Vilja leiða þjóðina blinda til Brussel Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. mars 2026 08:02 Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, er lesendum Vísis að góðu kunnur enda notar hann þennan vettvang ítrekað þegar hann gefst upp á því að teygja og toga sannleikann á sinni eigin bloggsíðu. Þessi mikli spunameistari ríkisstjórnarinnar skeiðaði í vikunni enn einu sinni fram á ritvöllinn og sakaði stjórnarandstöðuna um um að vilja hvorki hlusta á né tala við þjóðina um Evrópusambandið þegar það er hann sjálfur sem setur ávallt allan sannleika í þvottavélina og stillir á þeytivindu. Það er ekki stjórnarandstaðan sem valdi hina úthugsuðu dagsetningu 29. ágúst sem tryggir það, að engin þingleg umræða fari fram um stöðu Íslands gagnvart ESB áður haldið verður í kjörklefann í sumarlok. Ef allt gengur upp verður 2. umræðu um áframhaldandi aðlögunarviðræður við ESB lokið fyrir 29. maí og þá treystir ríkisstjórnin á að málið verði ekki tekið aftur upp á Alþingi fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Það er eitthvað sem hentar ríkisstjórninni vel enda forðast sumir í þessari ríkisstjórn umræðuna eins og heitan eldinn. Það er heldur ekki stjórnarandstaðan sem segir að „fólk þurfi ekkert allar upplýsingar um Evrópusambandið í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu“. Þetta sagði yfirmaður Þórðar Snæs, Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, á blaðamannafundi s.l. föstudag. Í sakleysi mínu hélt ég að hún hefði mismælt sig en þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, ítrekaði þetta í flutningsræðu sinni um þingsályktunartillöguna á Alþingi á mánudaginn áttaði maður sig á að þetta voru ekki mismæli. Ríkisstjórnin segir fullum fetum að óþarfi sé að afla sér of mikilla upplýsinga – bara kjósa! Þetta er hin ótrúlega lýðræðislega ríkisstjórn sem finnur stjórnarandstöðunni allt til foráttu. Hún hefur engan áhuga á að frekari umræða fari fram á Alþingi eftir 29. maí og hvað þá að íslenska þjóðin - sem hún treystir svo vel - kynni sér málin til hlítar. Þau segja þetta sjálf. Er þetta að treysta þjóðinni eða leiða hana áfram í blindni? Höfundur er aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og varaþingmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tómas Þór Þórðarson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, er lesendum Vísis að góðu kunnur enda notar hann þennan vettvang ítrekað þegar hann gefst upp á því að teygja og toga sannleikann á sinni eigin bloggsíðu. Þessi mikli spunameistari ríkisstjórnarinnar skeiðaði í vikunni enn einu sinni fram á ritvöllinn og sakaði stjórnarandstöðuna um um að vilja hvorki hlusta á né tala við þjóðina um Evrópusambandið þegar það er hann sjálfur sem setur ávallt allan sannleika í þvottavélina og stillir á þeytivindu. Það er ekki stjórnarandstaðan sem valdi hina úthugsuðu dagsetningu 29. ágúst sem tryggir það, að engin þingleg umræða fari fram um stöðu Íslands gagnvart ESB áður haldið verður í kjörklefann í sumarlok. Ef allt gengur upp verður 2. umræðu um áframhaldandi aðlögunarviðræður við ESB lokið fyrir 29. maí og þá treystir ríkisstjórnin á að málið verði ekki tekið aftur upp á Alþingi fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Það er eitthvað sem hentar ríkisstjórninni vel enda forðast sumir í þessari ríkisstjórn umræðuna eins og heitan eldinn. Það er heldur ekki stjórnarandstaðan sem segir að „fólk þurfi ekkert allar upplýsingar um Evrópusambandið í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu“. Þetta sagði yfirmaður Þórðar Snæs, Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, á blaðamannafundi s.l. föstudag. Í sakleysi mínu hélt ég að hún hefði mismælt sig en þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, ítrekaði þetta í flutningsræðu sinni um þingsályktunartillöguna á Alþingi á mánudaginn áttaði maður sig á að þetta voru ekki mismæli. Ríkisstjórnin segir fullum fetum að óþarfi sé að afla sér of mikilla upplýsinga – bara kjósa! Þetta er hin ótrúlega lýðræðislega ríkisstjórn sem finnur stjórnarandstöðunni allt til foráttu. Hún hefur engan áhuga á að frekari umræða fari fram á Alþingi eftir 29. maí og hvað þá að íslenska þjóðin - sem hún treystir svo vel - kynni sér málin til hlítar. Þau segja þetta sjálf. Er þetta að treysta þjóðinni eða leiða hana áfram í blindni? Höfundur er aðstoðarmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og varaþingmaður.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar