Segist saklaus Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. mars 2026 18:16 Kristján Einar dvaldi í átta mánuði í spænsku fangelsi. Vísir/Einar Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini, segist saklaus af öllum ásökunum sem hafa komið fram varðandi kynferðisbrot sem lögreglan a Akureyri rannsakar. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Kristján grunaður í málinu.
Lögreglan á Akureyri hefur til rannsóknar kynferðisbrot sem átti sér stað í bænum aðfaranótt sunnudags. Fleiri en einn sakborningur eru grunaðir vegna málsins en heimildir fréttastofu herma að hann sé einn þriggja sem voru handteknir. Í nýrri færslu á Instagram segist Kristján Einar vera saklaus af þeim ásökunum sem komið hafa fram. Hann titlar færsluna með orðunum „meint kynferðisbrot á Akureyri“. View this post on Instagram A post shared by SIR.KLEINI (@sir.kleini) „Ég mun ekki tjá mig frekar um málið á meðan málið er til rannsóknar hjá lögreglu,“ skrifaði hann. Hafdís Björg Kristjánsdóttir, fyrrverandi kærasta Kristjáns Einars, steig fram í kjölfar fregna af handtökunni og lýsti ofbeldi sem hún varð fyrir í sambandinu. Svala Björgvinsdóttir, sem einnig var í sambandi með Kristjáni Einari, lýsti yfir stuðningi við Hafdísi og sagðist einnig hafa orðið fyrir ofbeldi af hans hálfu. Fangavist á Spáni Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kristján Einar kemst í kast við lögin. Hann var handtekinn á Spáni í mars árið 2022 og vistaður í fangelsi. Fyrst um sinn sagði Kristján að hann hefði verið handtekinn fyrir „fyllerísslagsmál“ en var í raun dæmdur fyrir ofbeldisfullt rán. Hann hafi, ásamt öðrum manni, rænt fjármunum af þeim þriðja, og svo reynt að ræna fjórða manninn að nóttu til. Við ránið hafi þeir notast við oddhvassan hlut til að hóta fórnarlömbunum. Fyrir ránið hlaut hann þriggja ára og níu mánaða skilorðisbundinn fangelsi og var sleppt úr gæsluvarðhaldi skömmu eftir að dómurinn féll. Ári síðar, í janúar 2023, var hann handtekinn af sérsveitarmönnum á Húsavík. Hann sagði á þeim tíma að honum hafi verið sleppt eftir að neikvæð niðurstaða fékkst úr áfengis- og vímuefnaprófi. Í september 2025 greindi hann frá því á samfélagsmiðlum að hann væri á leið í meðferð vegna áfengisvanda. Fréttin hefur verið uppfærð.
Heimilisofbeldi Kynferðisofbeldi Akureyri Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira