Trump: Khamenei látinn Agnar Már Másson skrifar 28. febrúar 2026 19:43 Khamenei er talinn vera látinn. Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, er sagður látinn eftir umfangsmiklar loftárásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna á Íran í dag. Þetta segir Bandaríkjaforseti en aðsetur Khamenei í Teheran var lagt í rúst í árásunum í dag. „
Khamenei, einn illkvittnasti maður sögunnar, er látinn,“ skrifaði Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á Truth Social í kvöld. Þetta er fyrsta opinbera staðfestingin á andláti æðstaklerksins en ísraelskir og bandarískir miðlar höfðu aftur á móti greint frá andlátinu með vísan til ónafngreindra ráðamanna í Ísrael. Forsetinn skrifar að fleiri ráðamenn hafi verið felldir í árás á aðsetur forsetans í morgun sem var gerð í samvinnu við Ísraelsher. „Þetta markar ekki aðeins réttlæti fyrir írönsku þjóðina, heldur fyrir alla Bandaríkjamenn og það fólk frá mörgum löndum um allan heim sem Khamenei og blóðþyrst glæpagengi hans hafa drepið eða limlest,“ heldur Bandaríkjaforsetinn áfram, en Trump hefur verið ómyrkur í máli um það að hann vilji að nýir menn taki við stjórnartaumunum í Íran. Færsla Trumps í kvöld.Aðsend Hið minnsta tvö hundruð létust í árásunum í Íran og á áttunda hundruð særðust til viðbótar, að sögn Rauða hálfmánans í Íran. „Þetta er einstakt tækifæri fyrir írönsku þjóðina til að endurheimta land sitt,“ bætir hann við. Þá vill forsetinn meina að fréttir berist nú af því að margir úr íranska byltingaverðinum, hernum og öðrum öryggissveitum vilji nú leggja niður vopn. Fréttin hefur verið uppfærð eftir að Trump staðfesti andlát Khamenei.
Íran Ísrael Bandaríkin Donald Trump Andlát Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Sjá meira