Opni leikskólinn og röng forgangsröðun fjármuna Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 5. mars 2026 07:01 Meirihluti Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að skera niður styrkveitingar til opna leikskólans Memmm Play. Starfsemin gegnir mikilvægu hlutverki í hverfum borgarinnar, þar sem foreldrar geta mætt gjaldfrjálst með börn sín sem enn hafa ekki hafið dagvistun. Börnin fá þar tækifæri til að leika sér og taka þátt í faglegu starfi undir leiðsögn fagfólks. Jafnframt fá foreldrar og börn tækifæri til að hittast reglulega í öruggu og styðjandi umhverfi. Starfið er því ekki aðeins mikilvægt fyrir þroska og félagsfærni barna, heldur einnig fyrir foreldra sem í gegnum opna leikskólann kynnast öðrum foreldrum. Enn eru langir biðlistar eftir dagvistunarplássum sem reynir á fjölskyldur í borginni. Í fæðingarorlofi upplifa sumir foreldrar félagslega einangrun og því skiptir miklu máli að til staðar séu opnir og aðgengilegir vettvangar þar sem foreldrar geta myndað tengsl og stuðningsnet. Starfsemin skiptir ekki síst máli fyrir foreldra af erlendum uppruna sem hafa ekki stuðningsnet í gegnum fjölskyldu á Íslandi. Það þarf þorp til að ala upp barn Stundum er sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í kringum starf Memmm Play hefur myndast öflugt foreldrasamfélag í hverfum borgarinnar. Slíkt tengslanet eykur félagsauð og stuðlar að auknum stuðningi á milli fjölskyldna. Þessi tengsl geta haft langtímaáhrif, bæði fyrir foreldra og börn, og gegna mikilvægu hlutverki í forvarnarstarfi til framtíðar. Með því að efla tengsl á milli foreldra má styrkja grunninn að sterku samfélagi í kringum uppeldi barnanna. Það er ómetanlegt. Viðvera opna leikskólans í samfélagshúsum borgarinnar hefur einnig haft jákvæð áhrif á starfsemi þeirra. Hún hefur aukið vitneskju borgarbúa um samfélagshúsin og stuðlað að aukinni kynslóðablöndun í þeim. Samnýtingin eykur þannig líf og fjölbreytni í starfsemi húsanna og styrkir samfélagslega innviði borgarinnar Mikil eftirspurn Þegar Framsókn var í meirihluta var ákveðið að veita Memmm Play fullan styrk til þriggja ára. Það hefur reynst heillaskref. Aðsóknin í Memmm Play hefur verið mikil og umsjónarfólk starfseminnar hefur lýst vilja til að auka opnunartíma og fjölga starfsstöðvum til að mæta eftirspurninni. Þrátt fyrir það virðist meirihlutinn í borginni ekki ætla að bregðast við þeirri þörf og hefur þess í stað samþykkt að lækka styrk borgarinnar til starfseminnar. Memmm Play, sem hefur verið með starfsemi á Aflagranda, í Bólstaðarhlíð og í Gerðubergi, hefur því þurft að bregðast við með því að loka opna leikskólanum í Bólstaðarhlíð. Borgin ætti að styðja við og efla þessa mikilvægu starfsemi frekar en að draga úr henni. Núverandi forgangsröðun fjármuna, þar sem selalaug, kynningarfundir borgarstjóra og ,,löber” á yfirborði Naustarinnar eru sett ofar grunnþjónustu við barnafjölskyldur, er meirihlutanum til skammar. Höfundur er borgarfulltrúi Framsóknar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Reykjavík Borgarstjórn Börn og uppeldi Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar