Erum við tilbúin í umbreytingu? Agnes Ósk Snorradóttir skrifar 8. mars 2026 19:02 Úrræðaleysið í endurhæfingarkerfinu hefur verið ofarlega á baugi síðustu misseri. Ekki nema von því innan samfélagsins okkar lenda fjölmargir hópar á endalausum veggjum í leit sinni að hjálp við heilsubrestum. Ekkert úrræði virðist henta mörgum hópum almennilega og eðlilega horfa margir utan landsteinanna í leit sinni að einhverju sem gæti stutt, styrkt og stuðlað að bata. Síðasta tæpa áratuginn hef ég starfað sem sjúkraþjálfari í starfsendurhæfingarkerfinu og fengið að kynnast landslaginu þar vel. Löng saga stutt að þá hef ég ófáu sinnum komið algjörlega miður mín heim úr vinnu. Vonlaus og á barmi þess að gefast hreinlega upp á því að starfa innan núverandi kerfis. Í síðasta fæðingarorlofi gekk ég svo langt með að segja við manninn minn að ég myndi ekki snúa aftur sem sjúkraþjálfari eftir orlofið. Það væri einfaldlega of sárt að horfa upp á skjólstæðingana mína í stöðugum barningi við að fá hlustun, samkennd og virðingu frá heilbrigðiskerfinu. Ég væri orðin langþreytt á því að upplifa mig svona skrítna og á móti straumnum. Raunveruleikinn er nefnilega sá að mikið af minni vinnu hefur farið í að vinda niður áhrifin af skilningsleysi kerfisins, ósveigjanleikans og virðingarleysisins. Svoleiðis leggst bæði á sál og líkama og oftar en ekki náðum við lítið að snerta á því sem upprunalega hafði kallað fram ójafnvægi í stoðkerfi skjólstæðingsins. Ómanneskjuleg framkoma kerfisins tók yfir allt og líkaminn í áfallaviðbragði eftir að hafa ekki verið mætt með viðeigandi hætti þegar þörfin var mest. Þegar Janusi starfsendurhæfingu var lokað síðasta sumar slokknaði öll löngun hjá mér að halda áfram á þeirri braut sem ég hafði verið á. Janus hafði verið eini staðurinn þar sem ég upplifði mig hluta af hóp á sömu bylgjulengd. Hluta af hóp sem skildi að hraði og góðar útskriftartölur er ekki það sama og skjólstæðingur sem útskrifast með djúpa von í brjósti, forvitni fyrir lífinu og nýja sýn á sjálfan sig. Þolinmæði, umburðarlyndi, kærleikur, mildi og mýkt lítur oft ekki vel út í excel skjali og því fór sem fór. Margra ára sérhæfingu var kastað út í veður og vind og ekkert nýtt stöðugildi fyrir mig að minnsta kosti í sjónmáli. Mitt plan var að finna mér bara eitthvað annað og halda áfram með líf mitt. Til hvers að halda áfram að pranga mínum hugmyndum upp á kerfi sem hafði augljóslega engan áhuga á að hlusta? En allt hugrakka fólkið sem hefur stigið fram og sagt sína sögu upp á síðkastið hefur gefið mér byr undir báða vængi. Kannski er það mín skylda að segja eitthvað líka. Því meira að segja á rólegum sunnudegi með fjölskyldunni er hjartað mitt kramið yfir því hversu margar fjölskyldur á Íslandi eiga um sárt að binda. Það er ekki hægt að ímynda sér þjáninguna við það að upplifa sig sem byrði á samfélaginu. Örvæntingin og sorgin yfir því að sjá fólkið sem við elskum mest þjàst í algjöru úrræðaleysi verður heldur ekki sett í orð. Það snertir okkur öll þegar fólk kemst að þeirri niðurstöðu að það væri auðveldara fyrir alla ef það hætti að reyna og kveddi frekar þennan heim. Afhverju er þetta svona? Afhverju er ég að skrifa þennan pistil en ekki að nýta orkuna mína með góðum hópi fólks að þróa eitthvað fallegt fyrir þau sem bíða og vona? Ég veit við erum mörg á hliðarlínunni tilbúin að stökkva af stað þegar kallið kemur. En hver er það sem kallar okkur inn? Höfundur er áfallameðvitaður sjúkraþjálfari og þriggja barna móðir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilsa Heilbrigðismál Mest lesið Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira