Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 23:57 Sakborningarnir eru meðal annars sagðir hafa ekið með fórnarlambið út að Gróttuvita, áður en þeir snéru aftur í miðbæinn þar sem lögreglan stöðvaði för mannanna. Vísir/Vilhelm Þrír karlmenn sæta ákæru fyrir frelsissviptingu og tilraun til ráns, með því að hafa svipt fjórða manninn frelsi og beitt hann ofbeldi og hótunum í því skyni að reyna að hafa af honum verðmæti. Mennirnir eru meðal annars grunaðir um að hafa slegið fórnarlamb sitt með felgulykli, ekið út að Gróttuvita og veitt manninum ítrekuð högg á meðan bílferðinni stóð. Meint brot áttu sér stað sumarið 2020, fyrir tæpum sex árum síðan, en málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í mars næstkomandi.
Vísir hefur ákæruna undir höndum en tveir sakborninganna eru á fimmtugsaldri en sá yngsti er á þrítugsaldri. Fórnarlambið er karlmaður á fertugsaldri en árásarmennirnir munu hafa í sameiningu svipt hann frelsi að kvöldi sunnudags þann 14. júní 2020. Samkvæmt ákæru á sá yngsti að hafa hringt í fórnarlambið og mælt sér mót við hann við heimili hans í miðborg Reykjavíkur. Þar hafi hann reynt að fá fórnarlambið inn í bíl en hann hafi hörfað frá. Eldri sakborningarnir tveir hafi náð að hlaupa fórnarlambið uppi og hafi þá veist að honum með ofbeldi og veitt honum spörk þar sem hann lá í jörðinni. Þá hafi einn þremenninganna slegið fórnarlambið með felgulykli og neytt inn í bifreiðina gegn vilja sínum. Þá óku þeir með fórnarlambið að Gróttuvita en snéru svo við og stöðvaði lögregla loks för bílsins í Tryggvagötu. Á meðan á ökuferðinni stóð veitti sá elsti fórnarlambinu ítrekuð hnefahögg og högg og stungu með felgulyklinum, á meðan þeir kröfðust þess að fórnarlambið myndi greiða þeim pening innan mánaðar. Samkvæmt ákærunni var manninum hótað að líf hans væri í hættu ef hann myndi leita til lögreglu. Fórnarlambið hafi hlotið fjölmarga marbletti, eymsli og kúlur á höfði yfir auga og skurð við eyra sem þurfti að sauma. Ákæruvaldið krefst þess að mennirnir þrír verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá hefur fórnarlambið gert kröfu um að hinir ákærðu verði dæmdir til greiðslu skaðabóta upp á 1,5 milljónir króna, með vöxtum, auk greiðslu málskostnaðar.
Lögreglumál Reykjavík Dómstólar Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Fleiri fréttir Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Sjá meira