Mette boðar óvænt til kosninga Atli Ísleifsson skrifar 26. febrúar 2026 11:54 Mette Frederiksen er forsætisráðherra Danmerkur. AP Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur hefur óvænt boðað til þingkosninga í Danmörku þriðjudaginn 24. mars næstkomandi.
Frederiksen greindi frá þessu í ræðu á danska þinginu skömmu fyrir hádegi. „Nú er það undir kjósendum komið hvaða stefnu skuli setja,“ sagði Frederiksen í ræðustólnum. Frederiksen er formaður Jafnaðarmanna og hefur gegnt embætti forsætisráðherra Danmerkur frá árinu 2019. Jafnaðarmennn hafa setið í ríkisstjórn með Moderaterne, flokki Lars Lökke Rasmussen, utanríkisráðherra og fyrrverandi forsætisráðherra, og Venstre. Í ræðu sinni þakkaði hún jafnframt samstarfsfólki sínu í ríkisstjórn. „Ég meina það í fullri alvöru að við getum verið stolt af árangrinum,“ sagði Frederiksen sem lauk svo máli sínu á því að óska öllum góðs gengis í kosningabaráttunni framundan. Metta Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, ræddi við Volodymír Selenskí Úkraínuforseta í Kænugarði fyrr í vikunni. Vísir/Samúel Karl Þingkosningar í Danmörku eiga að fara fram á fjögurra ára fresti að lágmarki og getur forsætisráðherrann boðað til kosninga hvenær sem er, áður en sá frestur er liðinn. Frederiksen boðaði til kosninga í framhaldi af því að þingið samþykkti tillögu um svokallaðan matartékka sem nemur tæpum fimmtíu þúsund krónum til einstaklinga sem uppfylla ákveðin skilyrði. Um er að ræða um tvær milljónir Dana. Frederiksen nýtti ræðuna til að leggja áherslu á baráttumál sín, þar á meðal tillögu um að leggja auðlegðarskatt á Dani sem hún segir að muni aðeins bitna á einu prósenti landsmanna en færa landinu tugi milljarða í skatttekjur. Peningarnir eiga meðal annars að fara í grunnskóla þar sem flokkur hennar vill takmarka nemendafjölda við fjórtán í yngstu bekkjum. Flokkurinn vill líka fella niður fasteignaskatt á ódýrasta húsnæði.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Tengdar fréttir Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Dönsk stjórnvöld hafa komist að samkomulagi um beinan peningastyrk til barnafjölskyldna, lífeyrisþega, bótaþega og námsmanna sem ætlað er að mæta hækkandi matvöruverði í landinu. Um er að ræða skattfrjálsa einskiptisgreiðslu, svokallaðan „matartékka“, sem nemur tæpum 50 þúsund íslenskum krónum til einstaklinga sem uppfylla skilyrði til greiðslunnar, en tæpar 20 þúsund krónur til námsmanna. Þá standa yfir viðræður milli stjórnmálaflokka um lækkun virðisaukaskatts á matvöru. 27. janúar 2026 11:40 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira
Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Dönsk stjórnvöld hafa komist að samkomulagi um beinan peningastyrk til barnafjölskyldna, lífeyrisþega, bótaþega og námsmanna sem ætlað er að mæta hækkandi matvöruverði í landinu. Um er að ræða skattfrjálsa einskiptisgreiðslu, svokallaðan „matartékka“, sem nemur tæpum 50 þúsund íslenskum krónum til einstaklinga sem uppfylla skilyrði til greiðslunnar, en tæpar 20 þúsund krónur til námsmanna. Þá standa yfir viðræður milli stjórnmálaflokka um lækkun virðisaukaskatts á matvöru. 27. janúar 2026 11:40