Viðskipti innlent

Snarpri en verð­mætri loðnu­ver­tíð að ljúka

Kristján Már Unnarsson skrifar
Hákon ÞH að veiðum undan Snæfellsnesi í gær.
Hákon ÞH að veiðum undan Snæfellsnesi í gær. Björn Steinbekk

Snarpri en góðri loðnuvertíð er að ljúka. Í dag voru aðeins fjögur skip eftir á miðunum og er búist að þau verði öll búin með kvótann á morgun.

Í fréttum Sýnar mátti sjá myndir frá loðnumiðunum undan Snæfellsjökli þar sem loðnuskipin hafa síðustu daga verið að veiðum. Myndirnar tók Björn um borð í Hákoni ÞH, skipi Gjögurs á Grenivík. Þær sýna vel hvernig nótin hringast um loðnutorfuna. Nótin er svo dregin saman.

Loðnunót Venusar NS búin að herpast saman í loðnupoka. Um 770 tonn voru í þessu kasti við Snæfellsnes í gær.Elís Hólm Þórðarson

Neðansjávarmyndir sem Elís Hólm Þórðarson, stýrimaður á Venusi NS, skipi Brims, tók einnig við Snæfellsnes í gær, sýna loðnuna í pokanum þegar búið að herpa nótina saman í einn poka. Loðnunni er síðan dælt inn í lestar skipsins.

Þetta var síðasti túr Venusar og kom skipið inn til Akraness í morgun til löndunar. Þar var Víkingur AK að landa og var þá aðeins eitt skip Brims, Svanur RE, enn úti á miðunum að ljúka veiðum.

Um borð í Hákoni ÞH í gær.Björn Steinbekk

Skip Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hafa öll lokið loðnuveiðum en Börkur NK kom með síðasta farminn inn til Norðfjarðar í gær. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar lýsa skipstjórar ánægju með vertíðina. Tómas Kárason á Beiti sagði að þetta hafi verið snörp en góð vertíð.

Skip Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum komu til hafnar í fyrrakvöld með restina af loðnutúrum vertíðarinnar og þar með lauk loðnuveiðum fyrirtækisins á þessari vertíð. Á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs, vertíðina hafa gengið afar vel. Vinnslustöðin myndi ná að framleiða allt sem stefnt var að, bæði í heilfrystingu og hrognum.

Búið að hringa nótina upp að skipinu.Björn Steinbekk

Hjá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum sagði Eyþór Harðarson útgerðarstjóri að skip Ísfélagsins hefðu í dag átt eftir um tvöþúsund tonn óveidd. Álfsey og Heimaey væru enn á miðunum og þau myndu væntanlega klára kvótann á morgun.

Eyþór sagði að loðnukvótinn hafi verið nægilega stór til að fylla á alla mikilvægustu og verðmætustu manneldismarkaði. Þrátt fyrir að ekki hefði reynst unnt að veiða neitt til fiskimjölsvinnslu sagði Eyþór að þetta yrði að teljast góð loðnuvertíð.


Tengdar fréttir

Bændur á loðnuvertíð til að eiga fyrir áburðinum

Verðmætasti hluti loðnuvertíðarinnar, hrognavinnslan, er að komast á fulla ferð í loðnubyggðum landsins. Á Akranesi eru það sauðfjárbændur af Vesturlandi og úr Húnaþingi sem bera uppi vinnslu hrognanna.

Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni

Loðnuvertíðin er komin á fulla ferð og er loðnan núna á hraðri göngu vestur með suðurströndinni og að nálgast sitt verðmætasta form. Hún er gengin upp á landgrunnið og búin að þétta sig þar í torfur.

Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu

Skipstjóri loðnuveiðiskips býst við að loðnuvertíðin verði komin á fullt í kringum næstu helgi. Hann segir sérstaka vertíðarstemningu fylgja loðnunni, - hún kveiki líf allsstaðar.

Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum

Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi telur að komandi loðnuvertíð geti skilað útflutningstekjum upp á 35 til fjörutíu milljarða króna. Hundruð manna muni fá vinnu í sjávarútvegsplássum víða um land en þó í aðeins um sex vikur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×