Hjálp! Baldvin Björgvinsson skrifar 15. mars 2026 23:00 Hjálp! getur einhver hjálpað mér? Eldri kona, blóðug, greinilega eftir höfuðhögg, rís upp úr rúminu sem hún liggur í á bráðamóttökunni. Karl, sjúklingur, í næsta rúmi kemur til aðstoðar og fer að leita að einhverjum til að hjálpa. Sú blóðuga hafði áður verið eðlileg og spjallað en nú voru komnir öndunarerfiðleikar og greinilega eitthvað alvarlegt að. Karlinn kemur aftur, hafði ekki fundið neinn til að hjálpa. Hjálp, getur þú hjálpað mér? Segir slasaða konan við mig, ég fer af stað og tekst að finna unga konu í hvítum slopp sem kemur og byrjar að reyna að ná sambandi við þá slösuðu en það eru ekki mikil viðbrögð. Læknum og hjúkrunarfólki fjölgar nú kringum rúmið hjá henni og greinilega mikill hasar. Eftir sex tíma á bráðamóttökunni er mér sagt að ég sé búinn og megi bara fara. Veit ekkert um hvernig konunni reiðir af, hvort hún lifir eða deyr. Þessa sex tíma hafði ég horft upp á eitthvað sem líktist því að stórslys hefði orðið, allt yfirfullt. Það var föstudagskvöld, nú laugardagsnótt, en þetta er ekki fólk af djamminu að sækja sér aðstoð. Þetta virðist vera að mestu leiti eldra fólk sem hefur dottið heima hjá sér eða eitthvað álíka. Það er boðið upp á áfallahjálp af minnsta tilefni í dag og full þörf á því. En hvar er áfallahjálpin sem er boðin þeim sem þurfa að leita á bráðamóttökuna? Það veldur mér áhyggjum, áfalli, að hugsa um að móðir mín væri búin að vera þarna tvisvar ef hún hefði ekki verið, fyrir tilviljun, í hvíldarinnlögn í Sunnuhlíð. Hvar er áfallahjálpin fyrir aðstandendur eldri borgara og þá sjálfa sem enga aðstoð fá aðra en að vera skilin eftir á bráðamóttökunni? Það skal tekið skýrt fram að starfsfólk bráðamóttökunnar stendur sig stórkostlega við gífurlega erfiðar vinnuaðstæður. Eftir stendur þó sú staðreynd að allir eru sammála um að ástandið er óboðlegt en samt virðist ekkert gert til að bæta það. Það veldur mér líka áhyggjum að móðir mín verður útskrifuð af hjúkrunarheimilinu í dag, þó hún þurfi sólarhrings eftirlit. Allir benda hver á annan og ég veit að hún mun enda þarna á bráðamóttökunni fyrr en síðar, því enn er ástandið eins og þegar Frelsarinn fæddst, hvergi rúm að hafa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjúkrunarheimili Heilbrigðismál Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar