Þörf karla fyrir heilbrigðisþjónustu eftir meðferð við krabbameini Hjalti Gunnlaugur Skúlason skrifar 11. mars 2026 07:32 Með bættri greiningu og meðferð fjölgar sem betur fer stöðugt þeim sem lifa lengur eftir greiningu krabbameins. Í dag eru um 20.000 Íslendingar á lífi sem fengið hafa krabbamein og gert er ráð fyrir að sá hópur telji tæplega 38.000 manns árið 2045. Eitt af meginmarkmiðum Krabbameinsfélagsins er að einstaklingar njóti sem bestra lífsgæða með og eftir krabbamein, en margir þurfa að takast á við langvinnar og síðkomnar afleiðingar krabbameins og krabbameinsmeðferðar. Í Mottumars í ár beinum við sjónum að þörfum karla fyrir hvers kyns stuðning meðan á meðferð stendur og eftir að henni lýkur. Forsenda þess að geta mætt þörfum þeirra er að skilja hvernig líkamleg, andleg og félagsleg líðan þeirra er eftir greiningu. Til að auka þann skilning standa Krabbameinsfélag Íslands, Háskóli Íslands, Landspítali og erlendir sérfræðingar í sameiningu að rannsókninni Lífsgæði, langvinn og síðbúin áhrif krabbameins ogkrabbameinsmeðferðar. Í lok síðasta árs lauk gagnasöfnun fyrir rannsóknina, en hún er stærsta rannsókn sinnar tegundar hér á landi og nær til 10.000 einstaklinga sem greindust með krabbamein á árunum 2014-2024 og tæplega 6.000 einstaklinga sem ekki hafa greinst með krabbamein og mynda samanburðarhóp. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á lífsgæði, heilsulæsi, þarfir fyrir heilbrigðisþjónustu og hvernig þeim þörfum er mætt og leggja þannig grunn að markvissari þjónustu til þeirra sem hafa greinst með krabbamein. Nú stendur yfir greining og túlkun á gögnum og allra fyrstu niðurstöður eru að líta dagsins ljós. Niðurstöðurnar benda til þess að margir karlmenn sem lokið hafa krabbameinsmeðferð glíma við ýmsar áskoranir. Sex af hverjum tíu lýsa þörf fyrir stuðning eða aðstoð og algengast er að nefna kynlífsvandamál, líkamleg einkenni og andlega líðan. Þótt margir fái aðstoð af einhverju tagi vegna líkamlegra og andlegra einkenna, virðist stuðningur síður ná til þátta sem snúa að fjölskyldu og sálfélagslegum áhrifum. Svör benda til þess að þrír af hverjum fjórum sem upplifa áhrif veikinda á fjölskyldu, þar með talið börn sín, telji sig ekki fá viðeigandi aðstoð. Það sama á við um þrjá fjórðu þeirra sem óttast endurkomu sjúkdómsins. Yngri karlar virðast oftar sitja uppi með fleiri óuppfylltar þarfir, en það vísar til þess þegar einstaklingur upplifir þörf fyrir stuðning og telur þeirri þörf ekki hafa verið mætt með fullnægjandi hætti. Þá sjáum við einnig að karlar sem teljast með lakara heilsulæsi, þ.e.a.s. karlar sem eiga erfiðara með að meðtaka og tileinka sér heilsutengdar upplýsingar, eru mun líklegri til að hafa margar óuppfylltar þarfir. Það sýnir hversu mikilvægt er að upplýsingar og úrræði séu aðgengileg og skýr, til að tryggja að enginn standi einn eftir að meðferð lýkur og undirstrikar þörfina fyrir öflun upplýsinga af þessu tagi. Þessar niðurstöður draga vel fram þær óuppfylltu þarfir sem karlar eru að kljást við og sýna fram á nauðsyn þess að halda áfram uppbyggingu á heilbrigðisþjónustu fyrir þá sem lokið hafa meðferð. Enginn á að þurfa að ganga einn í gegnum greiningu og meðferð krabbameina og stuðningur frá heilbrigðisþjónustu og nánasta umhverfi er nauðsynlegur. Við hjá Krabbameinsfélaginu viljum færa öllum sem tóku þátt í rannsókninni innilegar þakkir fyrir dýrmætt framlag og þann stuðning sem þið sýnið starfi Krabbameinsfélagi Íslands. Þátttaka ykkar leggur mikilvægan grunn að aukinni þekkingu á lífsgæðum eftir krabbamein, og mun nýtast til að bæta þjónustu og stuðning við þau sem lifa með krabbameinsgreiningu, svo fleiri lifi ekki aðeins lengur, heldur einnig betur. Höfundur er sérfræðingur á Rannsóknarsetri-Krabbameinsskrá hjá Krabbameinsfélagi Íslands Tölur eru fengnar úr yfirlitstölfræði Krabbameinsskráar: https://www.krabb.is/krabbamein/tolfraedi/krabbamein-og-gaedaskraning/heildartolfraedi-meina Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Krabbamein Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar