Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Árni Sæberg skrifar 26. febrúar 2026 14:22 Bifreiðin sem um ræðir er gamall Willys jeppi. Ekki þessi Willys jeppi þó. Getty/Wirestock Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt mann réttmætan eiganda bifreiðar af gerðinni Willys Jeep, sem var fyrst skráð árið 1946, þar sem hann hefur haft umráð yfir bifreiðinni síðastliðin fjörutíu ár. Skráður eigandi bifreiðarinnar taldi að sá sem seldi manninum bifreiðina hefði ekki verið eigandi hennar. Dómurinn taldi öll skilyrði hefðar uppfyllt í málinu og því kæmi ekki til álita hvort upphaflegur seljandi hefði gerst sekur um kaupfox.
Í dómi þess efnis segir að aðilar málsins hafi verið ósammála um tildrög þess að bifreiðin komst í vörslur stefnda en af hans hálfu hafi komið fram að hann hafi fest kaup á henni árið 1985. Stefnandi hafi hins vegar byggt á því að hann hafi einungis lánað seljandanum bifreiðina og geti stefndi því ekki eignast betri rétt en seljandinn hafi átt. Með öðrum orðum hélt stefnandi því fram að seljandinn hefði selt stefnda bifreiðina án þess að hafa átt hana sjálfur og þannig gerst sekur um svokallað kaupfox. Lausafé hefðast á áratug Í dóminum segir að óslitið eignarhald á lausafé í tíu ár sé skilyrði hefðar samkvæmt lögum um hefð. Samkvæmt lögunum megi þó ekki hefð vinna ef maður hefur náð umráðum með glæp eða óráðvandlegu atferli og sama sé ef hann fær vitneskju um það, áður en hefðin er fullnuð,að eignarhaldið sé þannig til komið. Þá segir í lögunum að hafi hefðandi fengið hlut að veði, til geymslu, til láns eða á leigu geti slík umráð ekki heimilað hefð. Stefndi hafi lagt fram gögn sem sýni að seljandinn hafi greitt iðgjöld vegna trygginga af bifreiðinni og fært hana til skoðunar hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins á árunum 1983 til 1985. Þá liggi fyrir skráningarskírteini bifreiðarinnar frá árinu 1983 þar sem seljandinn sé tilgreindur sem eigandi hennar. Loks sé meðal gagna málsins tilkynning um sölu bifreiðarinnar sem beri með sér að hafa verið fyllt út að hluta við það tímamark sem stefndi kveðst hafa keypt hana af seljandanum. Tilkynningunni virðist þó ekki hafa verið skilað til sýslumanns eða Bifreiðaeftirlits ríkisins eins og reglur þess tíma hafi gert ráð fyrir auk þess sem skráningarnúmer bifreiðarinnar sé misritað í henni. Því hafi tilkynningin ekki úrslitaþýðingu til sönnunar í málinu. „Benda þessi samtímagögn hins vegar eindregið til þess að [seljandinn] hafi litið á bifreiðina sem sína eign og komið fram sem eigandi hennar gagnvart stjórnvöldum og vátryggjanda árin 1983-1985. Kemur það heim og saman við frásögn stefnda fyrir dóminum. Af framangreindu virtu þykir verða að leggja til grundvallar að stefndi hafi verið í góðri trú um að bifreiðin hafi verið í eigu [seljanda] þegar stefndi tók við vörslum hennar árið 1985.“ Þá hafi stefnandi engan reka gert að því að ná umráðum bifreiðarinnar fyrr en við höfðun annars dómsmáls árið 2011, sem stefndi hafi ekki verið aðili að. Árið 2011 hafi hefðunartími birfreiðarinnnar verið lönguliðinn, umráð stefnda verið óslitin allan hefðartímann, og engin gögn í málinu bendi til þess að hann hafi náð umráðum með glæp eða öðru óráðvandlegu atferli eða haft vitneskju um að stefnandi teldi sig eiganda hennar fyrr en að hefðinni fullnaðri. Lagði fram gögn úr ökutækjaskrá Creditinfo Þá segir að stefnandi hafi lagt fram gögn um það að hann hafi allan þennan tíma verið og sé raunar enn skráður eigandi bifreiðarinnar samkvæmt ökutækjaskrá Creditinfo. Enn fremur sé ljóst að sú skráning endurspegli ökutækjaskrá Samgöngustofu. Í málinu sé hins vegar til þess að líta að bifreiðin hafi verið afskráð úr skránni árið 1989 og liggi jafnframt fyrir að það var stefndi sem hlutaðist til um það. Þá sé meðal gagna málsins tölvubréf starfsmanns Samgöngustofu þar sem fram komi að stofnunin geymi engin skönnuð gögn um bifreiðina sem og tölvubréf skjalavarðar á Þjóðskjalasafni Íslands þar sem segi að upplýsingar um bifreiðina sé hvorki að finna í Bifreiðaskrá ríkisins né öðrum söfnum sem líklegastar væru til að geyma þær. „Er því ekki unnt að líta svo á aðskráningin sem stefnandi styður kröfur sínar við geti hafa girt fyrir að stefndi ynni hefð á bifreiðinni. Liggja ekki fyrir dóminum önnur skjalleg gögn til stuðnings fullyrðingum stefnanda um það að stefndi hafi einungis haft bifreiðina að láni frá stefnanda eða til geymslu þau rúmlega 40 ár sem liðin eru frá því að hún komst í vörslur stefnda.“ Skiptir ekki máli hvað fór seljandanum heitnum og stefnanda á milli Þá verði að taka fram að stefnandi hafi fyrst hafist handa við að sækja rétt sinn á hendur stefnda eftir andlát seljandans en ekki verði betur séð en að hann einn hefði getað varpað ljósi á það hvað þeim stefnanda samdist um þegar seljandinn tók við umráðum bifreiðarinnar. „Sem fyrr greinir er það niðurstaða dómsins að gögn málsins styðji fullyrðingar stefnda um að hann hafi verið í góðri trú um að [seljandinn] hafi verið eigandi bifreiðarinnar í lok árs 1985. Hefur stefndi því, hvað sem líður óvissu um það hvað stefnanda og [seljandanum] fór nákvæmlega á milli, að lágmarki unnið hefð á bifreiðinni frá því tímamarki á grundvelli laga [um hefð]. Samkvæmt framangreindu og heildarmati á gögnum málsins er það niðurstaða dómsins að stefnandi geti ekki talist eigandi þeirrar bifreiðar sem dómkröfur hans taka til. Er því óhjákvæmilegt að sýkna stefnda af þeim.“ Stefnandi var dæmdur til þess að greiða stefndar 1,4 milljónir króna í málskostnað.
Dómsmál Bílar Mest lesið Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Viðskipti innlent Verðbólga stendur í stað þvert á spár Viðskipti innlent Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Viðskipti innlent Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Samstarf Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Viðskipti innlent Óþolandi spjallmenni: „Ég bið alltaf um manneskju“ Atvinnulíf Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Viðskipti innlent Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Neytendur Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Viðskipti innlent Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Velta heilsulinda jókst töluvert „Ægilega hamingjusamur“ með milljarðana frá Kerecis Sögðu upp blaðamönnum Grapevine og reksturinn í járnum Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Sjá meira