Innlent

Hellis­heiði, Holta­vörðu­heiði og Fjarðar­heiði allar lokaðar

Agnar Már Másson skrifar
Afar hált er á vegum. Mynd úr safni.
Afar hált er á vegum. Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm

Hellisheiði, Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði hefur verið lokað.

Þetta kemur fram á umferðarvef Vegagerðarinnar. Þar er varað við hálkublettum víða.

Þá segir að Holtavörðuheiði sé ófær. Auk þess hefur verið mikil hálka við Þrengslin á Hellisheiði, sem sé nú einnig lokuð. Þá hefur Fjarðarheiði við Seyðisfjarðarveg einnig verið lokað.

Auk þess hefur Vegagerðin lokað fyrir umferð um Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum og lýst yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×