafi aðeins borist þessi eina tilkynning um aðskotahlut í slátrinu. „Við förum frekar á varkárari hliðina og innköllum frekar en að gera það ekki.“
Innköllun Matvælaframleiðsla Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Fleiri fréttir Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira